Seðlabankinn lækkar stýrivexti í fyrsta sinn í tvö ár

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur lækkað vexti bank­ans um 0,25 pró­sent. Stýri­vextir höfðu áður staðið óbreyttir í um tvö ár. Flestir grein­ar­að­ilar spáðu því að stýri­vextir myndu hald­ast óbreyttir. Stýri­vextir á Íslandi lækka því úr sex pró­sent niður í 5,75 pró­sent.

Vext­irnir eru samt sem áður með þeim hæstu í hinum vest­ræna heimi. Seðla­banki Sví­þjóðar ákvað til að mynda að lækka sína stýri­vexti úr 0,25 pró­sent í 0 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar.

Í rök­stuðn­ingi Seðla­bank­ans fyrir lækk­un­inni segir að horfur séu á heldur minni hag­vexti en spáð var í ágúst. Áfram er gert ráð fyrir kröft­ugum vexti inn­lendrar eft­ir­spurnar og þrótt­miklum hag­vexti á næstu þremur árum. Batinn á vinnu­mark­aði heldur einnig áfram, þótt nokkuð hafi dregið úr vexti vinnu­afls­eft­ir­spurnar.

Í tikynn­ingu Seðla­bank­ans segir enn­fremur:

„Verð­bólga hefur verið undir mark­miði í níu mán­uði sam­fleytt. Hún hefur minnkað enn frekar á haust­mán­uðum og skýrist hún að mestu leyti af hækkun hús­næð­is­verðs. Lítil alþjóð­leg verð­bólga og stöðugt gengi krónu stuðla að lít­illi verð­bólgu þrátt fyrir tölu­verðar launa­hækk­anir. Verð­bólgu­horfur til skemmri tíma eru af þessum sökum betri en í ágúst. Samkvæmt spá bank­ans eru líkur á að verð­bólga hjaðni frekar á næstu mán­uðum og verði við eða undir mark­miði fram yfir mitt næsta ár. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa lækkað á und­an­förnum mán­uðum og nálg­ast nú verð­bólgu­mark­miðið.

Meiri þjóð­hags­legur sparn­aður og við­skipta­af­gangur en gert var ráð fyrir í fyrri spám hafa við­haldið veru­legu gjald­eyr­is­inn­streymi en gjald­eyr­is­við­skipti Seðla­bank­ans hafa lagst gegn óhóf­legri hækkun á gengi krón­unnar og dregið úr geng­is­sveiflum.

Nafn­vextir Seðla­bank­ans hafa verið óbreyttir í tvö ár, en raun­vextir bank­ans hafa að und­an­förnu hækkað meira en búist var við sökum hrað­ari hjöðn­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga og umfram það sem staða hag­sveifl­unnar og nær­horfur gefa til­efni til. Því eru for­sendur til að draga úr hækkun raun­vaxta.

Fram­vinda nafn­vaxta ræðst eins og alltaf af þróun eft­ir­spurnar og verð­bólgu. Verði launa­hækk­anir í kom­andi kjara­samn­ingum í sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið gætu skap­ast for­sendur fyrir frek­ari lækkun nafn­vaxta. Miklar launa­hækk­anir og vöxtur eft­ir­spurnar gætu hins vegar grafið undan nýfengnum verð­stöð­ug­leika og valdið því að hækka þurfi vexti á ný."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár