Topp 5: Mark Eiðs Smára fyrir 10 árum sögulegt

Eftir um tæpan klukku­tíma hefst leikur Chelsea og Man. Utd. á Old Trafford. Þetta er sann­kall­aður stór­velda­slagur, þó Chelsea hafi byrjað leik­tíð­ina mun betur. Chelsea er í efsta sæti með tíu stigum meira en Man. Utd., 22 stig, en bæði lið hafa leikið átta leiki. Man. Utd., sem er með tólf stig, getur kom­ist einu stigi ofar en Liverpool en þessir fornu stór­velda­fjendur eru í 7. og 8. sæti deild­ar­innar, Liverpool með fjórtán stig en Man. Utd. með tólf, eins og áður sagði.

Leikir Chelsea og Man. Utd. hafa í gegnum tíð­ina verið hin besta skemmtun, og hafa mörg sögu­leg og glæsi­leg mörk verið skoruð í þeim. Kjarninn skoð­aði fimm eft­ir­minni­legar viður­eignir þess­ara liða, og eft­ir­minni­leg atriði úr þeim.

5. Eiður Smári Guðjohnsen skorar 2004/2005


Þetta er ekki fal­leg­asta mark sem hefur verið skorað, svo mikið er víst. En sig­ur­inn var sögu­legur á margan hátt. Jose Mourinho var þarna að stýra Chelsea í fyrsta skipti í deild­ar­leik, þar sem þetta var fyrsti leikur tíma­bils­ins. Didier Drogba var einnig að spila sinn fyrsta leik. Markið kom eftir skalla­send­ingu frá Drogba á Eið Smára.

https://www.youtube.com/watch?v=tf-lyJZAMJw

4. Ótrúlegur leikur Cristiano Ronaldo


Man. Utd. var með magnað lið leik­tíð­ina 2008/2009. Þar fór fremstur meðal jafn­ingja Cristiano Ronaldo. Í leiknum gegn Chelsea héldu honum engin bönd, og er þá ekki sér­stak­lega litið til marka eða stoðsend­inga. Heldur var alhliða­leikur hans með ólík­indum. Hann lék sér að varn­ar­mönnum Chelsea og dældi bolt­anum inn í teig­inn allan leik­inn.

https://www.youtube.com/watch?v=lvOpupa5WpI

3. Rautt spjald og slagsmál í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2008


Man. Utd. vann úrslita­leik­inn gegn Chelsea, eftir mik­inn bar­áttu­leik, fram­leng­ingu og víta­spyrnu­keppni. Í fram­lengin­unni sauð upp úr og Didier Drogba var rek­inn af velli. Leikmenn Chelsea heimt­uðu Argent­ínu­mann­inn Carlos Tevez af velli.

https://www.youtube.com/watch?v=LwwEWnl0seI

2. 5-3 sigur Man. Utd. gegn Chelsea 1995


Marka­súpan frá 1995 gleym­ist seint. Þarna var David Beckham meðal ann­ars í ess­inu sínu. Og hinn van­metni Andy Cole, sem enska lands­liðið not­aði lítið sem ekk­ert, þó hann hefði aug­ljós­lega átt að vera þar lyk­il­maður árum saman.

https://www.youtube.com/watch?v=JRFhgz8rwe4

1. 5-4 sigur Chelsea í deildarbikarnum 2012


Önnur marka­súpa, örlítið nær okkur í tíma, frá árinu 2012 í deild­ar­bik­arnum, gleym­ist ekki svo glatt. Mörkin í leiknum voru sér­lega glæsi­leg og margir ungir menn minntu á sig í leiknum, og sýndu hvað þeir gátu. Þar á meðal Daniel Sturridge, sem nú er í fram­línu Liverpool, og Belginn Eden Hazard, sem átti frá­bæran leik. Einn maður dró síðan vagn­inn fyrir Man. Utd. og var eins og ung­lamb í fram­leng­ing­unni. Hinn tæp­lega fer­tugi, á þessum tíma, Ryan Giggs.

https://www.youtube.com/watch?v=LwwEWnl0seI

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár