Kafbáturinn hvarf sjónum sænska hersins

Sænski her­inn hefur hætt leit sinni í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm að því sem talið var vera erlendur kaf­bátur. Leitin stóð í viku án nokk­urra skýr­inga á því hvað sjón­var­vottar sáu. Hundruð til­kynn­inga bár­ust yfir­völdum frá fólki sem sagð­ist hafa séð furðu­hluti stinga upp koll­inum í haf­inu milli eyj­anna.

[quote font="0" align="right"]„... hvers vegna hefur verið skorið svo harka­lega niður í hern­að­ar­málum ef sænsk land­helgi hefur ítrekað verið brotin?“[/quote]

Anders Grenstad, aðmíráll í sænska sjó­hernum, sagði á blaða­manna­fundi í morgun að her­inn hafi verið að leita að litlu sjó­fari und­an­farna daga, ekki að stórum hefð­bundnum kaf­báti. Tals­maður hers­ins sagði upp­lýs­inga­grein­endur hers­ins hafa kom­ist að nið­ur­stöðu um að sjó­farið sé nú horfið úr sænskri lög­sögu. Atvikið væri aftur á móti „óásætt­an­legt“.

Orustu­skip, tund­ur­spillar, þyrlur og meira en 200 manns leit­uðu á nokkuð stóru svæði í um 30 til 60 kíló­metra fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni alla vik­una. Herinn hefur ekki viljað vísa ábyrgð á nokk­urt annað ríki, þó Rússar hafi verið taldir lík­leg­astir. „Ég hef aldrei bent á ein­staka ríki,“ sagði Grenstad á blaða­manna­fund­inum.

Áralöng rannsókn


Jafnvel þó sjó­her­inn hafi leitað af miklum krafti und­an­farna viku vakti það athygli um síð­ast­liðna helgi þegar Genstad sagði að her­inn hafi verið að kort­leggja „erlendar aðgerðir neð­an­sjávar“ í lög­sögu Svía und­an­farin ár. Hern­að­ar­sér­fræð­ingar hafa velt vöngum yfir þessum yfir­lýs­ingum.

„Ef þetta er til­fellið, hvers vegna hafa þessar upp­lýs­ingar stoppað hjá stjórn­mála­mönnum? Hvers vegna hafa þeir ekki verið upp­lýstir? Og enn fremur; hvers vegna hefur verið skorið svo harka­lega niður í hern­að­ar­málum ef sænsk land­helgi hefur ítrekað verið brotin?“ spyr Johanne Hildebr­andt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár