Afbrotum fækkar á Íslandi, lögreglan fær hríðskotabyssur

Ofbeld­is­brotum, brotum gegn vald­stjórn­inni og auðg­un­ar­brotum, á borð við rán, þjófnað og grip­deildir, hefur fækkað jafnt og þétt und­an­farin ár. Fíkni­efna- og kyn­ferð­is­brotum hefur hins vegar fjölgað. Þetta kemur fram í töl­fræði­skýrslum rík­is­lög­reglu­stjóra. Nýjasta skýrslan var birt í apríl síð­ast­liðnum.

Á sama tíma og þessi þróun hefur átt sér stað er íslenska lög­reglan að víg­bú­ast með 150 MP5-hríð­skota­byssum sem norski her­inn gaf þeim.

Hríð­skota­byss­urnar, sem verða í ein­hverjum til­fellum geymdar í lög­reglu­bílum, bár­ust til lands­ins í upp­hafi árs. Síðan þá hafa lög­reglu­menn verið þjálfaðir í með­ferð vopn­anna.

Ofbeldisbrotum og brotum gegn valdstjórn fækkar


Afbrotum hefur fækkað jafnt og þétt á Íslandi und­an­farin ár. Samkvæmt töl­fræði sem emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra birti í apríl síð­ast­liðnum hefur afbrotum í heild fækkað úr 73.039 árið 2008 í 51.282 í fyrra. Afbrot voru því um 42 pró­sent fleiri árið 2008 en þau voru í fyrra.

Vert er að taka fram að fækk­unin er að lang­mestu leyti til­komin vegna þess að bók­færð umferð­ar­laga­brot voru um 19 þús­und færri í fyrra en árið 2008, en slík brot eru rúm­lega 70 pró­sent allra bók­færðra afbrota í töl­fræði rík­is­lög­reglu­stjóra.

[caption id="attachment_10176" align="aligncenter" width="768"] Norski her­inn gaf íslensku lög­regl­unni um 150 MP5-hríð­skota­byssur í byrjun árs. Upplýst var um þetta í DV í byrjun viku.[/caption]

Þegar ofbeld­is­brot eru skoðuð sér­stak­lega kemur í ljós að þau voru aðeins fleiri í fyrra, alls 1.188, en árið 2012 en svipað mörg og árið 2009-2011. Miðað við árið 2008, þegar 1.316 ofbeld­is­brot voru framin, var ástandið í fyrra ágætt. Brotin voru tæp­lega ell­efu pró­sent fleiri á hru­nár­inu 2008 en á árinu 2013.

Brotum gegn vald­stjórn­inni, sem í felst meðal ann­ars hót­anir/ofbeldi gagn­vart lög­reglu og að fyr­ir­mælum lög­reglu sé ekki hlýtt, hefur einnig fækkað á und­an­förnum árum. Árið 2008 voru 432 slík skráð í töl­fræði rík­is­lög­reglu­stjóra. Í fyrra voru þau 321 tals­ins, eða 34 pró­sent færri en þau voru árið 2008.

Auðg­un­ar­brotum, á borð við rán, þjófnað og grip­deildir hefur líka fækkað jafnt og þétt und­an­farin ár. Árið 2009 var metár í þeim brota­flokki þegar 9.561 slík brot voru skráð. Í fyrra voru þau 6.014. Auðg­un­ar­brot voru því 60 pró­sent fleiri fyrir fimm árum síðan en þau voru í fyrra.

Brot gegn frið­helgi voru 565 í fyrra, eða 30 færri en árið 2012 og 50 færri en árið 2010. Árin 2009 og 2011 voru þau færri en í fyrra og ef miðað er við árið 2008 þá standa þau nán­ast í stað.


Fleiri fíkniefna- og kynferðisbrot


Fíkni­efna­brotum hefur hins vegar fjölgað umtals­vert. Alls voru framin 2.183 slík brot í fyrra sam­kvæmt töl­fræði rík­is­lög­reglu­stjóra. Um 70 pró­sent fíkni­efna­brota er vegna vörslu og með­ferðar á fíkni­efnum og er aukn­ing skráðra brota lang­mest í þeim frota­flokki. Sala, dreif­ing og inn­fluttn­ingur á fíkni­efnum hefur einnig auk­ist en þeir sem voru gripnir við að fram­leiða fíkni­efni á árinu 2013 voru færri en tvö árin á undan.

Þá hefur orðið spreng­ing í skráðum kyn­ferð­is­brotum. Í fyrra voru þau tvisvar sinnum fleiri en þau voru að jafn­aði árin á undan. Ástæðan er meðal ann­ars aukin vit­und­ar­vakn­ing og umfjöllun fjöl­miðla, sem leiddi til þess að fjöldi þolenda kyn­ferð­is­brota stigu fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár