Ríkið hefur út árið til að semja við bankana um skuldaniðurfellingu

Íslenska ríkið hefur enn ekki samið við íslensku við­skipta­bank­ana þrjá um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem á að höf­uð­stólslækka sam­kvæmt leið­rétt­inga­á­formum rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta hefur Kjarninn stað­fest innan úr bönk­unum. Þrátt fyrir það stendur til að kynna opin­ber­lega nið­ur­stöðu leið­rétt­ing­ar­innar næst­kom­andi mánu­dag, 10. nóv­em­ber, og umsækj­endur eiga að geta séð hvað þeir fá í sinn hlut dag­inn eftir, 11. nóv­em­ber.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Tryggva Þór Her­berts­syni, verk­efna­stjóra leið­rétt­ing­ar­innar, þarf sam­komu­lag við við­skipta­bank­ana ekki að liggja fyrir fyrr en 31. des­em­ber næst­kom­andi. Því er hægt að til­kynna fólki um hvað það á að fá á þriðju­dag þótt enn eigi eftir að semja við bank­ana.

Upp­haf­lega átti að til­kynna um nið­ur­stöður leið­rétt­ing­ar­innar um miðjan októ­ber. Tryggvi Þór sagði í sam­tali við Kjarnann í byrjun síð­asta mán­aðar að þá myndu 95 pró­sent þeirra sem sóttu um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra lána fá að vita hvort og þá hversu mikið þeir fá. Það hefur síðan frest­ast nokkrum sinnum og nú hefur verið gefin út loka­dag­setn­ing, þriðju­dag­ur­inn 11. nóv­em­ber.

Ekki tilkynnt sem ríkisaðstoð


Í mars á þessu ári upp­lýstu íslensk stjórn­völd Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) um skulda­leið­rétt­ing­ar­á­form sín. Ástæðan er sú að að sam­kvæmt samn­ingnum um Evrópska Efna­hags­svæðið (EES) þarf að til­kynna um alla aðstoð hins opin­bera sem gæti flokk­ast sem rík­is­að­stoð til eft­ir­lits­ins.

Samkvæmt Andreas Kjelds­berg Pihl, upp­lýs­inga­full­trúa ESA, voru þær upp­lýs­ingar sem stofn­un­inni voru veittar þá ekki nægj­an­legar til þess að hún geti ákvarðað hvort aðgerð­irnar telj­ist rík­is­að­stoð eða ekki. Það sé íslenskra stjórn­valda að til­kynna form­lega til ESA ef aðgerðin mun flokk­ast sem rík­is­að­stoð. Slík form­leg til­kynn­ing hefur ekki borist. ESA fylgist hins vegar með fram­vindu máls­ins.

Bankarnir gætu „hagnast“ á skuldaleiðréttingunni


Ástæða þess að ESA gerir það er sú að mjög mis­mun­andi er hvort lán­veit­endur séu að hagn­ast nið­ur­greiðslu rík­is­sjóðs á höf­uð­stóli hús­næð­is­lána. Í lögum um lækkum höf­uð­stóls verð­tryggðra hús­næð­is­lána sem sam­þykkt voru í maí síð­ast­liðnum segir að miða skuli við „að hvorki skap­ist hagn­aður né tap hjá samn­ings­að­ila vegna greiðslu rík­is­sjóðs á leið­rétt­inga­hluta láns“.

Þar sem ekki liggur fyrir sam­komu­lag við íslensku við­skipta­bank­ana um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem á að höf­uð­stólslækka sam­kvæmt leið­rétt­inga­á­formum rík­is­stjórn­ar­innar er ekki ljóst hvort það mark­mið hafi náðst.

[quote font="0" align="right"]Við­ræð­urnar snú­ast um að við­skipta­bank­arnir fái ekki meira til baka af sumum lánum sínum vegna leið­rétt­ing­ar­innar en þeir gátu vænst ef hún hefði ekki orðið að veru­leika..[/quote]

Við­ræð­urnar snú­ast um að við­skipta­bank­arnir fái ekki meira til baka af sumum lánum sínum vegna leið­rétt­ing­ar­innar en þeir gátu vænst ef hún hefði ekki orðið að veru­leika. Þeir eiga ekki að„hagn­ast“ á fram­kvæmd­inni. Sumir líf­eyr­is­sjóðir sem eru á fyrsta veð­rétti á lánum til sjóðs­fé­laga sína telja sig sömu­leiðis geta „tapað“ hins á því að fá þau upp­greidd, þar sem þeim standa ekki til boða sam­bæri­legir fjár­fest­inga­mögu­leikar fyrir það fé sem þeir fá í stað­inn. Við­ræð­urnar eiga að tryggja að svo verði ekki.

Samn­ings­við­ræður þeirra sem sjá um leið­rétt­ing­ar­á­formin við Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka standa enn yfir og unnið er að útreikn­ingum með það fyrir augum að lausn náist.

Leið­rétt­ing verð­tryggðra hús­næð­is­lána snýst um að rík­is­sjóður greiðir um 72 millj­arða króna í nið­ur­færslur á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Til þess að eiga mögu­leika á leið­rétt­ingu þurfti fólk að sækja um og rann umsókn­ar­frestur út 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Alls bár­ust um 69 þús­und umsóknir áður en frest­ur­inn rann út. Á bak­við þær standa um 105 þús­und manns. Verði allar umsókn­irnar sam­þykktar mun hver og einn fá rúm­lega eina milljón króna í sinn hlut að með­al­tali.

Viðbót klukkan 17:30:

Fyrir mis­tök var því haldið fram í frétt­inni að við­ræður við við­skipta­banka snú­ist um að þeir geti hagn­ast á leið­rétt­ing­unni og að líf­eyr­is­sjóðir gætu tapað á henni. Þar átti vita­skuld að standa að við­ræð­urnar snú­ist um að bank­arnir hagn­ist ekki og að líf­eyr­is­sjóð­irnir tapi ekki. Þetta hefur verið leið­rétt í text­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár