Eimskip kærir leka á gögnum til lögreglu

Eimskip hefur kært leka á kæru Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til Sérstaks sak­sókn­ara á hendur starfs­mönnum félags­ins og starfs­mönnum Samskips til lög­reglu. Eimskip telur að það megi ráða á umfjöllun Kast­ljóss um kæruna þann 14. Október síð­ast­lið­inn að þátt­ur­inn hafi haft kæruna undir höndum. Eimskip hefur einnig sent Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og Kauphöll Íslands ábend­ingu um að með hinum ætl­aða leka hafi mögu­legt lög­brot verið framið auk þess sem félagið hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og Sér­stökum sak­sókn­ara bréf þar sem það krefst „þess að fá afhent gögn sem tengj­ast umfjöllun Kast­ljóss“. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Eimskips til Kaup­hallar Íslands fyrr í dag.

Kauphöll Íslands setti hluta­bréf Eimskips á athug­un­ar­lista í kjöl­far þess að Kastljós birti umfjöllun sína, enda komu þar fram upp­lýs­ingar sem eru verð­mót­andi. Virði félags­ins lækk­aði um þrjá millj­arða króna næstu þrjá dag­anna eftir að umfjöll­unin fór í loftið. Í til­kynn­ingu Eimskips, þar sem máls­at­vik eru rakin ítar­lega, kemur fram að „leki á rann­sókn­ar­gögnum , og fjöl­miðla­um­ræða í kjöl­far hans, hefur nú þegar valdið hlut­höfum félags­ins tjóni. Þá hefur lek­inn skaðað ímynd félags­ins bæði hér­lendis og erlendis“.

Hægt er að lesa til­kynn­ingu Eimskips til Kaup­hall­ar­innar í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár