Dolce og Gabbana sýknaðir í skattamáli

Ítölsku tísku­kóng­arnir Domenico Dolce og Stefano Gabbana hafa verið sýkn­aðir í máli ítalska rík­is­ins gegn þeim vegna ásak­ana um skatt­svik. Í apríl voru þeir dæmdir í skil­orðs­bundið 20 mán­aða fang­elsi í und­ir­rétti vegna máls­ins. Hæsti­réttur Ítalíu hefur nú snúið þeirri nið­ur­stöðu og sýkna þá félaga. Þeir eru að mörgum taldir vera áhrifa­mestu fata­hönn­uðir Ítalíu síð­ustu 20 árin og hafa auðg­ast veru­lega á versl­un­ar­rekstri og fata­hönnun.

Þeir voru sak­aðir um að hafa ekki staðið skil á 343,3 millj­ónum evra, um 53 millj­örðum króna. Féð var lagt inn í félag í Lúx­em­borg, Gado að nafni, og vildu ítölsk skatta­yf­ir­völd meina að með þessu væru Dolce og Gabbana að svíkj­ast undan því að greiða skatta af þess­ari fjár­hæð á Ítalíu.

Þeir mót­mæltu dóms­nið­ur­stöð­unni í apríl með tákn­rænum hætti, með því loka versl­unum sínum í Mílanó borg. Líklega munu þær standa galopnar núna, í ljósi þess að þeir hafa verið hreins­aðir af ásök­unum yfir­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár