Áskriftarsala að tónlist á netinu jókst um 40 prósent á milli ára

Árið 2013 greiddu um 28 millj­ónir manna fyrir áskrift að tón­list á inter­net­inu, sem er aukn­ing um 40 pró­sent frá árinu á undan. Á sama tíma hækk­uðu tekjur af tón­list­ar­á­skriftum um 51 pró­sent á milli ára, en tekj­urnar hafa þre­fald­ast frá árinu 2010. Óhætt er að tala um spren­ing­inu í þessum efnum, því árið 2010 greiddu aðeins um átta millj­ónir manna fyrir aðgang að tón­list­ar­veitum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í frétt á vef­síðu IFPI, sem eru sam­tök tón­list­ar­út­gef­enda út um víða ver­öld.

Plötusala enn stærsta tekjulind útgefenda


Þrátt fyrir sívax­andi vin­sældir tón­list­ar­veitna á net­inu, á borð við Spotify og Deezer, er plötu­sala enn stærsta tekju­lind útgef­enda, og fer ört vax­andi. Þá heldur vín­il­plötu­sala áfram að aukast á milli ára, þó tekjur af sölu þeirra séu enn sára­litlar í stóra sam­heng­inu. Engu að síður jókst vín­il­plötu­sala um 32 pró­sent í Banda­ríkj­unum og 101 pró­sent á Bret­landseyjum á milli áranna 2012 og 2013.

Á síð­asta ári var hlut­fall plötu­sölu af tekjum útgef­enda um 51 pró­sent, tekjur af tón­list­ar­veitum voru um 39 pró­sent af heild­ar­tekjum tón­list­ar­út­gef­enda, um sjö pró­sent tekn­anna komu í gegnum rétt­inda­greiðslna vegna útvarps­spil­anna og tón­leika­halds og þá nam hlut­fall tekn­anna vegna tón­list­ar­notk­unar í sjón­varps­þáttum og kvik­myndum brans­anum um tveimur pró­sentum.

Tekjur af stafrænni miðlun tónlistar námu 5,9 milljörðum Bandaríkjadölum


Heild­ar­tekjur tón­list­ar­geirans vegna staf­rænnar miðl­unar tón­listar námu um 5,9 millj­örðum banda­ríkja­dölum á síð­asta ári, og hækk­uðu um 4,3 pró­sent á milli ára. Tekju­aukn­ing­una má helst skýra með mik­illi fjölgun tón­list­ar­á­skrif­enda og seldu tón­list­ar­nið­ur­hali.

VÍB, eða eigna­stýr­ing­ar­þjón­usta Íslands­banka, heldur fund um fjár­mál í íslenskri tón­list á morgun. Fund­ur­inn verður hald­inn á Kex Hostel við Skúla­götu og hefst klukkan 17:00. Þar verður meðal ann­ars rætt um þá fjár­fest­ingu sem felst í að koma íslensku tón­list­ar­fólki á fram­færi erlendis og hver greiði fyrir slíkt. Þá verður sömu­leiðis farið yfir tekjur í tón­list­ar­heim­inum í dag, og þá breyt­ingu sem orðið hefur í þeim efnum á und­an­förnum árum. Þar verður leit­ast við að svara spurn­ing­unni: "Hvaðan koma tekj­urnar og hverjir fá þær í raun?" Eins og kunn­ugt er hefst Iceland Airwaves tón­list­ar­há­tíðin í næstu viku, en hátíðin hefur í gegnum tíð­ina reynst íslenskum hljóm­sveitum vel við að vekja athygli á tón­list sinni á heims­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár