Segir endurskoðanda hafa verið rekinn fyrir að vera heiðarlegur

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, skrifar grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann segir að end­ur­skoð­andi sem starf­aði hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafi verið rek­inn fyrir að vera heið­ar­legur. End­ur­skoð­and­inn, Þor­steinn Har­alds­son, sendi orð­send­ingu til fjár­mála­ráð­herra vegna þess að hann taldi rík­is­skatt­stjóra hafa mis­beitt valdi sínu þegar hann ákvað að sleppa Stoðum, áður FL Group, við greiðslu 13 millj­arða króna skatta­skuldar sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafði talið að leggja ætti á félagið.

Þor­steinn höfð­aði mál gegn íslenska rík­inu vegna upp­sagn­ar­innar. Hæsti­réttur dæmdi honum í vil í síð­ustu viku. Íslenska rík­inu var gert að greiða Þor­steini 6,5 millj­ónir króna auk drátt­ar­vaxta og máls­kostn­aðar. Heild­ar­greiðsla til Þor­steins er því lík­lega á bil­inu níu til tíu millj­ónir króna.

Sagt upp 62 ára


Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að Þor­steinn hafi veri sagt upp störfum hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra árið 2012 og upp­sögnin hafi verið rök­studd með því að emb­ætt­inu hefði verið gert að sæta nið­ur­skurði sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi. Mánuði áður en upp­sagn­ar­frestur Þor­steins var lið­inn var hins vegar hætt við þann nið­ur­skurð og í kjöl­farið höfð­aði Þor­steinn mál vegna ólg­mætrar upp­sagnar. Þor­steinn var 62 ára þegar honum var sagt upp störfum.

Í grein Jóns Steinars segir að upp­sögnin hafi átt sér annan aðdra­ganga en nið­ur­skurð. „Svo stóð á að skatt­rann­sókn­ar­stjóri rík­is­ins hafði á árinu 2008 tekið til rann­sóknar skatt­skil fyr­ir­tæk­is­ins Stoðir hf. (áður FL Group hf.), meðal ann­ars vegna ætl­aðrar van­greiðslu tekju­skatts frá rekstr­ar­ár­inu 2006. Hafði fyr­ir­tækið í skatt­skilum sínum 2007 talið sér heim­ilt að fresta skatt­skilum af sölu­hagn­aði hluta­bréfa­við­skipta að fjár­hæð um 50 millj­arðar króna. Lá fyrir að sölu­hagn­aður þessi hefði leitt til um 13 millj­arða króna skatt­greiðslu félags­ins, sem aldrei átti sér stað vegna síð­ari laga­breyt­inga. Taldi skatt­rann­sókn­ar­stjóri að leggja hefði átt við­bót­ar­skatt­inn á enda væri það í sam­ræmi við þá túlkun skatta­laga sem rík­is­skatt­stjóri hefði beitt í eldri úrskurði og aðrir gjald­endur því talið sér skylt að fara eftir. Svo fór að rík­is­skatt­stjóri ákvað að fella málið niður og sleppa þessum gjald­anda þar með við greiðslu skatts­ins, sem eins og áður sagði nam um 13 millj­örðum króna“.

Segir ástæðu uppsagnar ekki fara á milli mála


Jón Steinar segir að Þor­steinn end­ur­skoð­andi hafi verið starfs­maður skatt­rann­sókn­ar­stjóra á þeim tíma sem skatt­rann­sóknin stóð yfir og að hann hafi meðal ann­ars unnið við hana. „Hann fylgd­ist því með þeim ákvörð­unum sem teknar voru á grund­velli rann­sókn­ar­innar og taldi að hér hefði verið tekin ákvörðun sem væri and­stæð lögum og fæli í sér grófa mis­munun milli gjald­enda. Að auki yrði rík­is­sjóður af háum skatt­tekjum vegna afgreiðslu máls­ins[...]Eftir að hafa meðal ann­ars leitað ráða hjá einum af nefnd­ar­mönnum í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um við­brögð við því að verða sem starfs­maður vitni að slíkri mis­notkun valds til skatt­á­lagn­ingar, ákvað Þor­steinn að senda orð­send­ingu um málið til fjár­mála­ráð­herra sem fer með eft­ir­lit með með­ferð rík­is­skatt­stjóra á valdi sínu. Ráðherra sá ekki ástæðu til að bregð­ast neitt við þessu. Hins vegar leiddi þetta til þess að Þor­steinn fékk frá yfir­mönnum sínum til­kynn­ingu um að til stæði að áminna hann fyrir brot í starfi vegna bréfs­ins, en slík áminn­ing er sam­kvæmt lögum und­an­fari brott­vikn­ingar.“

Í kjöl­far þess að Þor­steinn mót­mælti yfir­von­andi áminn­ingu skrif­lega var honum til­kynnt að fallið hefði verið frá henni. Mánuði síðar var hann rek­inn vegna nið­ur­skurðar. Jón Steinar segir að ekki fari mikið á milli mála hver raun­veru­leg ástæða upp­sagn­ar­innar var. „Núna liggur fyrir að yfir­menn Þor­steins Har­alds­sonar bök­uðu rík­is­sjóði bóta­skyldu með því að reka hann. Hann var í reynd rek­inn fyrir að vera heið­ar­legur. Rík­is­skatt­stjór­inn sem ákvað hins vegar með einu penna­striki að sleppa álagn­ingu tekju­skatts sem um mun­aði situr áfram í emb­ætti og rær í gráðið. Enginn veit ástæð­una fyrir því að mað­ur­inn tók ákvörðun sína. Og eng­inn mun fá að vita hana, því á Íslandi kom­ast menn einatt upp með mis­notkun opin­bers valds síns ef mis­notk­unin er nógu stór­felld og unnt reyn­ist að skýra hana með orðum sem eng­inn skilur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár