Geta Íslendingar lært af reynslu Dana við sjónvarpsþáttagerð?

Æsispenn­andi loka­þáttur Hrauns­ins fór í loftið á RÚV á sunnu­dags­kvöldið. Sitt sýn­ist hverjum um ágæti þátt­anna, en Friðrik Erlings­son, sem titl­aður er sem fyrr­ver­andi hand­rits­höf­undur, tekur sjón­varps­þátta­röð­ina af lífi í pistli sem hann skrifar á vef­síð­una klapptre.is, sem er umræðu­vett­vangur um íslenska sjón­varps­þátta- og kvik­mynda­gerð.

Friðrik lætur ekki þar staðar numið, heldur gagn­rýnir harð­lega nán­ast allt sem íslenski sjón­varps­þátta- og kvik­mynda­gerð­ar­geir­inn hefur borið á borð fyrir almenn­ing á und­an­förnum árum.

Margir hafa litið til vel­gengni Dana í brans­anum, og velt fyrir sér af hverju sú vel­gengni stafi. Fyrr­greindum Friðriki finnst að minnsta kosti Íslend­ingar standa Dönum ljósárum að baki í fag­inu.

Borgþór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarnans í Kaup­manna­höfn, velti vel­gengni Dana í sjón­varps­þátta­gerð fyrir sér í ítar­legri frétta­skýr­ingu sem hann skrif­aði fyrir 38. útgáfu Kjarnans sem út kom 8. maí síð­ast­lið­inn.
Danskir þættir mala gull erlendis

Fyrir tíu til fimmtán árum hefðu fáir trúað því að sá dagur kæmi að danskir sjón­varps­mynda­flokkar yrðu verð­mæt útflutn­ings­vara og sjón­varps­stöðvar víða um heim myndu kepp­ast við að tryggja sér sýn­inga­rétt­inn. En sá dagur er kom­inn, reyndar fyrir nokkru síðan, og DR er orðið stórt nafn á alþjóð­lega sjón­varps­mark­aðnum.

Fyrir rúmum fjöru­tíu árum sat sá sem hér skrifar fyr­ir­lestra hjá Þorgeiri heitnum Þor­geir­syni í Leik­list­ar­skóla SÁL (eins og hann var kall­aður) í kjall­ar­anum á Frí­kirkju­vegi 11 í Reykja­vík. Einn fyr­ir­lestra Þorgeirs fjall­aði um fram­leiðslu sjón­varps­efnis, þar á meðal hina pen­inga­legu hlið. Það er minn­is­stætt að Þorgeir tal­aði sér­stak­lega um breska ríkis­útvarpið, BBC, sem þá fram­leiddi margs konar gæða­efni, þar á meðal fram­halds­þætti. Þar hafði verið tekin sú ákvörðun að setja markið hátt og fram­leiða gæða­efni, allir vita árangur þeirrar stefnu. Það situr ekki síður í minn­inu að Þorgeir ræddi um (og nefndi tölur máli sínu til stuðn­ings) hvaða pól Danir hefðu tekið í þessa hæð. „Þeir eru ekki orðnir mjög góðir enn, sem von er, það tekur tíma,“ sagði Þorgeir og bætti við: „En ef þeir halda þess­ari stefnu og setja áfram pen­inga í slíka fram­leiðslu mun það skila sér á næstu ára­tugum.“

Góðir hlutir taka tíma


Þegar Þorgeir lét þessi orð falla var danska sjón­varpið, nú ætíð kallað DR, enn að slíta barns­skónum. Svæð­is­bundnar sjón­varps­út­send­ingar hófust 1951 en 1960 gátu flestir lands­menn séð sjón­varpið. Þó var sjón­varps­við­tæki aðeins til á fjórum heim­ilum af hverjum tíu. Á árunum frá 1960–70 var leikið efni sem danska sjón­varpið fram­leiddi, eða lét fram­leiða, fyrst og fremst það sem kalla mætti kvik­mynd­aðar leik­sýn­ingar. Á síð­ari hluta ára­tug­ar­ins fóru þó að sjást merki um breyt­ingar. Árið 1967 sýndi danska sjón­varpið glæpa­þátta­röð­ina Ka’ De li´ østers, sex þátta seríu sem Leif Panduro og Bent Christensen skrif­uðu og fyr­ir­tækið ASA film fram­leiddi.

Skylt að framleiða afþreyingarefni


Árið 1973 tóku gildi ný útvarps­lög, þar sem skýrt var kveðið á um þá skyldu Danmarks Radio að fram­leiða afþrey­ing­ar­efni. Í lögum þessum var líka settur eins konar fjár­hags­rammi sem átti að tryggja fram­leiðslu skemmti­efnis til jafns við önnur verk­efni og skyldur stofn­un­ar­innar. Þremur árum áður en lögin tóku gildi hafði sjón­varpið í sam­vinnu við hið rót­gróna fyr­ir­tæki Nordisk Film gert þátta­röð­ina Huset på Christianshavn. Þætt­irnir fjöll­uðu um íbú­ana í fjöl­býl­i­húsi á Ama­gergade 7 á Krist­jáns­höfn, dag­legt strit og gleði­stundir í bland, meðal ann­ars á hverf­is­barnum sem bar nafnið Rottehul­let (skiltið má enn sjá á fram­hlið húss­ins!). Þætt­irnir í fyrstu syrp­unni voru 6, margir gagn­rýnendur spáðu því að þessir þættir yrðu ekki lang­lífir en annað kom á dag­inn. Áður en yfir lauk höfðu verið gerðir 84 þættir, flestir um 30 mín­útna langir, sá sein­asti var sýndur á gamlárs­kvöld 1977. Einn úr hópi dag­skrár­stjóra danska sjón­varps­ins sagði síðar að gerð þess­ara þátta hefði verið sam­felld kennslu­stund, og þótt margt í þátt­unum væri barn síns tíma hefði grunn­ur­inn þarna verið lagður að vand­aðri þátta­gerð. Þess má geta að þætt­irnir eru enn sýndir síð­degis á K-rás DR.

Matador


Tæpu ári eftir eftir að síð­asti þátt­ur­inn um fólkið í Ama­gergade hvarf af skjánum frum­sýndi danska sjón­varpið (11. nóv­em­ber 1978) fyrsta þátt­inn í nýrri sjón­varps­þátta­röð, Matador, sem Nordisk Film fram­leiddi undir stjórn Eriks Balling. Sagan hefst árið 1929 í smá­bænum Korsbæk (KorsØr og Holbæk!) og lýkur 1947. Alls urðu þætt­irnir 24 og voru sýndir á fjög­urra ára tíma­bili, sex á hverju ári. Skemmst er frá því að segja að Matador sló algjör­lega í gegn, þætt­irnir hafa verið end­ur­sýndir sex sinnum, sein­ast í hitteð­fyrra. Þá horfði að jafn­aði tals­vert á aðra milljón Dana á hvern þátt, á besta sýn­ing­ar­tíma á laug­ar­dags­kvöldum.

Pólitíkusum þótti bruðlað með almannafé


Þótt almenn­ingur tæki Matador opnum örmum urðu ýmsir, þar á meðal Radi­orådet (útvarps­ráð, skipað full­trúum flokk­anna, lagt niður 1987) til að gagn­rýna kostn­að­inn og töl­uðu um bruðl. For­svars­menn Danmarks Radio svör­uðu því til að góðir hlutir kost­uðu pen­inga. Í dag eru flestir sam­mála um að með þessum tveim þátta­röðum sem hér hafa verið nefndar, Huset på Christianshavn og Matador, einkum þó þeirri síð­ar­nefndu, hafi Danir sýnt og sannað að þeir gætu fram­leitt sjón­varps­efni sem stæð­ist sam­an­burð við hvað sem væri.

En eins og Róm var ekki byggð á einum degi var enn langt í að danskir sjón­varps­mynda­flokkar næðu veru­legri útbreiðslu. Á níunda og fyrri hluta tíunda ára­tug­ar­ins voru fram­leiddir fjölda­margir sjón­varps­mynda­flokkar, margir prýði­lega gerðir, en fæstir þeirra náðu þó telj­andi vin­sældum utan danskra land­steina.

En undir alda­mótin fóru hjólin að snú­ast. Árið 1996 birt­ist mynda­flokk­ur­inn Bryggeren (um J.C. Jacobsen, stofn­anda Carlsberg) á skjánum, ári síðar kom Taxa, Edderkoppen og Rej­seholdet árið 2000. Þessir þættir voru seldir til margra landa og í kjöl­farið fylgdu Nikolaj og Julie, Krøniken, Ørnen, Klovn og Anna Pihl. Allt vel gerðir og vand­aðir þættir. Rej­seholdet, Ørnen og Nikolaj og Julie höfðu þar að auki hreppt hin eft­ir­sóttu Emmy-verð­laun. Danir kunnu orðið vel til verka.

Lögreglukonan á lopapeysunni


Sunnu­dags­kvöldið 7. jan­úar 2007 birt­ist í fyrsta sinn á skjánum lög­reglu­konan Sarah Lund, íklædd lopa­peysu sem varð tísku­klæðn­aður kvenna víða um lönd, munstrið ýmist sagt íslenskt eða fær­eyskt. Mynda­flokk­ur­inn hét For­brydel­sen, eða Glæp­ur­inn. Þætt­irnir í fyrstu syrp­unni voru 20 tals­ins, hver um sig tæp­lega klukku­tíma langur. Daginn eftir sýn­ingu fyrsta þátt­ar­ins sögðu dönsku blöðin í umsögnum sínum að hér hefði nýr tónn verið sleg­inn. Það reynd­ust orð að sönnu. Mynda­flokk­ur­inn naut geysi­mik­illa vin­sælda og sjón­varpss­stöðvar víða um lönd keppt­ust um að kaupa sýn­inga­rétt­inn. Síðar voru gerðar tvær þátt­araðir til við­bótar þar sem Sarah Lund tókst ásamt félögum sínum á við erfið mál. Alls voru fram­leiddir 40 þættir og var sá sein­asti sýndur í danska sjón­varp­inu 25. nóv­em­ber 2012. Breska rík­is­út­varpið, BBC, sýndi þætt­ina textaða í stað þess að láta enska leik­ara mæla fyrir munn dönsku leik­ar­anna.

[caption id="attachment_10196" align="alignnone" width="3395"] Sofie Gråbøl (fædd 1968), sem leikur aðal­hlut­verkið
í For­brydel­sen, Glæpnum, hefur enga form­lega
leik­list­ar­menntun.[/caption]

Nú voru hjólin farin að snú­ast og For­brydel­sen-þætt­irnir hafa verið sýndir í að minnsta kosti 130 löndum. Þegar DR til­kynnti snemma árs 2010 að vænt­an­legir væru á skjá­inn þættir um stjórn­mála­menn­ina á Krist­jáns­borg, undir heit­inu Borgen (Höllin), stóðu kaup­endur í röðum. Alls voru gerðir 30 þættir í þremur syrpum,. Þessir þættir hafa verið sýndir í rúm­lega 70 löndum og sífellt bæt­ast nýir kaup­endur í hóp­inn.

Broen, Brúin, hét næsta stór­verk­efni, sem kom á skjá­inn 2011. Þeir þættir voru sam­vinnu­verk­efni DR, sænska Sjón­varps­ins SVT og þess þýska ZDF. Þætt­irnir voru 20 í tveimur syrpum og í haust hefj­ast tökur á þeirri þriðju. Þótt ekki nytu þessir þættir sömu vin­sælda á heima­velli og For­brydel­sen og Borgen hafa sjón­varps­stöðvar í 174 löndum keypt sýn­inga­rétt­inn. Í vetur kom svo á skjá­inn fyrsta þátta­röðin undir heit­inu Arvin­gerne (Erf­ingj­arnir), 10 klukku­stund­ar­langir þættir um fjöl­skyldu­deilur. Búið var að selja þennan sjón­varps­mynda­flokk til margra landa áður en sýn­ingar hófust í Danmörku. Önnur syrpa í mynda­flokknum um erf­ingj­ana kemur á skjá­inn í árs­byrjun 2015, og erlendar sjón­varps­stöðvar sem hafa þegar keypt þá þætti skipta tugum.

Fleira mætti nefna af vel­heppn­uðum verkum, til dæmis mynda­flokk­inn Sommer, um sam­nefnda fjöl­skyldu. Áhrifa­miklir þættir sem hreyfðu við mörgum.

1864 – stærsta verkefni sem DR hefur ráðist í


Í sept­em­ber hefj­ast sýn­ingar á þátta­röð sem ber heitið 1864. Þessir þættir byggja á raun­veru­legum atburðum, Slés­vík­ur­stríð­inu árið 1864 þegar Danir lutu í lægra haldi fyrir Prússum og Aust­ur­rík­is­mönnum og töp­uðu stórum hluta rík­is­ins. Þessir þættir eru að sögn þeir dýr­ustu sem DR hefur nokkru sinni ráð­ist í að gera, en stjórn­endur DR eru ekki í vafa um að miklar tekjur komi á móti, því fjöl­margar erlendar sjón­varps­stöðvar hafa þegar fest kaup á þátt­unum.

[caption id="attachment_10197" align="alignnone" width="1500"] Sjón­varps­þátta­röðin 1864 hóf göngu sína á RÚV síð­ast­liðið mánu­dags­kvöld.[/caption]

Fyrir nokkru kom fram í dönsku dag­blaði að á síð­ustu sex árum hefði DR selt sjón­varps­þættir fyrir upp­hæð sem jafn­gildir 6 millj­örðum íslenskra króna og sú upp­hæð fer stöðugt hækk­andi.

Hver er galdurinn?


Margir hafa velt fyrir sér ástæðum þess að danskir sjón­varps­þættir njóta slíkra vin­sælda víða um heim. Ingolf Gabold, sem var yfir­maður leik­list­ar­deildar DR frá 1999–2012, telur ástæð­urnar nokkrar. Í fyrsta lagi þurfi fjár­magn og þá dugi ekki að horfa til skamms tíma heldur ára­tuga. Í öðru lagi þurfi að leggja mikla vinnu í að þjálfa hand­rits­höf­unda, ef hand­ritið haldi ekki verði mynda­flokk­ur­inn aldrei neitt neitt. Aðal­per­són­urnar þurfi líka allar að hafa sína sögu, til hliðar við aðal­at­burða­rás­ina, þetta er mjög mik­il­vægt segir Ingolf Gabold, því þannig skírskoti þætt­irnir til mun breið­ari hóps. Ekki er síður mik­il­vægt að vanda leik­ara­valið, ef hugsað er til dæmis til nýj­ustu þáttar­að­ar­innar, Arvin­gerne, skilst vel hvað við er átt. Þar smellpassa allir leik­arar við per­sónur verks­ins. Svo er það tækni­hliðin, segir Ingolf Gabold, það tekur mörg ár að þjálfa upp þá færni sem til þarf. Í stuttu máli, segir hinn reynslu­mikli Ingolf Gabold: „Peningar, þolin­mæði og mark­viss stefna. Þetta höfum við Danir getað, og svo má ekki gleyma kynn­ingar- og sölu­hlið­inni. Þar kemur það líka til góða að margar danskar kvik­myndir hafa náð alþjóð­legum vin­sældum og það skiptir líka máli.“ Höfundur þessa pistils átti einmitt við hann langt sam­tal fyrir nokkru um þessi mál.

Þorgeir Þor­geir­son gaf sig ekki út fyrir að vera spá­maður. Í fyr­ir­lestr­inum sem minnst var á í upp­hafi þessa pistils nefndi hann hvað þyrfti til að kom­ast í fremstu röð við gerð sjón­varps­efnis. Hann vissi greini­lega hvað hann söng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár