Margar byssur í íslenskum undirheimum

Miklar umræður hafa verið und­an­farna daga um þörf íslensku lög­regl­unnar fyrir skot­vopn eftir að opin­berað var að hún, og Land­helg­is­gæslan, hafa fengið nokkur hund­ruð MP5-hríð­skota­byssur frá Norska hernum und­an­farin miss­eri án þess að upp­lýst hefði verið með nokkrum hætti um það opin­ber­lega. Enn liggur ekki ljóst fyrir hvort greiða þurfi fyrir vopnin eða hvort þau séu gjöf né hver það var sem tók ákvörðun um að fá þau.

Í jan­úar síð­ast­liðnum skrif­uðu Jón Heiðar Gunn­ars­son og Oddur Freyr Þrá­ins­son ítar­lega frétta­skýr­ingu í Kjarnann um skot­vopna­eign Íslend­inga, fjölda slíkra vopna sem er að finna í und­ir­heimum Íslands og hvernig Íslend­ingar standa í sam­an­burði við önnur ríki í þessum málum. Vegna hinnar háværu vopnaum­ræðu sem nú er uppi end­ur­birtir Kjarninn frétta­skýr­ing­una.

Margar byssur í íslenskum undirheimum


Í upp­hafi des­em­ber­mán­aðar féll byssu­maður fyrir hendi lög­regl­unnar í fyrsta sinn á Íslandi. Maðurinn var ekki með byssu­leyfi og ekki skráður fyrir byss­unni. Byssan var hins vegar skráð og nú stendur yfir rann­sókn á því hvernig mað­ur­inn komst yfir hana. Í kjöl­far þessa atburðar hafa margar spurn­ingar vaknað varð­andi skot­vopna­eign Íslend­inga. Hversu mörg skráð skot­vopn eru í umferð hér á landi? Til hvers eru óskráð vopn notuð og hvernig ber­ast þau til lands­ins? Hvers vegna eru fá ofbeld­is­verk tengd skot­vopnum hér á landi?

Ísland í fimmtánda sæti


Skot­vopna­eign Íslend­inga er frekar mikil í sam­an­burði við aðrar þjóðir að mati Helga Gunn­laugs­sonar afbrota­fræð­ings og pró­fess­ors í félags­fræði við Háskóla Íslands. „Tæplega þriðj­ungur Íslend­inga á eða hefur aðgang að skot­vopni, sem er ekki minna en við sjáum ann­ars staðar í Evrópu,“ segir Helgi.

[caption id="attachment_10592" align="align­right" width="150"] Helgi Gunn­laugs­son, afbrota­fræð­ingur við Háskóla Íslands.[/caption]

Ísland situr í 15. sæti á alþjóð­legum sam­an­burð­ar­lista þegar skot­vopna­eign miðað við höfða­tölu er skoðuð í alþjóð­legri rann­sókn frá sam­tök­unum Small arms sur­vey. Þar kemur fram að Íslend­ingar eigi um 90.000 byssur en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Rík­is­lög­reglu­stóra er fjöld­inn um 60.000 skot­vopn. Auk þess eru flutt inn um 1.500 ný skot­vopn á hverju ári.

Athygli vekur að töl­urnar frá Rík­is­lög­reglu­stjóra eru tölu­vert lægri heldur en alþjóð­legu töl­urnar en hafa ber í huga að opin­ber gögn Rík­is­lög­reglu­stjóra byggja á tölum um skráð skot­vopn. Slíkar tölur gera því ekki ráð fyrir öllum þeim óskráðu skot­vopnum sem eru í umferð.

Jónas Haf­steins­son, hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir ekki mikið um að óskráð vopn finn­ist í hús­leitum hér­lendis. Þau séu nán­ast telj­an­leg á fingrum ann­arrar handar. Þorri þeirra skot­vopna sem finn­ist í hús­leitum séu stolin vopn. Eitthvað sé um óskráðar byssur sem keyptar voru áður en byrjað var að skrá byssur á Íslandi. Ómögu­legt sé að segja til um hver fjöldi þeirra sé.

Flestir við­mæl­endur Kjarnans eru sam­mála um að tölu­vert magn af skot­vopnum sé til staðar í íslenskum und­ir­heimum.

Afsagaðar haglabyssur og hefndaraðgerðir


Heim­ild­ar­maður sem þekkir til í und­ir­heimum Íslands, en vildi ekki koma fram undir nafni, segir skot­vopna­eign vera stöðuga í íslenskum und­ir­heimum. „Byss­urnar liggja alveg hér og þar í mis­langan tíma. Þetta eru svip­aðar byssur eins og gengur og ger­ist á íslenskum mark­aði fyrir utan það að hagla­byss­urnar eru oft afsag­aðar. Ég veit ekki hversu hátt hlut­fall af þessum byssum eru óskráðar þar sem rað­núm­erin eru vana­lega tekin af þeim til að koma í veg fyrir að hægt sé að rekja þær.“

Heim­ild­ar­mað­ur­inn nefnir mörg nýleg dæmi þar sem skot­vopn komu við sögu. Hann segir þó ótrú­lega fá alvar­leg mál koma upp í tengslum við skot­vopn hér á landi miðað við hversu mikið af byssum er til staðar. „Slík vopn eru notuð þegar allt annað þrýtur í sam­skiptum mis heimskra manna og þegar svik eða hefnd er með í spil­inu. Þetta er aðal­lega notað í hefnd­ar­að­gerðum og til að ógna fólki. Oftast víg­búa menn sig af heimsku, ótta eða vegna þess að þeir eru að taka byssur upp í skuld.“

„Sagan gleymist ekki á litla Íslandi“


Heim­ild­ar­mað­ur­inn segir íslensku lög­regl­una fylgj­ast vel með og taka fast á skot­vopna­eign. „Þeir gera mikið af skot­vopnum upp­tæk. Þegar búið er að taka ein­hvern einu sinni með byssu þá vill hann ekki láta taka sig aftur því sagan gleym­ist ekki á litla Íslandi. Ef löggan þekkir þig fyrir að hafa verið með byssu þá ertu alltaf í ves­eni upp frá því.“

[quote font="0" align="right"]Ef löggan þekkir þig fyrir að hafa verið með byssu þá ertu alltaf í ves­eni upp frá því.[/quote]

Hann telur að skot­vopnum sé aðal­lega smyglað hingað til lands frá Asíu og þriðja heims ríkjum. „Það er algeng­ara að menn eign­ist skot­vopn í gegnum þýfi heldur en með smygli þó að það sé alltaf eitt­hvað um smygl. Þá eru einnig dæmi um að óskráð skot­vopn frá fyrri tíð séu til sem erfða­gripir innan fjöl­skyldna.“

Loftbyssur í tollinum


Toll­ur­inn leggur ekki hald á mörg skot­vopn sam­kvæmt Kára Gunn­laugs­syni, yfir­toll­verði. „Við lögðum ekki hald á neinar „alvöru“ byssur á síð­asta ári. Við stopp­uðum hins vegar 27 loft­byssur á árinu 2012 og 33 árið 2011,“ segir Kári.

[caption id="attachment_10595" align="align­right" width="150"] Kári Gunn­laugs­son, yfir­töll­vörður í Leifs­stöð.[/caption]

„Flestar byss­urnar koma til lands­ins í far­angri ferða­manna, aðal­lega með flugi frá Spáni. Þeim er eytt eftir að við gerum þær upp­tækar.“ Ef ekki eru greidd aðflutn­ings­gjöld af byssum sem eru fluttar inn með lög­legum hætti geta þær endað á upp­boði að sögn Kára.

Byssur í ótryggum hirslum


Hjálmar Ævarsson, fram­kvæmda­stjóri skot­veiði­versl­un­ar­innar Hlaðs, segir tími til kom­inn að breyta núver­andi reglum um geymslu skot­vopna til að sporna gegn þjófn­aði á þeim. Frá árinu 2008 hefur verið til­kynnt um þjófnað á rúm­lega 100 skot­vopnum og síð­ustu ár hefur lög­reglan reglu­lega lagt hald á umtals­vert magn af skot­vopnum.

„Það er tíma­bært að ganga næsta skref í þessum málum, því sam­kvæmt núgild­andi reglum þá ber skot­veiði­mönnum ekki skylda til að geyma skot­vopn í sér­stökum byssu­skápum fyrr en þeir eiga fjórar byssur eða fleiri,“ segir Hjálmar. „Það væri góð byrjun að koma megn­inu af byssum í land­inu í læstar hirslur til að sporna við þjófn­aði á þeim og því mæli ég með því að fólk fái sér byssu­skáp við kaup á fyrstu byssu.“

[caption id="attachment_10596" align="aligncenter" width="1024"] Hjálmar Ævarsson, fram­kvæmda­stjóri skot­veiði­versl­un­ar­innar Hlaðs, segir að það þurfi að breyta reglum um geymslu skot­vopna til að koma í veg fyrir þjófnað á þeim.[/caption]

Hann bendir á að í flestum nágranna­löndum okkar er gerð krafa um fjög­urra mm þykkt stál í byssu­skápum. „Hér heima var slakað á kröf­unum hvað þetta varðar. Fjögurra mm skápar eru mun meiri fyr­ir­staða fyrir þjófa heldur en þriggja mm skápar og því ættu menn að versla þá ef óskað er eftir hámarks­ör­yggi.“

Ólíkt grundvallarviðhorf til skotvopna


Þrátt fyrir tölu­verða skot­vopna­eign hér­lendis er sjald­gæft að byssum sé beint gegn fólki á Íslandi. „Hér eru lang­flest morð framin með egg­vopni eða bar­efli en skot­vopn eru notuð í 20 pró­sent til­fella, ekki ósvipað hlut­fall­inu sem er ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Í Banda­ríkj­unum er hlut­fallið mun hærra, eða meira en helm­ingur,“ segir Helgi Gunn­laugs­son.

[quote font="0" align="right"]Íslend­ingar líta á skot­vopn sem tæki til veiða eða nota við íþrótta­iðkun, á meðan Banda­ríkja­menn líta líka á vopn sem sjálfs­varn­ar­tæki fyrir sig og fjöl­skyldu sína.[/quote]

Mik­il­væg­asta ástæðan fyrir þessu er grund­vallar munur í við­horfi fólks til skot­vopna. „Íslend­ingar líta á skot­vopn sem tæki til veiða eða nota við íþrótta­iðkun, á meðan Banda­ríkja­menn líta líka á vopn sem sjálfs­varn­ar­tæki fyrir sig og fjöl­skyldu sína. Þetta er fram­andi hugsun fyrir okkur. Við lítum ekki á vopn sem tæki til að miða á aðra en fyrir marga Banda­ríkja­menn er þetta nauð­syn­leg vörn gegn alls konar ill­þýði. Veru­leik­inn er samt reyndar sá að algeng­ara er að vopn­unum sé beitt á fjöl­skyldu­með­limi eða vini í stund­ar­brjál­æði en að þeim sé beitt gegn vonda fólk­inu.”

Lög­reglan á Íslandi notar ekki skot­vopn og hún virð­ist kæfa alvar­lega glæpi og glæpa­sam­tök strax í fæð­ingu, að mati Helga. Hann telur þetta virð­ast vera aðal ástæð­una fyrir því að skot­vopnum er ekki beitt í meiri mæli í und­ir­heimum Reykja­víkur. „Með þessum hætti hefur lög­regl­unni tek­ist að koma í veg fyrir nei­kvæða þróun sem eng­inn Íslend­ingur vill sjá.“

Lögreglan skýtur flesta


Helgi segir hætt­una á auk­inni skot­vopna­notkun hér á landi vera til staðar en bendir á að slík áhætta sé hugs­an­lega af öðrum meiði en margir hefðu búist við. „Almennt er það þannig að lög­reglan skýtur fleiri en öfugt. Tölurnar frá Banda­ríkj­unum eru skýrar hvað þetta snertir og hlut­fallið er hátt, marg­falt fleiri glæpa­menn eða borg­arar eru drepnir af lög­reglu en öfugt.“

[quote font="0" align="right"]Almennt er það þannig að lög­reglan skýtur fleiri en öfugt. Tölurnar frá Banda­ríkj­unum eru skýrar hvað þetta snertir og hlut­fallið er hátt, marg­falt fleiri glæpa­menn eða borg­arar eru drepnir af lög­reglu en öfugt.[/quote]

Íslenska lög­reglan mun að öllum lík­indum taka upp auk­inn vopna­burð á ein­hverjum tíma­punkti í fram­tíð­inni að mati Helga. „Mér finnst lík­legt að vopna­burður lög­reglu á Íslandi verði meiri í fram­tíð­inni. Kannski ekki við dag­leg skyldu­störf en lík­lega í lög­reglu­bílum líkt og í nágranna­löndum okkar.“ Hann bendir á að norska lög­reglan fékk nýlega leyfi til að hafa skot­vopn í læstu hólfi í sínum lög­reglu­bílum. Hingað til hefur norska lög­reglan verið með minni vopna­burð heldur en kollegar sínir, bæði í Svíþjóð og Danmörku.

„Sumir fræði­menn og jafn­vel aðilar innan lög­reglu ótt­ast að við meiri vopna­burð lög­reglu verði komið á víg­bún­að­ar­kapp­hlaupi, að þetta kalli á meiri vopna­burð og beit­ingu vopna í und­ir­heimum, fyrir utan aukna hættu á voða­skotum,“ segir Helgi. „Við verðum að forð­ast slíka þróun eftir fremsta megni. Aukinn vopna­burður lög­reglu þýðir ekki endi­lega það sama og aukið öryggi borg­ar­anna og lög­reglu.“

[caption id="attachment_10168" align="aligncenter" width="1024"] Íslenska lög­reglan og Land­helg­is­gæslan fengu nokkur hund­ruð MP5 hríð­skota­byssur frá norska hernum.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár