Skotárás við þinghúsið í Kanada

Lög­reglan í Ottawa, höf­uð­borg Kanada, leitar nú byssu­manns sem skaut mann við minn­is­merki í mið­borg borg­ar­innar um klukkan 10 að stað­ar­tíma. Byssu­mað­ur­inn hljóp í kjöl­farið í átt á þing­hús­inu sem er handan göt­unnar við minn­is­merkið.

Stephen Harper, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, hefur verið komið í skjól að sögn tals­manna hans. Þing­hús­inu hefur verið lokað og lög­regla leitar byssu­manns­ins þar inni og í næsta nágreni.

Maðurinn sem skot­inn var er her­maður en hann hefur verið fluttur á sjúkra­hús til aðhlynn­ingar, að sögn CBC-frétta­stof­unnar. Lög­reglan í Ottawa hefur ekki stað­fest hvert fórn­ar­lambið er. Lög­reglu­menn loka nú og læsa öllum dyrum þing­húss­ins svo hægt sé að þrengja leit­ina að byssu­mann­inum sem sagður er bera „stóran riffil“.

Josh Wingrove, blaða­maður Globe and Mail, flytur fréttir eins og þær ber­ast á Twitter.

I saw one motionless body outside the libr­ary of parli­ament. It app­eared police had been aim­ing that decision with many guns­hots.

— Josh Wingrove (@josh_wingrove) October 22, 2014

Police now searching all rooms that weren't locked pic.twitter.com/YAVgZFau5Q — Josh Wingrove (@josh_wingrove) October 22, 2014

Enn eru fréttir að ber­ast af atburð­inum og verður þessi frétt upp­færð um leið og fréttir ber­ast.

[google_map width="100%" height="300px" src="https://www.google.com/maps/embed?pb=!1m18!1m12!1m3!1d2800.274035274166!2d-75.69540899999997!3d45.423977!2m3!1f0!2f0!3f0!3m2!1i1024!2i768!4f13.1!3m3!1m2!1s0x4cce04ffda0b042b%3A0xd9d50042c23c17e8!2sNational+War+Memorial+of+Canada!5e0!3m2!1sis!2sis!4v1413989643629"]

Uppfært kl. 16:25


Lög­reglan leitar allt að þriggja byssu­manna. Þetta hefur The Guardian eftir Chuck Benoit lög­reglu­for­ingja í Ottawa. Skotárásir voru gerðar við minn­is­merkið, í þing­hús­inu og í versl­un­ar­mið­stöð­inni Rideau Center. Allir stað­irnir hafa verið lok­aðir fyrir umferð almenn­ings. Einn er í haldi lög­reglu en fregnir herma að lög­reglan hafi skotið hann. Banda­ríska sendi­ráð­inu hefur einnig verið lokað en það er skammt frá vett­vangi.
Police source has told a Globe colleague of mine that a second shooter has been shot

— Josh Wingrove (@josh_wingrove) October 22, 2014

Her­mað­ur­inn sem skot­inn var við minn­is­varða um fallna her­menn hefur verið fluttur á spít­ala í borg­inni. Frétta­fólk var flutt úr þing­hús­inu því talið var að einn byssu­mann­anna hafi verið á þaki húss­ins. Þá hafa heyrst þung högg úr þing­hús­inu en

frétta­fólk á staðnum

telur að þar sé lög­regla að berja niður hurðir til að finna árás­ar­menn­ina.

Google earth view showing the 3 locations of shootings in downtown Ottawa this morn­ing -- all remain on lockdown pic.twitter.com/NsQ1zPwuxe — Jason Morrell (@CNNJason) October 22, 2014

Á Twitter-reikn­ingi Rideau Center-versl­un­ar­mið­stöðv­ar­innar er því neitað að skotárás hafi verið gerð þar. Lögregan til­tók ekki hvort árás hafi verið gerð þar inni, fyrir utan eða nærri versl­un­ar­kjarn­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár