Vandamálin hrannast upp í Evrópu - kreppa handan við hornið?

Hæga­gangur í evr­ópska hag­kerf­inu er far­inn að hafa mikil nei­kvæð áhrif á horfur í alþjóða­hag­kerf­inu, sam­kvæmt umfjöll­unum sem birst hafa í fag­tíma­ritum um efna­hags­mál og við­skipti að und­an­förnu. Tölur sem sýndu 5,8 pró­sent minnkun útflutn­ings­tekna þýska hag­kerf­is­ins í ágúst­mán­uði, miðað við árið á undan, þykja til marks um að þörf sé á miklum örv­un­ar­að­gerðum til við­bótar við þær sem þegar hefur verið gripið til. Kreppa er jafn­vel sögð handan við hornið, það er nei­kvæður hag­vöxtur, ef ekki verður brugð­ist við.

Seðla­banki Evrópu hefur til­kynnt að bank­inn muni hugs­an­lega liðka fyrir aðgengi fyr­ir­tækja í Evrópu að fjár­magni, með örv­un­ar­að­gerðum, ef þörf verður á. Þessum fréttum var vel tekið á mark­aði í gær, bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Vísitala Nasdaq hækk­aði um 2,4 pró­sent, sem er mesta dags­hækkun frá því í jan­úar 2013, eftir þessi ann­ars lág­stemmda yfir­lýs­ing kom fram. Tíu dag­arnar þar á undan höfðu verið þeir verstu á mörk­uðum frá því árið 2009, þegar flestir mark­aðir voru í frjálsu falli. Þá hefur verð­lækkun á olíu í byrj­unar mán­að­ar­ins verið til marks um dvín­andi eft­ir­spurn, en und­an­farna daga hefur verið lítið eitt hækkað, eftir ríf­lega 17 pró­sent lækkun á þriggja vikna tíma­bili.

Atvinnu­leysi mælist ríf­lega tíu pró­sent að með­al­tali í Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum, mest í Suður-Evrópu en minna eftir því sem norðar dregur. Hræðslan hjá fjár­festum snýr öðru fremur að því að ekki sé að takast að skapa hag­vöxt, og þar með ný störf í álf­unni. Einn þeirra sem hefur miklar áhyggjur af þróun mála er Eric S. Ros­en­gren, einn æðstu stjórn­enda banda­ríska seðla­bank­ans. Hann viðr­aði áhyggjur sínar opin­ber­lega á dög­unum. Hans áhyggjur fel­ast öðru fremur í því að fyr­ir­tæki í Evrópu séu ekki að vaxa nóg, eft­ir­spurn sé ekki nægi­lega mikil. Þegar kemur að ríf­lega 500 millj­óna íbúa­svæði þá getur þetta verið risa­vaxið vanda­mál fyrir heims­bú­skap­inn.

Verð­bólgu­mæl­ingar fyrir evru­svæðið hafa verið í takt við spár, en þær nýj­ustu sýna minnstu verð­bólgu á evr­svæð­inu sem mælst hefur frá því í jan­úar 2009, 0,3 pró­sent. Þetta veldur að ein­hverju leyti áhyggjum, því verð­hjöðnun er skammt undan, það er nei­kvæð verð­þróun. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem hag­stofa Evrópu, Eurostat, birti 17. októ­ber síð­ast­lið­inn, þá minnk­aði fram­leiðsla iðn­fyr­ir­tækja um 1,4 pró­sent milli ára.

Stöðugur lít­ill hag­vöxtur á evru­svæð­inu, lítil fjölgun starfa og dvín­andi eft­ir­spurn eru helstu áhyggju­efnin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár