Um 4.500 hafa skráð sig sem líffæragjafar á þremur dögum

„Þegar við fórum inn í grunn­inn í morgun voru 4.533 búnir að skrá sig,“ segir Jórlaug Heim­is­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu, aðspurð um hversu margir hafi skráð sig sem líf­færa­gjafar í mið­lægan gagna­grunn um slíka sem opn­aður var form­lega síð­ast­lið­inn föstu­dag. Sá fjöldi sem Jórlaug nefnir hefur því skráð sig sem líf­færa­gjafar á þremur dögum. Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra var fyrstur til að skrá sig í grunn­inn þegar hann var opn­aður form­lega síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Hún segir áhugan vera framar vænt­ingum og greini­legt að hið ein­falda aðgengi sem raf­ræn skrán­ing með íslykli opnar fyrir geri það að verkum að mun fleiri skrá sig en ella.

Vissu ekki hvað líffæragjafar voru margir


Jórlaug segir að áður en gagn­r­grunn­ur­inn var opn­aður hafi emb­ætti Land­læknis ekki haft hug­mynd um hversu margir Íslend­ingar væru líf­færa­gjafar. „eru því ákveðin tíma­mót að við séum komin með þennan raf­ræna grunn. Áður vorum við bara með þessa bæk­linga sem við dreifðum í apó­tek og heil­brigð­is­stofn­anir. Fólk skráði síðan vilja sinn á þessi líf­færa­gjafa­kort sem það geymdi með per­sónu­skil­ríkjum í vesk­inu sínu. Við höfðum hins vegar enga hug­mynd um hversu margir voru skráðir líf­færa­gjafar.“

Í nið­ur­stöðum könn­unar, þar sem kannað var við­horf til ætl­aðs sam­þykkis líf­færa­gjafar og birt­ist nýverið í Lækna­blað­inu, kom í ljós að ein­ungis örfáir þeirra sem svör­uðu, og voru hlynntir líf­færa­gjöf, voru búnir að skrá afstöðu sína. „Þetta skiptir því miklu máli. Og það sem skiptir ekki síður máli er að upp­lýs­ing­arnar úr þessum grunni eru nú aðgengi­legar starfs­fólki gjör­gæslu- og slysa­deilda allan sól­ar­hring­inn í gegnum ákveðið raf­rænt kerfi. Það er þangað sem þessar upp­lýs­ingar eiga erindi.“

Engin aldursmörk og samkynhneigðir mega gefa líffæri


Að sögn Jór­laugar er áhug­inn ekk­ert að dvína og fyr­ir­spurnum um lífæra­gjöf rignir inn til hennar. „Margar eru um praktískt atriði eins og hvort það séu ald­urs­mörk, sem er ekki. Ég hef líka fengið fyr­ir­spurnir frá sam­kyn­hneigðum hvort þeir megi ger­ast líf­færa­gjafar, vegna þess að það eru ákveðnar tam­kark­anir á að þeir megi gefa blóð. Þeir mega það sann­ar­lega því það er þannig að það geta allir skráð sig sem líf­færa­gjafar. Það eru allir mögu­legir líf­færa­gjafar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár