El Clasico: Ekkert toppar sólun á marklínu hjá Maradona

Í dag fer fram stór­leikur Barcelona og Real Madrid, El Clasico, á Bernabeu heima­velli Real Madrid. Barcelona er efst í La Liga á Spáni, með 22 stig eftir átta leiki, hefur unnið sjö og gert eitt jafn­tefli. Marka­talan segir sína sögu um hvernig liðið hefur verið að spila; 22-0. And­stæð­ingum Barcelona hefur ekki enn tek­ist að skora gegn lið­inu í deild­inni, og hafa sókn­ar­menn liðs­ins farið ham­förum, ekki síst snill­ing­ur­inn Lionel Messi og brasil­íski fram­herj­inn Neymar.

Real Madrid er í þriðja sæti deild­ar­innar með 18 stig, hefur unnið sex en tapað tveimur. Í síð­ustu leikjum hefur liðið verið frá­bært með Cristiano Ronaldo fremstan í flokki. Hann er búinn að skora 15 mörk í fyrstu átta leikjum í deild­inni og hefur verið því sem næst óstöðv­andi. Óhætt er að segja að mikil eft­ir­vænt­ing ríki fyrir leik­inn, ekki síst þar sem Luis Suarez snýr aftur úr leik­banni í leiknum.

Mörg glæsi­leg mörk hafa verið skoruð í viður­eignum þess­ara liða í gegnum tíð­ina. Kjarninn tók saman lista yfir fimm glæsi­leg El Clasico mörk.

  1. Lionel Messi, 2006/2007. Ótrúleg þrenna Lionel Messi í leiknum er sögu­leg. Síðasta markið var sér­lega glæsi­legt. Enginn leik­maður hefur skorað meira í El Clasico, 21 mark. Eiður Smári Guðjohn­sen var í fremstu víg­línu í þessu sögu­lega leik, þegar Messi sýndi heims­byggð­inni að hann væri eng­inn venju­legur 19 ára gutti.

https://www.youtube.com/watch?v=LJENMuDLN4A

  1. Lionel Messi 2010/2011. Á þessum tíma var Messi, kannski líkt og Ronaldo nú, nán­ast óstöðv­andi. Hann tók leik­inn gegn Real Madrid í sínar hendur og sól­aði í gegnum vörn­ina, og lagði bolt­ann snyrti­lega neðst í mark­hornið.

https://www.youtube.com/watch?v=UXtiWLPbXIM

  1. Cristiano Ronaldo 2011/2012. Stór­kost­legt skalla­mark hjá Ronaldo í úrslita­leik Copa Del Rey. Enginn kemst með tærnar þar sem Ronaldo hefur hæl­ana þegar kemur að sköllum. Magnað mark.

https://www.youtube.com/watch?v=_BZFzuAO0fQ

  1. Dani Alvez 2012/2013. Stór­kost­legt lang­skot hjá þessum magn­aða bak­verði. Minnir mann á það hversu glóru­laust það var hjá Scolari fyrr­ver­andi lands­liðs­þjálf­ara Brasilíu að taka hann út úr lið­inu á HM í sumar, án þess að Brasilía hefði verið búið að tapa leik með hann inn­an­borðs, og setja hinn langtum verri Maicon inn í liðið í stað­inn.

https://www.youtube.com/watch?v=9d7MPyxKYrI

  1. Diego Maradona 1983/1984. Það kann að vera að það hafi verið skoruð fal­legri mörk í El Clasico. En þetta veður þó að telj­ast með ótrú­legri mörkum. Maradona var ekki beint laus við sjálfs­traust sem leik­maður, og ákveður í þessu marki að leika á varn­ar­mann­inn Chendo á marklín­unni, og senda hann á fullri ferð með klofið á stöng­ina, áður en bolt­anum er rennt inn fyrir lín­una. Síðan hleypur hann hlæj­andi í burtu. Á Bernebeau. Í El Clasico! Svona gera menn nú frekar á æfingum.

https://www.youtube.com/watch?v=oAQhbQ_EXhk

Leikur Barcelona og Real Madrid hefst klukkan 16:00 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár