Ómönnuð geimflaug sprakk í flugtaki

Banda­rísk ómönnuð geim­flaug sem átti að bera tækni- og rann­sókn­ar­búnað til Alþjóð­legu geim­stöðv­ar­innar sprakk í loft upp þegar hún hafði aðeins risið fáeina tugi metra frá jörðu. Geimskotið var klukkan 22:22 í kvöld að íslenskum tíma. Engar vís­bend­ingar eru um að fólk hafi slasast og fyrstu kann­anir á skot­pall­inum benda til þess að tak­mark­aðar skemmdir hafa orðið.

Geimskotið var á vegum einka­fyr­ir­tæk­is­ins Orbital Sciences og flaugin þeirra smíð. Orbital Sciences er eitt fárra einka­fyr­ir­tækja sem sinna geim­ferðum NASA til geim­stöðv­ar­innar, en eftir að Geimsku­tlu­á­ætlun NASA var lögð niður hafa einka­fyr­ir­tæki séð um ferðir Banda­ríkja­manna til geim­stöðv­ar­innar.

Sex sek­úndum eftir að flaugin lift­ist frá skot­palli Orbital Sciences í Virginíu-ríki í Banda­ríkj­unum virð­ist neisti hafa kom­ist í full­hlaðna elds­neytistanka flaug­ar­innar. Antares átti sam­kvæmt áætl­unum að fara í loftið á mánu­dag­inn en var frestað þegar bátur fór inn fyrir örygg­is­svæði tíu mín­útum áður en flaugin átti að fara á loft.

Flaugin bar ekki aðeins rúm­lega tvö tonn af bún­aði fyrir Alþjóð­legu geim­stöð­ina heldur voru um borð gervi­hnettir sem setja átti á spor­braut um jörðu. Meðal birgða sem átti að flytja í geim­stöð­ina var matur og vatn fyrir geim­fara sem sinna rann­sóknum í geimnum. Antares-flaug­inni hafði verið breytt örlítið til að bera enn meiri far­angur en fyrri flaugar af sömu gerð.

Geimskotið var fjórða verk­efni Orbital Sciences fyrir NASA og hluti af 1,9 millj­arða doll­ara samn­ingi banda­rísku geim­ferða­stofn­un­ar­innar við einka­fyr­ir­tækið. Space X er einnig á samn­ingi hjá NASA um að sjá geim­stöð­inni fyrir birgðum.

Fjallað var um geim­ferða­á­ætl­anir einka­fyr­ir­tækja í hlað­varps­þætt­inum ÞUKL í Hlað­varpi Kjarnans fyrr í októ­ber.

Bein útstending frá skotstað í Virginíu

Uppfært klukkan 22:55: Ranglega var sagt að fyr­ir­tækið sem stæði fyrir geimskot­inu héti Antares. Hið rétta er að það heitir Orbital Sciences en geim­flaugin sem sprakk var kölluð Antares.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár