Ólafur Ragnar: Svarar ekki hvort hann bjóði sig aftur fram

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, segir ekki tíma­bært að takast á um hvort Íslend­ingar eigi að vinna olíu á Dreka­svæð­inu. Fyrst þurfi að rann­saka hvort þar séu eft­ir­sókn­ar­verðar olíu­lindir. Þá vill hann ekki segja til um á þess­ari stundu hvort hann muni bjóða sig aftur fram í emb­ættið þegar yfir­stand­andi kjör­tíma­bili lýkur eftir tæp tvö ár. Ólafur Ragnar tók þó allan vafa af um það að hann ætlar sér að sitja út kjör­tíma­bilið hið minnsta. Þetta er meðal þess sem for­set­inn tjáði sig um í við­tali við sjón­varps­þátt­inn Eyjuna á Stöð 2.

Siglingar um norðurslóðir ekki framtíðarmúsík


Ólafur Ragnar hefur verið heldur spar á við­töl und­an­farin miss­eri. Kjarninn greindi meðal ann­ars frá því í sumar að for­set­inn hefði ítrekað neitað fyr­ir­spurnum RÚV um við­töl.

Hann mætti hins vegar í við­tal hjá Birni Inga Hrafs­syni á Eyjunni í dag í til­efni þess að Arctic Circle ráð­stefn­unni, sem for­set­inn stendur meðal ann­ars að, lýkur í dag. Á ráð­stefn­unni eru norð­ur­slóð­ar­mál til umfjöll­unar.

[caption id="attachment_11109" align="aligncenter" width="730"] Margir binda vonir við að miklar olíu­lindir á Dreka­svæð­inu muni geta fært Íslend­ingum mik­inn auð.[/caption]

Ólafur Ragnar sagði það mik­inn mis­skiln­ing að skipa­sigl­ingar um norð­ur­slóðir væru fram­tíð­ar­músík. Alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki væru að smíða skip sem munu geta siglt um svæðið án ísbrjóta. For­set­inn sagði að þau myndu ekki ráð­ast í slíkar smíðar nema ef sigl­ing­ar­mögu­leik­arnir væru veru­leiki í dag. Ef skipu­lag athafna og sam­starfs á norð­ur­slóðum mis­tekst telur for­set­inn það muna „koma niður á ger­vallri ver­öld­inni“ vegna loft­lags­breyt­inga.

Ólafur Ragnar var spurður hvort Íslend­ingar ættu að nýta mögu­legar olíu­lindir á Dreka­svæð­inu. Hann sagði ósköp eði­legt að rætt væri um hvað skyldi ganga langt í því en að við gætum leyft okkur að gera rann­sóknir á Dreka­svæð­inu til að sjá hvort það sé hægt að nýta lind­irnar eða ekki. „Við skulum ekki eyða tím­anum í deilur sem eru kannski óþarfar“.

Mikilvægt að binda vinnáttubönd við Breta


Björn Ingi spurði Ólaf Ragnar út í það hvort hann fylgd­ist með hvernig Bretar væru að beita sér bak­við tjöldin til að þrýsta á að greitt væri út úr þrota­búum föllnu íslensku bank­ana. Bæði breska ríkið og bresk fyr­ir­tæki eru á meðal kröfu­hafa. Ólafur Ragnar sagð­ist ekki hafa fylgst „mikið með því hvað Bretar eða aðrir eru að gera bak­við tjöldin.“

Hann rifj­aði í kjöl­farið upp Icesave-málið og að Bretar, Hol­lend­ingar og Evr­ópu­sam­bandið hefðu tapað því máli. Hann hafi hins vegar unnið hart að því að bæta sam­skiptin í kjöl­farið. „Ég hef talið það mik­il­vægt að binda á ný vin­áttu­böndin við Bretland“, sagði Ólafur Ragnar.

Eyjan ekki vettvangur fyrir yfirlýsingu


Undir lok þátt­ar­ins var stutt­lega rætt um hvort Ólafur Ragnar ætl­aði sér að sitja út yfir­stand­andi kjör­tíma­bil, en yfir­lýs­ingar hans um það hafa verið afar mis­vísandi. For­set­inn tók af allan vafa um að hann ætlar sér ekki frá að hverfa fyrr en í fysta lagi þegar kjör­tíma­bilið verður á enda runnið, eftir tæp tvö ár.

Aðspurður úti­lok­aði Ólafur Ragnar ekki hvort hann hygg­ist bjóða sig aftur fram, en hann mun hafa setið á for­seta­stóli í 20 ár þegar kjör­tíma­bilið verður á enda runnið. For­set­inn sagði þátt Eyjunnar ekki vera vett­vang fyrir að til­kynna um slíka ákvörðun. Hefð sé fyrir því að for­setar lands­ins til­kynni um hvort þeir ætli að hætta eður ei í nýársávarpi eða við setn­ingu þings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár