Ungverjar mótmæla harðlega internet-skatti stjórnvalda

Um eitt hund­rað þús­und Ung­verjar söfn­uð­ust saman í höf­uð­borg lands­ins, Budapest, í gær til að mót­mæla fyr­ir­hug­uðum skatti stjórn­valda á gagna­magn á inter­net­inu. Þá vildi mann­söfn­uð­ur­inn sömu­leiðis láta í ljós óánægju sína með for­sæt­is­ráð­herr­ann Viktor Orban, ein­ræð­istil­burði hans og stefnu rík­is­stjórn­ar­innar sem hneig­ist í þá átt minnka sam­skipti við aðrar þjóðir Evr­ópu­sam­bands­ins. Reuters greinir frá mál­inu.

Mótmælin í gær voru þau stærstu síðan Viktor Orban komst til valda árið 2010, en þrátt fyrir að hafa verið sökuð um ein­ræð­istil­burði í valda­tíð sinni, var rík­is­stjórn hans end­ur­kjörin með miklum yfir­burðum á síð­asta ári.

Í tíð sinni hefur rík­is­stjórnin skatt­lagt sér­stak­lega banka­kerfið, smá­söl­una, og orku- og fjar­skipta­geir­ann til að halda rík­is­fjár­mál­unum á áætlun, en sam­hliða hefur hún stefnt í hættu hagn­aði í ýmsum kimum hag­kerf­is­ins og gert alþjóð­lega fjár­festa tauga­ó­styrka.

Áform stjórn­valda um sér­staka skatt­lagn­ingu á gagna­magn á inter­net­inu komst í hámæli í Ung­verja­landi í síð­ustu viku. Strax í kjöl­farið mót­mæltu fjar­skipta­fyr­ir­tækin áformunum, sem og við­skipta­vinir þeirra sem sögðu skatt­lagn­ing­una ólýð­ræð­is­lega.

Mótmælin í gær voru skipu­lögð í gegnum Facebook. Mann­fjöld­inn ark­aði í gegnum mið­borg Budapest og krafð­ist þess að horfið yrði frá skatt­lagn­ing­unni og að for­sæt­is­ráð­herra lands­ins færi frá völdum. Margir mót­mæl­endur héldu á lofti kröfu­skiltum með áletr­un­inni "ERROR," og "Hversu oft ætlið þið að féfletta okkur?"

Internet-skattur lækkaður eftir fyrri mótmæli


Stjórn­völd í Ung­verja­landi ætl­uðu í upp­hafi að skatt­leggja hvert gíga­bæt á 150 ung­versk for­int, eða sem sam­svarar 75 íslenskum krónum. Eftir útreikn­inga grein­ing­ar­að­ila, sem sýndu fram á að skatt­lagn­ingin myndi skila rík­is­sjóði Ung­verja­lands meiru en sem nemur hagn­aði fjar­skipta­geirans, og mót­mæli á sunnu­dag­inn sem þús­undir manna tóku þátt í, ákváðu stjórn­völd að setja sér­stakt þak á inter­net-skatt­inn; 700 for­ints á ein­stak­linga (350 ísk. krónur) og 5.000 for­ints á fyr­ir­tæki (2.500 ísk. krónur).

Þessi ákvörðun gerði engu að síður lítið til að draga úr reiði Ungverja, eins og mót­mælin í gær bera með sér.

Rík­is­stjórn Orban hefur vísað á bug ásök­unum um ólýð­ræð­is­legar áherslur, og segir að mark­mið hennar sé að deila skatt­byrði rík­is­ins jafnt á alla geira efna­hags­lífs­ins. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur sömu­leiðis gagn­rýnt fyr­ir­hug­aðan inter­net-skatt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár