Halla Sigrún Hjartadóttir hættir sem formaður FME í lok árs

Halla Sigrún Hjart­ar­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), mun ekki óska eftir því að skipun hennar verði fram­lengd þegar hún rennur út í lok árs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá henni. Halla Sigrún hagn­að­ist um lið­lega 830 millj­ón­ir króna þegar gengið var frá sölu á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/​F Magn í lok árs 2013. Frá þessu var greint í Morg­un­blað­inu í gær. Í blað­inu kemur enn fremur fram að Halla Sigrún hafi neitað því að hafa átt í Skelj­ungi til þessa, en hún var skipuð for­maður stjórnar FME í des­em­ber í fyrra.

Í yfir­lýs­ing­unni segir enn­fremur:„Ég geri mér grein fyrir því að gerð er rík krafa til ein­stak­linga sem taka að sér störf á vegum hins opin­bera. Á það ekki síst við um for­mennsku í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þeir sem taka að sér slík störf þurfa að þola að um þá sé fjallað og geri ég engar athuga­semdir við það. Hins vegar finnst mér langt til seilst þegar við­skipti mín eru gerð tor­tryggi­leg og fræjum efa­semda sáð um heil­indi mín. Þegar við bæt­ist að fjöl­skylda mín er áreitt af frétta­mönnum get ég ekki annað en brugð­ist við."

Yfir­lýs­ing frá Höllu Sigrúnu Hjart­ar­dóttur

Af gefnu til­efni vil ég taka fram að í öllum mínum fjár­fest­ingum hef ég ávallt farið eftir gild­andi lögum og reglum. Ég hef gætt þess að upp­lýsa alla hlut­að­eig­andi aðila um þátt­töku mína í íslensku atvinnu­lífi þegar það hefur átt við. Mér þykir miður þegar reynt er að gera þessi per­sónu­legu við­skipti mín tor­tryggi­leg, ekki síst þegar gefið er í skyn að ég hafi ekki gætt að hugs­an­legum hags­muna­á­rekstrum í störfum mínum eða jafn­vel sagt ósatt. Slíkar ásak­anir tek ég alvar­lega.

Í umfjöllun fjöl­miðla hefur því verið haldið fram að ég hafi verið hlut­hafi í Skelj­ungi og hagn­ast á sölu félags­ins seint á síð­asta ári. Þetta er ekki rétt. Ég keypti hlut í fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/F Magn í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Hedda ehf. sum­arið 2011. Íslands­banki, þar sem ég starf­aði áður, hafði ekk­ert með þessi við­skipti að gera enda var P/F Magn keypt af þrota­búi Fons eign­ar­halds­fé­lagi. Hlut minn í Heddu ehf. keypti ég af eig­endum Skelj­ungs. Eigendur Skelj­ungs tóku síðar þá ákvörðun að Skelj­ungur eign­að­ist hlut þeirra í Heddu ehf., og greiddi með bréfum í félag­inu. Þótt bréf í Skelj­ungi væru í eigu Heddu ehf. voru þau sér­eign eig­enda Skelj­ungs. Ég átti aldrei hlut í Skelj­ungi, né hafði ég nokkurn tíma fjár­hags­legan ávinn­ing af því félagi.

Ég hef kosið að ræða ekki per­sónu­leg fjár­mál við fjöl­miðla. Hins vegar hef ég ávallt upp­lýst alla sem eiga hags­muna að gæta um aðkomu mína að þessum við­skiptum og öðrum. Á það við um fyrrum vinnu­veit­endur og þegar ég sett­ist í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í des­em­ber 2013, þegar farið var ítar­lega yfir öll mín umsvif og engu haldið eftir.

Ég geri mér grein fyrir því að gerð er rík krafa til ein­stak­linga sem taka að sér störf á vegum hins opin­bera. Á það ekki síst við um for­mennsku í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þeir sem taka að sér slík störf þurfa að þola að um þá sé fjallað og geri ég engar athuga­semdir við það. Hins vegar finnst mér langt til seilst þegar við­skipti mín eru gerð tor­tryggi­leg og fræjum efa­semda sáð um heil­indi mín. Þegar við bæt­ist að fjöl­skylda mín er áreitt af frétta­mönnum get ég ekki annað en brugð­ist við. Ég hef því til­kynnt fjár­mála­ráð­herra að ég muni ekki óska eftir því að skipun mín sem stjórn­ar­for­manns Fjár­mála­eft­ir­lits­ins verði fram­lengd þegar hún rennur út í lok árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár