Ferðaáætlanir þúsunda Íslendinga gætu riðlast

Ferða­á­ætl­anir þús­unda far­þega sem hafa bókað flug með íslensku flug­fé­lög­unum Icelandair og Wow air gætu riðl­ast mikið næsta sumar ef EFTA dóm­stóll­inn kemst að þeirri nið­ur­stöðu að úrræði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á Íslandi vegi þyngra en reglur Evrópska Efna­hags­svæð­is­ins þegar kemur að úthlutun afgreiðslu­tíma sem flug­fé­lög fá úthlutað á flug­völlum. Málið er nú í flýti­með­ferð fyrir EFTA-dóm­stólnum og fór mál­flutn­ingur fram síð­ast­lið­inn mánu­dag. Búist er við nið­ur­stöðu fljót­lega.Frá þessu er greint á vefnum Túristi.is.

Lengi verið stuðst við hefðarrétt


Málið snýst um kvörtun Wow air til Sam­keppn­is­yf­ir­valda í febr­úar í fyrra vegna úthlut­unar á tímum fyrir flug til Norður-Ameríku eldsnemma á morgn­anna frá Kefla­vík­ur­flug­velli, nánar til­tekið milli fjögur og hálf sex á morgn­anna. Ástæða þess að þeir tíma eru eft­ir­sókn­ar­verðir er sú að þorri far­þega­þota sem fara með áætl­un­ar­flugi frá Íslandi lenda í útlöndum nokkrum klukku­tímum síðar og snúa svo mjög fljót­lega til baka.

[caption id="attachment_9088" align="aligncenter" width="1024"] Wow air er þegar byrjað að selja ferðir til Banda­ríkj­anna næsta sumar. Álit EFTA-dóm­stóls­ins gæti sett strik í reikn­ing­inn gagn­vart þeim fyr­ir­tætl­unum félags­ins.[/caption]

Innan raða alþjóða­sam­taka flug­valla (IATA) hefur lengi verið stuðst við hefð­ar­rétt á afgreiðslu­tímum flug­valla. Sam­keppn­is­eft­ir­litið koms hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að Wow air fengi tvo af brott­fara­tímum Icelandair á umræddum tíma.

Í flýtimeðferð


Áfrýj­un­ar­nefnd Sam­keppn­is­mála felldi þá ákvörðun úr gildi vegna þess að mál­inu hefði átt að beina að sam­ræm­inga­stjóra,sem sjá um að áætl­anir gangi upp, en ekki Isavia, sem rekur Kefla­vík­ur­flug­völl. Þaðan fór málið til Hæsta­réttar sem óskaði eftir ráð­gef­andi álitið EFTA-dóm­stóls­ins um hvort sam­ræm­inga­stjórin sé bund­inn efvr­ópskum reglum eða megi úthluta afgreiðslu­tíma líkt og Sam­keppn­is­eft­ir­litið fór fram á.

Í grein um málið á Túristi.is segir: „Málið er í flýti­með­ferð hjá dóm­stólnum í Lúx­emburg og fór mál­flutn­ingur fram á mánu­dag­inn. Von er á nið­ur­stöðu fljót­lega. Ef dóm­stóll­inn kemst að þeirri nið­ur­stöðu að úrræði sam­keppn­is­yf­ir­valda vegi þyngra en EES regl­urnar gæti farið svo að stokka þurfi upp sum­ar­dag­skrá Icelandair og WOW air. For­svars­menn WOW air lýstu í síð­ustu viku yfir ánægju með þá flug­tíma sem félagið er með núna og eru byrj­aðir að selja sæti í sínar ferðir. Sum­ar­ferðir Icelandair hafa verið í sölu um langt skeið og því ljóst að ferða­plön þús­unda far­þega gætu riðl­ast. [...]Á næst­unni dögum kemur hins vegar í ljós hvort EFTA dóm­stóll­inn heim­ili að WOW air fái hluta af þeim tímum sem Icelandair notar í dag“.

Til við­bótar er von á úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í máli vegna úthlut­unar á afgreiðslu­tímum fyrir næsta sumar. Ekki er ljóst hvenær nið­ur­staðan verður birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár