Straumur kaupir hlut í ÍV – MP, Straumur og ÍV í eina sæng?

MP banki,Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (LIVE) og félag í eigu Garðars K. Vil­hjálms­sonar gerðu til­boð í 27,5 pró­sent hlut Íslands­banka í Íslenskum Verð­bréfum í októ­ber. Föstu­dag­inn 24. októ­ber var ákveðið að taka til­boð­inu. Þann sama daga bár­ust til­boðs­gjöf­unum upp­lýs­ingar um að Straumur hefði lagt inn til­boð í hlut­inn þegar allt stefndi í að kaupin myndu ganga í gegn. Þær upp­lýs­ingar, sem voru byggðar á orðrómi á fjár­mála­mark­aðnum, reynd­ust ekki réttar. Straumur gerði aldrei til­boð í hlut­inn.

[caption id="attachment_11457" align="align­right" width="150"] Jakob Ásmunds­son, for­stjóri Straums.[/caption]

Hins vegar keypti bank­inn 64,3 pró­sent hlut Sævars Helga­sonar og Ásgeirs Ásgeirs­sonar, í gegnum félagið Gunner ehf., í Íslenskri eigna­stýr­ingu ehf., sem á 21,83 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréfum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Straumi býðst síðan að ganga inn í til­boð í aðra hluti í ÍV á grund­velli for­kaups­rétt­ar­á­kvæðis. Þar á meðal er 27,5 pró­sent hlutur Íslands­banka sem MP banki (10 pró­sent), LIVE (10 pró­sent) og Garðar Vil­hjálms­son (7,5 pró­sent) til­kynntu um kaup á fyrir skömmu. Þau við­skipti, líkt og kaup Straums á hlut Sævars og Ásgeirs, eru háð sam­þykki Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Eins og áður segir gætu þessi áform breyst, þar sem Straumur hefur hug á að nýta for­kaups­rétt­ar­á­kvæði og einnig auka eign sína í ÍV enn frekar. Því gæti staðan orðið sú þegar öll kurl eru komin til grafar að Straumur yrði með tögl og hagldir.

Hröð atburðarás


Á mánu­dags­morgun, 27. októ­ber, voru kaupin á hlut Íslands­banka í Íslenskum verð­bréfum und­ir­rituð. Síðar sama dag bár­ust fregnir til eig­enda­hóps MP banka að Straumur hefðu keypt tæp­lega 20 pró­sent hlut þeirra Joe Lewis og Rowland-fjöl­skyld­unnar í MP banka. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var kaup­verðið í þeim við­skiptum grund­vallað á sama verð­mati og Kjarninn hafði greint frá sept­em­ber síð­ast­liðnum. Það er að virði hluta­fjár bank­ans væri á bil­inu 0,3 til 0,6 sinnum eigið fé hans, sem þá nam 1,5 til þremur millj­örðum króna. Kaup­verðið á 20 fyrr­nefndum 20 pró­sent hlut nam því á bil­inu 300 til 600 millj­ónum króna.

[quote font="0" align="right"]Kaup­verðið á 20 fyrr­nefndum 20 pró­sent hlut nam því á bil­inu 300 til 600 millj­ónum króna.[/quote]

Þessi sala fór ekki vel í aðra hlut­hafa MP banka, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þeir hefðu viljað fá mögu­leik­ann á því að kaupa hlut­inn áður en hann var seldur til Straums. Þeir töldu aug­ljóst að til­gang­ur­inn væri að reyna að taka yfir MP banka, en fyrir áttu aðilar tengdir Straumi sam­tals um 3,5 pró­sent hlut í MP banka. Þar er um að ræða Stein­unni Jóns­dóttur, eig­anda félags­ins Arkur ehf., sem á 2,56 pró­sent hlut, og Siglu ehf., í eigu Finns Reys Stef­áns­sonar og Tómasar Krist­jáns­sonar, sem á um eitt pró­sent hlut. Steinunn er eig­in­kona Finns. Sigla er einn stærsti eig­andi Straums með 16,25 pró­sent eign­ar­hlut og Finnur er stjórn­ar­for­maður bank­ans.

Aðrir stórir eig­endur MP banka litu því á að Arkur og Sigla myndu stilla sér upp með Straumi ef að yfir­tökutil­raun kæmi.

Endurreisn


Þegar MP banki var lagt til 5,5 millj­arðar króna í nýtt hlutafé, og bank­inn í raun end­ur­vak­inn frá dauðum, í apríl 2011, þá leiddi fjár­festir­inn Skúli Mogensen þá veg­ferð. Einn við­mæl­anda Kjarnans sagði að Skúli hafi verið nokkur konar „master of ceremony“ í þeirri end­ur­reisn. Hann hafi komið hópnum saman sem lagði til féð og sjálfur orðið stærsti hlut­haf­inn með 17,5 pró­sent hlut.

[caption id="attachment_11454" align="aligncenter" width="730"] Sigurður Atli Jónsson er for­stjóri MP Banka.[/caption]

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Ókyrrð hefur kom­ist á hluta hlut­haf­anna, sér­stak­lega þá erlendu aðila sem Skúli fékk að MP banka, og þeir hafa viljað selja sinn hlut. Rekstur MP banka hefur enda ekki gengið neitt afskap­lega vel síðan að nýju hlut­haf­arnir komu að bank­anum. Skúli og eig­in­kona hans skildu í byrjun árs 2013 og eign­ar­hlut fjár­fest­inga­fé­lags hans í MP banka var í kjöl­farið skipt upp á milli þeirra. Skyndi­lega var Manastur Holding, félag í eigu Joseph C. Lewis, orðið stærsti eig­andi bank­ans. Smærri aðilar á íslenskum fjár­mála­mark­aði virð­ast ein­fald­lega ekki geta náð nægi­lega arð­bærum rekstri nema með því að sam­ein­ast öðrum og ná þar með fram kostn­að­ar­sam­legð. Þess vegna hafa nán­ast allir á „litla“ mark­aðnum verið að reyna að sam­ein­ast ein­hverjum öðrum.

[quote font="0" align="right"]Þess vegna hafa nán­ast allir á „litla“ mark­aðnum verið að reyna að sam­ein­ast ein­hverjum öðrum.[/quote]

Sam­ein­inga­til­raunir MP banka hafa reyndar verið tölu­vert meira í dags­ljós­inu en annnarra. Í maí 2013 hófust við­ræður við Íslensk Verðbréf um kaup MP banka á hinu síð­ar­nefnda fyr­ir­tæki. Þeim við­ræðum var form­lega slitið í febr­úar 2014, meðal ann­ars vegna and­stöðu í hlut­hafa­hópi Íslenskra Verð­bréfa. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum var síðan til­kynnt að MP banki og Virðing hf. hefðu ákveðið að taka upp form­legar við­ræður um sam­ein­ingu. Þær við­ræður náðu því ekki að verða mán­að­ar­gamlar áður en þeim var hætt.

Straumur að reyna að ráða för


Og nú er Straumur að reyna að ná und­ir­tök­unum í MP banka. Í frétt í Morg­un­blað­inu í dag segir að sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingu sem Straumur hefur kynnt ýmsum hlut­höfum MP banka und­an­farna daga mui nást kostn­að­ar­sam­legð sem nemur 666 millj­ónum króna á ári ef bönk­unum tveimur verður rennt saman.

[quote font="0" align="right"]Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru stærstu hlut­hafar MP banka þó alls ekki hrifnir af sam­ein­ingu við Straum.[/quote]

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru stærstu hlut­hafar MP banka þó alls ekki hrifnir af sam­ein­ingu við Straum. Og aðferð­ar­fræðin sem beitt var við kaupin kemur sér­stak­lega við kaun­inn á þeim. Stærstu hlut­haf­arnir fóru sam­stundis að ráða ráðum sínum eftir að þeir fengu fregnir af kaupum Straums á hlut í bank­anum. Nið­ur­staðan er sú að eig­endur um 70 pró­sent hluta­fjár standa saman gegn öllum til­raunum til yfir­töku og ætla „ekki að láta koma aftan að sér“, eins og einn við­mæl­andi Kjarnans orð­aði það. Ljóst er þó innan Straums, bæði meðal stjórn­enda og hlut­hafa, er vilji til þess að sam­eina öll félögin, MP banka, Straum og ÍV, til­tölu­lega hratt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár