Meðallengd dóma fyrir stórfelld fíkniefnabrot tæp sex ár

Með­al­lengd refs­inga þeirra fanga sem afplána nú fyrir stór­fellt fíkni­efna­brot í íslenskum fang­elsum, eða öðrum úrræðum utan þeirra, er 68 mán­uðir. Það þýðir að með­al­lengd dóms hvers og eins þeirra er fimm ár og átta mán­uðir. Þetta kemur fram í tölum sem Fang­els­is­mála­stofnun tók saman fyrir Kjarnann.

[quote font="0" align="right"]Flestir þeirra 139 fanga sem afplána í íslenskum fang­elsum í dag sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, eða 42 tals­ins. [/quote]

Flestir þeirra 139 fanga sem afplána í íslenskum fang­elsum í dag sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, eða 42 tals­ins. Næst flestir sitja inni fyrir kyn­ferð­is­brot, eða 25 tals­ins, og 22 fangar sitja inni fyrir ofbeld­is­brot. Jafn­margir fangar sitja inni fyrir mann­dráp og þjófnað/skjala­fals/fjár­svik, eða 17 tals­ins.

Þegar horft er á alla fanga í afplánun, líka þá sem afplána utan fang­elsa, eru 55 að afplána vegna fíkni­efna­brota.

Afbrotum fækkar á Íslandi


Afbrotum hefur fækkað jafnt og þétt á Íslandi und­an­farin ár. Samkvæmt töl­fræði sem emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra birti í apríl síð­ast­liðnum hefur afbrotum í heild fækkað úr 73.039 árið 2008 í 51.282 í fyrra. Afbrot voru því um 42 pró­sent árið 2008 en þau voru í fyrra. Ofbeld­is­brotum fækk­aði til að mynda um ell­efu pró­sent á því tíma­bili, brotum gegn vald­stjórn­inni fækk­aði um 34 pró­sent og auðg­un­ar­brot (rán, þjófn­aðir og grip­deildir) voru 60 pró­sent færri árið 2013 en fimm árum áður.

Vert er að taka fram að fækk­unin er að lang­mestu leyti til­komin vegna þess að bók­færð umferð­ar­laga­brot voru 19 þús­und færri í fyrra en árið 2008,en slík brot eru rúm­lega 70 pró­sent allra bók­færðra afbrota í töl­fræði rík­is­lög­reglu­stjóra.

Fíkniefnabrotum fjölgar


Á meðan að brotum í flestum flokkum hefur fækkað hefur fíkni­efna­brotum fjölgað umtals­vert. Alls voru framin 2.183 slík brot í fyrra sam­kvæmt töl­fræði rík­is­lög­reglu­stjóra. Um 70 pró­sent fíkni­efna­brota er vegna vörslu og með­ferðar á fíkni­efnum og er aukn­ing skráðra brota lang­mest í þeim brota­flokki. Sala, dreif­ing og inn­fluttn­ingur á fíkni­efnum hefur einnig auk­ist mikið.

Dómar í fík­ini­efna­málum þyngd­ust mjög í kringum síð­ustu ald­ar­mót. Þar vógu mest nokkrir mjög þungir dómar vegna inn­flutn­ings á e-töflum. Mikill sam­fé­lags­legur þrýst­ingur var á þeim tíma um að refs­ingar yrðu hertar í mál­unum. Þessi þrýst­ingur skil­aði því að um ald­ar­mótin síð­ustu var refsiramm­inn í fíkni­efna­málum hækk­aður úr tíu árum í tólf árið 2001. Á þeim tíma féll dómur vegna mesta magns e-taflna sem fluttar höfðu verið inn, 14.292 töflur, sem fund­ust á manni sem milli­lenti hér­lendis á leið sinni til Banda­ríkj­ana. Hann var dæmdur í níu ára fang­elsi.

[caption id="attachment_11494" align="alignnone" width="480"] Þróun með­al­lengdar dóma fyrir stór­felld fíkni­efna­brot frá árinu 1996 til 4. nóv­em­ber 2014.[/caption]

Árið eftir að hinn víð­ari refsirammi tók gildi var Aust­ur­rík­is­maður grip­inn með hátt í 70.000 e-töflur auk fjölda ann­arra fíkni­efna. Hann var dæmdur í tólf ára fang­elsi, eða hámarks­refs­ingu, í hér­aði en sá dómur var styttur í níu ár í Hæsta­rétti.

Árið 2001 var með­al­lengd þeirra sem sitja í fang­elsum fyrir stór­felld fíkni­efna­brot sú lengsta sem hún hefur nokkru sinni verið í sögu lands­ins, 53,33 mán­uðir.

Hver fangi kostar 7,3 milljónir


Dómar mild­uð­ust um tíma eftir ald­ar­mót. Á tíma­bil­inu 2003 til 2013 var með­al­lengd þeirra 33,7 mán­uðir. Árið 2012 var með­al­lengdin 27,18 mán­uðir. Í ár hefur með­al­lengdin hins vegar hækkað skarpt og er nú 52,20 mán­uðir. Þegar þeir sem afplána utan fang­elsa eru teknir inn í dæmið er útkoman sú að með­al­lengd refs­inga þeirra er 68 mán­uðir, eða fimm ár og átta mán­uðir. Lang­flestir sem dæmdir eru fyrir stór­felld fíkni­efna­brot sitja að minnsta kosti af sér tvo þriðju hluta refs­ingar.

Hver fangi í íslenska fang­els­is­kerf­inu kostar íslenska ríkið um 7,3 millj­ónir króna á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár