Hluthafar N1 fá fjóra milljarða króna útgreidda

Hlut­hafa­fundur í N1 hefur ákveðið að lækka hlutafé félags­ins og greiða hlut­höfum þess út tæpan 3,9 millj­arð króna. Fjár­hæðin verður greidd út til hlut­hafa í lok dags þann 28. nóv­em­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá N1 sem send var inn til Kaup­hallar Íslands fyrr í dag.

N1 var skráð á markað í des­em­ber 2013, en félagið er eitt stærsta versl­unar- og þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins. N1 rekur 95 þjón­ustu­stöðvar og eld­neyt­is­af­greiðslur víðs­vegar um landið. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru langstærstu eig­endur félags­ins. Samtals eiga Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna (14,2 pró­sent), Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins A-deild (8,0 pró­sent), Gildi líf­eyr­is­sjóður (7,57 pró­sent), Stafir líf­eyr­is­sjóðir (5,7 pró­sent) og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn um 40,5 pró­sent hlut í félag­inu.

Aðrir líf­eyr­is­sjóðir sem eru á meðal 20 stærstu eig­enda N1 eiga síðan 13,9 pró­sent til við­bótar. Því fara íslenskir líf­eyr­is­sjóðir með að minnsta kosti 54,4 pró­sent hlut í N1 og fá því rúman 2,1 millj­arð króna af greiðsl­unni í sinn hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár