Reykjanesbær ætlar hækka álögur um 455 milljónir króna

Á fundi bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar í morgun var sam­þykkt að auka tekjur bæj­ar­sjóðs um 455 millj­ónir króna með því að hækka útsvar og fast­eigna­skatta. Í frétt um málið á heima­síðu sveit­ar­fé­lags­ins segir að „þessi bland­aða leið er nán­ari útfærsla á yfir­mark­miðum um að auka fram­legð bæj­ar­sjóðs um 900 millj­ónir króna“. Aðrar helstu tekju­öfl­un­ar­leiðir Reykja­nes­bæjar til að afla þess­arra tekna eru meðal ann­ars að auka arð­greiðslur út HS Veitum um allt að 450 millj­ónir króna.

Skulda 40 milljarða króna


grein­ingu KPMG á fjár­hags­stöðu Reykja­nes­bæjar, og úttektar Haraldar L. Har­alds­sonar hag­fræð­ings á rekstri Reykja­nes­bæjar, sem kynntar voru á opnum íbúa­fundi í Hljóma­höll­inni í síð­ustu viku.

Blönduð leið


Í frétt á heima­síðu Reykja­nes­bæjar segir: „Með því að fara þessa blönd­uðu leið dreifast byrð­arnar á fleiri herðar þ.e. bæði útsvars­greið­endur og alla eig­endur íbúð­ar­hús­næðis í A-stofni, þar með taldir ýmsir lög­að­ilar sem eiga íbúð­ar­hús­næði í Reykja­nesbæ s.s. leigu­fé­lög, bankar, Íbúða­lána­sjóður og fleiri.
Gjald­stofnar fast­eigna í B-stofni (opin­berar bygg­ingar) og C-stofni (atvinnu­hús­næði) eru þegar full­nýttir.

Þessi bland­aða leið felur í sér að útsvar hækkar frá og með 1. jan­úar 2015 um 0,53%, fer úr 14,52% í 15,05%, sem er hlut­falls­hækkun upp á 3,62%. Sú hækkun bætir fjár­hags­stöðu bæj­ars­sjóðs um 200 millj­ónir króna. Jafn­framt hækkar fast­eigna­skattur A-stofns úr 0,3% í 0,5% frá sama tíma. Það leiðir til tekju­aukn­ingar fyrir bæj­ar­sjóð um 255 millj­ónir króna. Samtals gæti því tekju­aukn­ing bæj­ar­sjóðs orðið 455 millj­ónir króna.

Samhliða þessum aðgerðum er unnið að til­lögum um hag­ræð­ingu í rekstri sem ætlað er að skila um 500 millj­óna króna lækkun rekstr­ar­kostn­aðar Reykja­nes­bæjar. Þær til­lögur munu líta dags­ins ljós í fjár­hags­á­ætl­unum stofn­ana fyrir árið 2015 sem lagðar verða fyrir bæj­ar­stjórn í des­em­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár