Þróunarkenningin er rökrétt og Guð var enginn töframaður

Hinar alþekktu og víð­tækt sam­þykktu skýr­ingar á þróun lífs­ins, það er þró­un­ar­kenn­ing Darwins og kenn­ingin um stóra hvell (big bang), eiga við rök að styðj­ast og full­gildar. Þessu hélt Francis páfi fram í ræðu í gær. Yfir­lýs­ing sem þessi þykir sæta nokkrum tíð­indum, ekki síst þar sem ýmsir æðstu prestar og leið­togar kaþ­ólsku kirkj­unnar á heims­vísu hafa aldrei sam­þykkt þessar vís­inda­legu skýr­ingar á mann­líf­inu. Texti trú­ar­rit­anna er tek­inn bók­staf­lega af mörgum þeirra og hélt Benedikt XVI páfi því stað­fast­lega fram að Guð hefði skapað heim­inn á sex dögum, og sam­þykkti aldrei kenn­ingar vís­ind­anna, í það minnsta ekki opin­ber­lega.

Francis páfi sagði að fólki hætti til að sjá Guð fyrir sér sem töfra­m­ann með sprota en reyndin væri allt önnur. Guð hefði skapað mann­inn og leyft þróun hans að verða í sam­ræmi við lög­mál vís­ind­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár