Erlendir gestir á Iceland Airwaves 125 prósent fleiri en 2010

Gestir á Iceland Airwaves hátíð­inni í ár verða rúm­lega níu þús­und, að sögn Gríms Atla­sonar, fram­kvæmda­stjóra hennar. Uppselt er á hátíð­ina, sem fer fram dag­anna 5-9 nóv­em­ber næst­kom­andi, níunda árið í röð. Í fyrra voru gestir hennar tæp­lega átta þús­und tals­ins. Þeim fjölgar því tæp þrettán pró­sent á milli ára. Miði á hátíð­ina kost­aði 18.500 krónur í almennri sölu. Hafi allir miðar á hátíð­ina farið á því verði væri miða­sölu­hagn­aður af henni 166,5 millj­ónir króna.

Erlendir gestir rúmlega tvöfalt fleiri


Grímur segir að um 4.000 Íslend­ingar og rúm­lega 5.000 erlendir gestir hafi tryggt sér miða á hátíð­ina í ár. Fjöldi gesta hefur vaxið hratt und­an­farin ár. Þeir voru alls um 6.300 árið 2010, 6.800 árið eftir og um 7.000 árið 2012. Í fyrra voru þeir síðan 7.974 alls. Fjöldi seldra miða hefur því auk­ist um 2.700 frá árinu 2010, eða um 30 pró­sent.

[quote font="0" align="right"]Erlendum gestum hefur fjölgað gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Árið 2010 komu 2.215 slíkir á Iceland Airwaves. Í ár eru þeir yfir 5.000[/quote]

Erlendum gestum hefur fjölgað gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Árið 2010 komu 2.215 slíkir á Iceland Airwaves. Í ár eru þeir yfir 5.000. Fjöldi þeirra hefur því meira en tvö­fald­ast á síð­ustu árum. Flestir erlendu gest­anna koma frá Banda­ríkj­unum, Þýska­landi og Bret­landi. Það er enda ein af þremur meg­in­stoðum hátíð­ar­innar, sem er haldin í sam­starfi við Icelandair og Reykja­vík­ur­borg, að fjölga ferða­mönnum í höf­uð­borg­inni utan háann­ar­tíma. Hinar tvær stoð­irnar eru að koma íslenskri tón­list á fram­færi erlendis og að halda tón­list­ar­há­tíð á heims­mæli­kvarða.

Eyða fullt af peningum í Reykjavík


Efna­hags­lega skiptir koma allra þess­arra erlendu ferða­manna líka miklu máli. Árið 2012 eyddu gestir Iceland Airwaves alls um 1,1 millj­arði króna innan Reykja­víkur, sam­kvæmt könnun sem aðstand­endur hátíð­ar­innar og Útón gerðu. Með­al­gest­ur­inn sem kemur á Iceland Airwaves var, sam­kvæmt sömu könnun, 30 ára gam­all. Hann gisti á hót­eli eða gisti­heim­ili og eyddi að með­al­tali 200 þús­und krónum í Reykja­vík á meðan að hann dvaldi í henni, sem er um 6,7 dagar að með­al­tali. Auk þess eyða gest­irnir tölu­verðum fjár­munum utan Reykja­víkur, til dæmis í Bláa lón­inu.

Alls munu 220 tón­list­ar­menn koma fram á Iceland Airwaves í ár. Til við­bótar við hátíð­ina sjálfa eru haldnir alls 674 svo­kall­aðir „off-venue“ tón­leikar á hátíð­inni í ár. Þeir eru haldnir víðs­vegar um Reykja­vík og búast aðstand­endur við að fjöldi þeirra sem muni sækja þá tón­leika verði á bil­inu 50 til 60 þús­und manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár