Efast um að Ólafur Ragnar muni gefa kost á sér til endurkjörs

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, er í átj­ánda sæti á lista sem Washington Post gerði yfir þjóð­ar­leið­toga sem lengst hafa setið á valda­stóli í heim­inum. Samkvæmt umfjöllun dag­blaðs­ins hefur Ólafur Ragnar setið 6.664 daga í emb­ætti, en Ólafur er einn þriggja þjóð­ar­leið­toga frá Evrópu sem kom­ast á list­ann, hinir tveir eru Vladimir Pútín, for­seti Rúss­lands, og Alex­ander Lukashenkó, for­seti Hvíta-Rúss­lands.

Ólafur Ragnar stað­festi nýlega opin­ber­lega að hann ætli að sitja út yfir­stand­andi kjör­tíma­bil. Þá hefur hann ekki úti­lokað að hann muni bjóða sig fram í sjötta skiptið, en þegar kjör­tímbil­inu lýkur árið 2016, mun Ólafur Ragnar hafa gegnt emb­ætti for­seta Íslands í tutt­ugu ár.

Ekki öfundsverður félagsskapur


"Þegar Ólafur Ragnar Grímsson leit­aði fyrst eftir því að verða for­seti Íslands árið 1996 hafði hann á orði að átta ár væru hæfi­legur tími í hinu háa emb­ætti. Um leið lagði hann áherslu á að þjóð­höfð­ing­inn gegndi sam­ein­ing­ar­hlut­verki enda væru Bessa­staðir ekki átaka­vett­vangur. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar," þetta segir Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur.

[quote font="0" align="right"]"Ljón­hepp­inn hafði Ólafur Ragnar líka verið fjórum árum fyrr. Hvernig ætli honum hefði gengið að leita þá end­ur­kjörs ef banka­hrunið hefði orðið snemma árs 2008 en ekki að hausti?"[/quote]

"Ólafur Ragnar hefur setið mun lengur en hann taldi æski­legt á sínum tíma og sam­ein­ing­ar­táknið missti hann smám saman úr höndum sér. Þetta má alveg rifja upp nú þegar for­set­inn er settur á lista Washington Post yfir þaul­setn­ustu þjóð­ar­leið­toga heims­ins. Ekki er það endi­lega öfunds­verður félags­skapur, að sitja við hlið harð­stjóra eins og Mugabe eða ein­valda á borð við Lukashenko og Pútín sem virða ekki leik­reglur lýð­ræð­is­ins. Á hitt er þó einkum að líta að Ólafur Ragnar Grímsson hefur setið svona lengi á for­seta­stóli vegna þess að hann hefur annað hvort fengið umboð sitt end­ur­nýjað án mót­fram­boðs eða haft betur í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum."

Mátti aðeins einu sinni óttast ósigur


Guðni segir Ólaf Ragnar aðeins einu sinni í for­seta­tíð sinni hafa mátt ótt­ast ósigur í kosn­ingum til end­ur­kjörs. Það hafi verið í síð­ustu kosn­ingum, sem fram fóru árið 2012. Þá hafi nokkur atriði komið honum til góða, meðal ann­ars sú til­hneig­ing Íslend­inga að styðja for­seta sinn, vilji hann sitja áfram.

"Auk þess tókst Ólafi Ragnari að spyrða sinn helsta keppi­naut, Þóru Arn­órs­dóttur, við afar óvin­sæla rík­is­stjórn og Evr­ópu­sam­bandið í ofaná­lag. Loks kom Icesave-deilan honum heldur betur til góða. Stað­fest­ing for­seta á fyrsta Icesave-samn­ingnum hvarf alveg í skugg­ann á tveimur synj­unum og oflæti útrás­ar­ár­anna gleymd­ist sömu­leiðis. Ljón­hepp­inn hafði Ólafur Ragnar líka verið fjórum árum fyrr. Hvernig ætli honum hefði gengið að leita þá end­ur­kjörs ef banka­hrunið hefði orðið snemma árs 2008 en ekki að hausti? Teikn um það mætti finna í frægu eða alræmdu atriði í ára­mótaskaupi þegar „rík­is­sjón­varpið útmál­aði for­seta lýð­veld­is­ins sem útúr­dópað svín með svall­veislu á Bessa­stöðum“, eins og Elliði Vign­is­son bæj­ar­stjóri skrif­aði nýlega."

Efast um að Ólafur vilji vera lengur á Bessastöðum


Þrátt fyrir að Ólafur Ragnar hafi ekki enn gefið út hvort hann muni sækj­ast eftir end­ur­kjöri eður ei, er Guðni efins um að for­set­inn muni gefa kost á sér í sjötta sinn í lok kjör­tíma­bils­ins. "Að því loknu, því ég get bara ekki ímyndað mér að hann vilji vera enn lengur á Bessa­stöðum, fer sagan að snú­ast um arf­leifð hans í emb­ætti. Enginn for­seti hefur breytt því eins mikið og hann hefur þegar gert. Enginn for­seti hefur verið eins umdeildur. Enginn hefur setið eins lengi. Honum verður þakkað sumt en kennt um annað," segir Guðni.

[quote font="0" align="right"]"Þótt ekki megi ráða of mikið í hvikular skoð­ana­kann­anir gæti stuðn­ingur við Jón Gnarr sem næsta for­seta lýð­veld­is­ins líka sagt sitt um sess Ólafs Ragnars Gríms­sonar í sög­unni."[/quote]

"Eitt ætla ég að leyfa mér að giska á nú þegar, og það er að síð­asta kjör­tíma­bil Ólafs Ragnars Grímsson verði ekki endi­lega metið honum til mik­ils vegs­auka. Þetta myndi hann þá eiga sam­eig­in­legt með Ásgeiri Ásgeirs­syni og Vigdísi Finn­boga­dóttur; báðum fannst þeim síð­asta kjör­tíma­bilið það erf­ið­asta og happa­minnsta á Bessa­stöðum. Síðustu miss­eri hefur norð­ur­slóða­stefna Ólafs, nýja útrásin hans, verið umdeild vegna yfir­gangs Rússa á heima­slóðum. Rík­is­stjórnin er auk þess óvin­sæl og það gæti haft áhrif á við­horf til for­set­ans. Augljós hefur verið vel­þóknun hans á Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra og ein­hver sagði að 2012 hefði for­seta­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í fyrsta sinn náð kjöri á Íslandi."

Telur að fylgið við Jón Gnarr muni minnka


Jón Gnarr, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, hefur verið orð­aður við for­seta­fram­boð, en 47 pró­sent aðspurðra í nýlegri skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins vildu Jón sem næsta for­seta. "Þótt ekki megi ráða of mikið í hvikular skoð­ana­kann­anir gæti stuðn­ingur við Jón Gnarr sem næsta for­seta lýð­veld­is­ins líka sagt sitt um sess Ólafs Ragnars Gríms­sonar í sög­unni. Svo mikið virð­ist óþolið á stjórn­mála­mönnum orðið, og í þann flokk hlýtur for­set­inn að falla, að margir virð­ast vilja eitt­hvað allt annað á Bessa­staði, helst and­ófs­mann, pönk­ara og grínista, ein­hverja algera and­stæðu þess sem nú situr þar," segir Guðni.

"Það er eitt að vera borg­ar­stjóri sem náði kjöri í upp­lausn­ar­á­standi, umvaf­inn traustum banda­mönnum og ráð­gjöfum, sitj­andi eitt kjör­tíma­bil, og annað að bjóða sig fram til for­seta þar sem ábyrgðin hlýtur að hvíla á eins manns herðum og skuld­bind­ingin er til lang­frama. Kannski meiri­hluti Íslend­inga kjósi líka að leita frekar að ein­hverjum sem þætti lík­legur til að sitja á frið­ar­stóli í stað þess að stíga af krafti inn á hið póli­tíska svið eins og Ólafur Ragnar gerði eða vera ögrandi að upp­lagi eins og Jón Gnarr."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár