Skattrannsóknarstjóri fékk nöfn 50 aðila í skattaskjólum

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fékk nöfn 50 íslenskra aðila sem vís­bend­ingar eru um að hafi stundað skattaund­an­skot frá manni sem bauð emb­ætt­inu slík gögn til sölu. Embættið fékk um tíu pró­sent þeirra gagna sem erlendur aðili seg­ist vera með undir höndum, og snúa að Íslandi, afhent sem sýn­is­horn. Þetta stað­festir Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri, í sam­tali við Kjarnann. Sá sem sendi sýn­is­hornið vill fá greitt fyrir að afhenda öll gögnin sem hann hefur undir höndum. Þau inni­halda nöfn mörg hund­ruð íslenskra aðila sem grunur er um að hafi skotið fé undan skatti.

Í lok síð­asta mán­aðar sendi emb­ætti Skatt­rann­sókn­ar­stjóra grein­ar­gerð til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins eftir að hafa farið yfir sýn­is­hornin 50, enda bentu þau sterk­lega til þess að skattaund­and­skot hafi átt sér stað. Það er fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins að taka ákvörðun um hvort gögnin verði keypt, en ekki hefur feng­ist upp­gefið hvað selj­and­inn vill fá fyrir þau. Bryndís segir bolt­ann enn vera hjá ráðu­neyt­inu og að henni sé kunn­ugt um að þar sé í gangi ákveð­inn vinna vegna máls­ins. Engin tíma­mörk hafi verið sett um hvenær þeirri vinnu ætti að vera lokið.

[quote font="0" align="right"]Bryndís segir bolt­ann enn vera hjá ráðu­neyt­inu og að henni sé kunn­ugt um að þar sé í gangi ákveð­inn vinna vegna máls­ins. Engin tíma­mörk hafi verið sett um hvenær þeirri vinnu ætti að vera lokið.[/quote]

Íslensk yfir­völd hafa aldrei keypt gögn sem þessi. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur hins vegar sagt opin­ber­lega að það komi fylli­lega til greina að kaupa gögnin.

Bæði banda­rísk og þýsk stjórn­völd hafa farið þá leið að kaupa gögn um skattaund­an­skot þegna sinna frá aðilum sem hafa boðið þau til sölu. Þýsk stjórn­völd greiddu til að mynda um 20 millj­ónir evra fyrir slík gögn á árunum 2006 til 2012. Samkvæmt frétt Der Spiegel um kaupin var ávinn­ingur þýska rík­is­ins vegna kaupanna marg­faldur, eða um tvö þús­und millj­ónir evra.

Uppgefnar erlendar fjármunaeignir 1.500 milljarðar


Á útrás­ar­ár­unum var enda lenska að geyma eign­ar­hald fyr­ir­tækja, og pen­inga, á fram­andi slóðum. Útibú eða dótt­ur­fé­lög íslensku bank­anna settu upp allskyns félög fyrir við­skipta­vini sína í Lúx­em­borg, Hollandi, á Kýpur, Mön og eyj­unum Jersey og Guernsey þar sem banka­leynd var, og er, rík.

Auk þess var mikið um það að stofnuð væru félög á Bresku Jóm­rú­areyj­unum fyrir við­skipta­vini þeirra, nánar til­tekið á Tortóla-eyju. Félögin skiptu hund­ruðum og lang­flest þeirra voru stofnuð í Kaup­þingi í Lúx­em­borg, sem hélt sér­stakar kynn­ingar fyrir við­skipta­vini sína til að sýna fram á hag­ræðið sem fékkst af því að geyma t.d. ávinn­ing af hluta­bréfa­sölu í aflands­fé­lög­unum og greiða sér síðan arð úr þeim. Þannig komust þeir aðilar sem áttu þessi félög meðal ann­ars hjá því að greiða skatta á Íslandi.

[caption id="attachment_10685" align="aligncenter" width="600"] Kaupþing í Lúx­em­borg hélt á sínum tíma sér­stakar kynn­ingar fyrir við­skipta­vini sína til að sýna fram á hag­ræðið sem fékkst af því að geyma t.d. ávinn­ing af hluta­bréfa­sölu í aflands­fé­lög­unum og greiða sér síðan arð úr þeim. Þannig komust þeir aðilar sem áttu þessi félög meðal ann­ars hjá því að greiða skatta á Íslandi.[/caption]

Í lok síð­asta árs, rúmum fimm árum eftir banka­hrun og setn­ingu gjald­eyr­is­hafta, áttu Íslend­ingar enn tæpa 1.500 millj­arða króna í erlendri fjár­muna­eign. Um er að ræða annað hvort eigið fé eða lán­veit­ingar á milli aðila í sömu eigu. Á meðal þess sem kemur fram í töl­unum er að Íslenskir aðilar eigi 28,5 millj­arða króna eignir á Tortóla-eyju. Eignir Íslend­inga þar hafa snar­auk­ist að raun­virði síðan fyrir hrun, en í árs­lok 2007 áttu þeir 8,4 millj­arða króna á eyj­unum. Geng­is­fall krón­unnar skýrir aukn­ing­una að ein­hverju leyti.

Mest af erlendum auði Íslend­inga er í Evrópu, rúmir 1.000 millj­arðar króna. Tæplega 400 millj­arðar króna eru í Amer­íku­álf­unum og um 30 millj­arðar króna ann­ars­staðar í heim­inum.

Stór hluti eign­anna, 651,2 millj­arður króna, er vistaður í eign­ar­halds­fé­lögum. Til sam­an­burðar eru eignir þeirra sem stunda fram­leiðslu, til dæms í mat­væla- eða efna­iðn­aði, 491 millj­arður króna. Eignir sem vistaðar eru í eign­ar­halds­fé­lögum hafa vaxið mjög á und­an­förnum árum. Árið 2007 nam virði þeirra til að mynda 287 millj­örðum króna.

Byrjaði með skattahagræði


Stofnun félaga á Tortóla-eyju hófst um miðjan tíunda ára­tug­inn þegar íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki fóru að bjóða stórum við­skipta­vinum sínum að láta sölu­hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum renna í slík félög. Á þeim tíma voru skatta­lög á Íslandi þannig að greiddur var tíu pró­sent skattur af slíkum sölu­hagn­aði upp að 3,2 millj­ónum króna. Allur annar hagn­aður umfram þá upp­hæð var skatt­lagður eins og hverjar aðrar tekjur, sem á þeim tíma þýddi 45 pró­sent skattur.

[quote font="0" align="right"]Stofnun félaga á Tortóla-eyju hófst um miðjan tíunda ára­tug­inn þegar íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki fóru að bjóða stórum við­skipta­vinum sínum að láta sölu­hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum renna í slík félög.[/quote]

Lögum um skatt­lagn­ingu fjár­magnstekna var hins vegar breytt um ald­ar­mótin og eftir þá breyt­ingu var allur sölu­hagn­aður af hluta­bréfum skatt­lagður um tíu pró­sent. Við það varð íslenskt skattaum­hverfi afar sam­keppn­is­hæft og skatta­hag­ræðið af því að geyma eignir inni í þessum félögum hvarf. Frá þeim tíma voru ný félög því aðal­lega stofnuð til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald eða til að dylja tekjur eða eignir sem eitt­hvað athuga­vert var við hvernig mynd­uð­ust.

Engir ársreikningar, engar bankaupplýsingar


Þær tölur um eignir á stöðum eins og Tortóla-eyju eru, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, ekki taldar tæm­andi fyrir þær eignir íslenskra ein­stak­linga og félaga þar.

Þótt banka­reikn­ingar, eða verð­bréf í þeirra eigu, séu skráð á félög á stöðum eins og Tortóla, þá eru fjár­mun­irnir þó ekki raun­veru­lega geymdir þar. Í til­felli Íslend­inga er, líkt og áður sagði, oft­ast um að ræða­banka­reikn­inga eða félög sem stofnuð voru af gömlu íslensku bönk­unum í Lúx­em­borg. Fjár­mun­irnir sjálfir voru og eru síðan geymdir þar þótt þeir séu skráðir til heim­ilis á meira fram­andi slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár