Útvarpsþátturinn Rokkland, sem hefur verið óslitið á dagskrá Rásar 2 í hverri viku frá haustinu 1995, er kominn í frí fram í mars. Ólafur Páll Gunnarsson, sem hefur haft umsjón með þættinum í þau 19 ár sem hann hefur verið í loftinu, tilkynnti þetta í lok þáttarins í gær. „Ég var beðinn um að taka mér smá pásu í fjóra mánuði [...]það verður gott að fá smá frí, og kannski verða einhverjir aðrir fegnir,“ sagði Ólafur Páll við hlustendur sína á þessum tímamótum.
[caption id="attachment_10641" align="alignright" width="150"] Ólafur Páll Gunnarsson var 26 ára þegar Rokkland hóf göngu sína. Hann er nú 45 ára.[/caption]
Í stað Rokklandsins munu hinir ógurlega vinsælu þættir „Árið Er“ hefja göngu sína á ný. Nú verður farið yfir árin 2006 og út tónlistarárið 2013, en þættirnir voru settir á ís í niðurskurðaraðgerðum hjá RÚV sem áttu sér stað í lok síðasta árs.
Í Bakherberginu er pískrað um að það sé alveg möguleiki á því að það sem verði sett á ís núna hjá RÚV eigi mögulega ekki afturkvæmt. Ef stjórnmálamenn ákveða að RÚV fái ekki útvarpsgjaldið að fullu, heldur endurskilgreini hlutverk fyrirtækisins og láti það skera burtu stóra liði í þeirri dagskrá sem nú er boðið upp á, gæti Rokkland og margir fleiri gamlir vinir margra heyrt sögunni til.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir