Um 40 þúsund Íslendingar í hættu á fátækt eða útskúfun

Tæplega 123 millj­ónir manna innan Evr­ópu­sam­bands­ins voru í hættu á því að lenda í fátækt eða í félags­legri útskúfun á á árinu 2013. Til að falla í þann hóp þarf að upp­fylla að minnsta kosti eitt af þremur skil­yrðum: að vera í hættu á að lenda undir fátækrar­mörkum í kjöl­far versn­andi sam­fé­lags­stöðu, að búa við mjög bág­borin fjár­hags­leg skil­yrði eða að búa á heim­ili þar sem atvinnu­þátt­taka er lítil.

Hlutfall þeirra sem eru í áhættu­hópnum dróst smá­vægi­lega saman á milli ára, úr 24,8 pró­sent í 24,5 pró­sent. Hlutfall Evr­ópu­sam­bands­búa sem eru í áhættu­hópnum er hins vegar enn hærra en það var árið 2008, þegar það var 23,8 pró­sent. Fækkun fólks í þessum áhættu­hópi er ein af helstu mark­miðum Europe 2020 áætl­unar Evr­ópu­sam­bands­ins. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum sem Eurostat, hag­stofa Evr­ópu­sam­bands­ins, birti í dag.

Ástandið skást á Íslandi en hefur versnað


Eurostat tekur líka saman tölur yfir þau ríki sem eiga aðild að Evrópska Efna­hags­svæð­inu, og þar með Ísland. Hlutfall þeirra Íslend­inga sem eru í hættu á að lenda í fátækt eða félags­legri útskúfun er lægra en allra hinna land­anna sem Eurostat skoðar. Einungis 13 pró­sent lands­manna er í áhættu­hópnum. Það gera samt sem áður um 40 þús­und manns í sam­fé­lagi sem telur um 328 þús­und manns.

Það er líka áhyggju­efni fyrir Ísland að hlut­fall þeirra sem til­heyra þessum áhættu­hópi hefur hækkað tölu­ert frá árinu 2008, þegar það var 11,8 pró­sent. Fjöldi þeirra Íslend­inga sem eru í hættu á að verða fátækur eða félags­lega útskúf­aður hefur því auk­ist um fjögur þús­und, eða um níu pró­sent. Aukning er lang­mest í þeim hópi sem býr á heim­ili þar sem atvinnu­þátt­taka er lítil.

Staðan verst í Búlgaríu og Rúmeníu


Innan Evr­ópu­sam­bands­ins er fjöldi þeirra sem eru í hættu á að lenda í fátækt eða félags­legri útskúfun hlut­falls­lega mestur í Bulgaríu (48 pró­sent), Rúmeníu (40,4 pró­sent), Grikk­landi (35,7 pró­sent), Lett­landi (35,1 pró­sent) og Ung­verja­landi (33,5 pró­sent). Hlut­fallið er lægst í Tékk­landi (14,6 pró­sent), Hollandi (15,9 pró­sent), Finn­landi (16 pró­sent) og Svíþjóð (16,4 pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár