Klakki selur allt hlutafé sitt í VÍS

Klakki ehf., sem hét áður Exista, hefur selt allt hlutafé sitt í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands (VÍS). Félagið átti um 15,18 pró­sent hlut í trygg­inga­fé­lag­inu fyrir við­skiptin. Miðað við gengi bréfa í VÍS í dag fær Klakki rúm­lega þrjá millj­arða króna í sinn hlut vegna við­skipt­anna.

Í upp­hafi októ­ber mán­aðar átti Klakki sam­tals 23,2 pró­sent hlut í VÍS. Þann 13. októ­ber var til­kynnt um að félagið hefði selt 7,99 pró­sent hlut í VÍS. Kjarn­inn greindi frá því í lok síð­ustu viku að lif­eyr­is­sjóð­irnir Gildi, Stapi og Festa hefðu keyptt hlut­inn af Klakka. Ómögu­legt hafði verið fram að því að fá stað­fest­ingu á því hver kaup­andi bréf­anna var. Sjóð­irnir þrír keyptu alls um 205 milljón hluti í VÍS í við­skipt­unum. Miðað við gengi bréf­anna í dag er virði þess hlutar um 1,7 millj­arður króna. Hvorki Gildi né Festa áttu hluti í VÍS áður en við­skiptin fóru fram. Gildi er eftir þau fimmti stærsti eig­andi VÍS.

Flaggað í Kauphöll


Fyrr í dag var síðan flaggað í Kauphöll Íslands. Í flög­un­inni kom fram að Klakki, sem hefur átt ráð­andi hlut í VÍS um margra ára skeið, hefði selt allan hlut sinn í félag­inu, alls 15,18 pró­sent hlut. Eftir við­skiptin á Klakki ekk­ert í VÍS. Við­skiptin áttu sér stað í gær og miðað við gengi bréfa í VÍS í dag þá er kaup­verðið rúm­lega þrír millj­arðar króna. Ekki kemur fram hver kaup­and­inn er.

Klakki, sem er að mestu í eigu Arion banka, þrota­bús Kaup­þings og vog­un­ar­sjóð­inn Burlington Loan Mana­gement, stærsti erlendi kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs, skil­greinir sig ekki sem lang­tíma­fjár­festi í VÍS. Í frétt á heima­síðu félags­ins þann 13. októ­ber, þar sem til­kynnt var um fyrri söl­una í þessum mán­uði, kom fram að það muni horfa til „þess að selja eft­ir­stand­andi eign­ar­hlut sinn, mögu­lega í áföngum, á kom­andi mán­uðum“. Nú hefur orðið að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár