Rússíbanareiðin á Wall Street heldur áfram

Eftir verstu mark­aðsviku í Banda­ríkj­unum í meira en þrjú ár, þar sem rauðar tölur lækk­unar sáust dag eftir dag, varð skörp hækkun á hluta­bréfum í dag. Þannig hækk­aði vísi­tala Nasdaq um 2,4 pró­sent sem telst mikil hækkun á einum degi. Þetta er mesta dags­hækkun á hluta­bréfum í Banda­ríkj­unum síðan í jan­úar 2013, sam­kvæmt fréttum Wall Street Journal.

Hækk­un­ina má rekja til góðra við­taka fjár­festa á nýj­ungum frá Apple, og síðan yfir­lýs­inga Seðla­banka Evrópu um að hugs­an­lega muni bank­inn fara að kaupa fyr­ir­tækja­skulda­bréf í Evrópu, til að aðstoða fyr­ir­tæki. Hagtölur í Evrópu hafa valdið miklum áhyggjum hjá fjár­festum upp á síðkastið, ekki síst þar sem hag­vöxtur mælist lít­ill sem eng­inn í augna­blik­inu, og útflutn­ings­geir­inn hefur ekki verið að ná sér eins og vonir stóðu til um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár