Erlendar tekjur af Tempo jukust um 86 prósent á milli ára

Nýherji hagn­að­ist um 137 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2014. Þetta kom fram í kynn­ingu Finns Odds­sonar, for­stjóra Nýherja, á níu mán­aða upp­gjöri félags­ins sem fram fór í dag.

Nýherji tap­aði alls 1.608 millj­ónum króna á árinu 2013, að mestu vegna virð­is­rýrn­unar á við­skipta­vild upp á 1,2 millj­arða króna. Því er um mik­inn við­snún­ing að ræða.

Í kynn­ing­unni kemur fram að lang­mesta aukn­ingin á tekjum sé innan TM Software, dótt­ur­fyr­ir­tækis Nýherja. Alls hafa tekjur TM Software auk­ist um þriðj­ung það sem af er ári og eru nú 1.189 millj­ónir króna. Um 44 pró­sent tekn­anna, rúm­lega hálfur millj­arður króna, er til­kom­inn vegna Tempo-vöru­lín­unnar. Hún býður upp á heild­ar­lausnir fyrir verk­bók­hald, verk­efna­stjórnun, auð­linda­stjórnun og við­skipta­grein­ingu, ásamt fleiru. Tempo lausn­inar eru hann­aðar sem við­bætur við verk­beiðna- og þjón­ustu­kerfið JIRA frá ástr­alska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Atlassian.

Tempo hefur vaxið gríð­ar­lega hratt innan TM Software og sam­kvæmt kynn­ingunnu hafa erlendar tekjur af Tempo vaxið um 86 pró­sent milli ára. Við­skipta­vinir Tempo eru yfir fimm þús­und og má þar nefna stór­fyr­ir­tæki á borð við Dell, Samsung, Ebay, Amazon, Intel og Deutsche Bank.

Kjarninn fjall­aði í maí um hinn mikla vöxt TM Software og Tempo í mynd­bandsum­fjöllun sinni um frum­kvöðla­starf og nýsköpun af ýmsu tagi í tengslum við Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­al­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár