Samningar um lengingu skuldabréfa Landsbanka langt komnir, segir Már

Samn­ingar milli stjórn­valda og þrota­bús Lands­bank­ans um leng­ingu á skuld nýja Lands­bank­ans við það eru langt komnar. Náist ekki að semja mun nýi bank­inn neyð­ast til að minnka efna­hags­reikn­ing sinn. Þetta segir Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, í sam­tali við Bloomberg fyrr í dag.

Í frétt Bloomberg um málið er haft eftir Má að fram­leng­ing skulda­bréfa upp á 226 millj­arða króna, sem nýi Lands­bank­inn skuldar þrota­búi þess gamla og eiga að greið­ast upp í októ­ber 2018, séu á loka­stígi. „Málið er að leys­ast og ég held að það sé nálægt því að vera klárað,“ sagði Már í við­tali sem tekið var í morgun. Viðræður hafa átt sér stað milli Seðla­bank­ans og fyr­ir­svars­manna þrota­bús Lands­bank­ans vegna máls­ins.

Í við­tal­inu segir Már einnig að náist ekki sam­komu­lag gæti það þýtt að nýi Lands­bank­inn þurfi að minnka efna­hags­reikn­ing sinn. Aug­ljós­lega þurfi þó að taka til­lit til ann­arra þátta sem tengj­ast afnámi fjár­magns­hafta áður en Land­bank­anum er veitt und­an­þága. "En eigum við ekki að álykta að við munum kom­ast að lend­ingu í mál­inu, á einn eða annan hátt, fljót­lega," segir Már að lokum.

Greiðsla fyrir eignir sem voru færðar


Í des­em­ber 2009 var samið um upp­gjör milli þrota­bús gamla Lands­bank­ans og nýja Lands­bank­ans vegna þeirra eigna sem færðar voru þar á milli eftir banka­hrunið. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að íslenska ríkið eign­að­ist nýja bank­ann utan lít­ils hlutar sem myndi renna til starfs­manna hans. Á móti gaf þrota­búið út upp­gjörs­skulda­bréf sem nýi bank­inn átti að greiða vegna þeirra eigna sem hann tók yfir.

Skulda­bréfin voru upp á mörg hund­ruð millj­arða króna í erlendum gjald­miðlum og loka­greiðsla átti að vera innt af hendi í októ­ber 2018, tíu árum eftir fall Lands­bank­ans. Því var ljóst að nýi Lands­bank­inn þurfti að verða sér úti um mikið magn af gjald­eyri til að standa við greiðsl­urnar.

Fljótt varð ljóst að svona miklar útgreiðslur á gjald­eyri, á jafn skömmum tíma, myndu ógna greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins veru­lega. Því var þrýst veru­lega á að fyr­ir­komu­lag­inu yrði breytt.

228 milljarðar í erlendum gjaldeyri


Þann 8. maí síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að sam­komu­lag hefði náðst milli Lands­bank­ans og þrota­bús gamla Lands­bank­ans um breyt­ingar á skil­málum skulda­bréf­anna, en eft­ir­stöðvar eru um 228 millj­arðar króna. Sam­komu­lagið snérist um að lengt yrði í greiðslum af skulda­bréf­unum til árs­ins 2026 gegn því að vaxta­kjör myndu hækka eftir árið 2018. Það var hins vegar bundið því að Seðla­banki Íslands myndi veita und­an­þágur frá lögum um gjald­eyr­is­mál, enda höft á fjár­magns­flutn­inga í gildi í land­inu.

Ekki hefur tekið að ná sam­komu­lagi um slíkar und­an­þágur og Lands­bank­inn hefur ítrekað fram­lengt ein­hliða loka­fresti sem hann hefur gefið út. Sá nýjasti gildir til 17. nóv­em­ber.

Ekki samstíga á stjórnarheimilinum


Samkvæmt fjöl­mörgum heim­ildum Kjarnans er ástæða þess að Seðla­banki Íslands og fjár­mála­ráðu­neytið hafa ekki lagt fyrir þrotabú Lands­bank­ans til­lögur um skil­yrði sem þrota­búið þarf að mæta til að und­an­þág­urnar verði veittar er ein­föld, það er ekki ein­ing um að semja við kröfu­hafa með þessum hætti innan rík­is­stjórn­ar­innar.

Æðstu stjórn­endur Seðla­banka Íslands og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, eru sagðir vera hlynntir því að semja við þrota­búið um fram­leng­ingu á skulda­bréf­inu með ákveðnum breyt­ingum á fyr­ir­liggj­andi sam­komu­lagi. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, og nán­ustu sam­starfs­menn hans eru sagðir algjör­lega á móti þess­ari nið­ur­stöðu.

Sigmundur Davíð andstæður sérlausnum


Sig­mundur Davíð lýsti raunar yfir and­stöðu við leng­ingu á gjald­dögum skulda­bréfa Lands­bank­ans í ræðu á Alþingi í maí síð­ast­liðnum. Þar sagði hann meðal ann­ars:„Það að lengja í þessu bréfi og það á hærri vöxtum er hins vegar ekk­ert aug­ljós­lega góður kostur. Þegar ein­hver skuldar eitt­hvað sem hann getur ekki borgað leysir það ekki öll mál að hækka vext­ina og láta þá tikka í lengri tíma.

Það sem snýr hins vegar að stjórn­völdum í þessu máli er hvort for­svar­an­legt sé að veita und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höft­unum bara fyrir þessa aðila á meðan aðrir verða áfram lok­aðir hér innan hafta. Það getur ekki verið for­svar­an­legt að veita und­an­þágu fyrir einn eða tvo til­tekna aðila til þess að sleppa út með gjald­eyri, jafn­vel nið­ur­greiddan gjald­eyri, gjald­eyri sem yrði þá nið­ur­greiddur af þeim sem eftir sætu í höftum og þar með talið íslenskum almenn­ingi, hugs­an­lega með var­an­legri skerð­ingu á raun­gengi krón­unnar sem þýðir ein­fald­lega lak­ari lífs­kjör í land­inu til fram­tíðar. Slík nið­ur­staða væri alltaf óásætt­an­leg og þar af leið­andi gætu stjórn­völd ekki heim­ilað und­an­þágu frá höft­unum sem leiddi til slíks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár