Útlendingarstofnun of fámenn til að sinna hlutverki sínu

„Útlend­inga­stofnun er enn of fámenn til að henni sé unnt að sinna hlut­verki sínu með við­un­andi hætti“. Þetta kemur fram í ávarpi Krist­ínar Völ­und­ar­dóttur, for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar, í árs­skýrslu stofn­un­ar­innar fyrir árið 2013 sem var birt á vef hennar fyrr í dag. Til að bæta úr þessu ástandi þurfi að halda „áfram að berj­ast fyrir þeim mannauði sem nauð­syn­legur er stofnun sem þess­ari og fá til starfa land­fræð­inga, gæða­stjóra og upp­lýs­inga­full­trúa svo eitt­hvað sé nefnt og þá er nauð­syn­legt að hlúa að þeim starfs­mönnum sem fyrir eru“.

Kjarninn greindi fyrr í dag frá því að umsóknum um hæli á Íslandi hafi verið fimm­falt fleiri í fyrra en árið 2009.

Móttökumiðstöð fyrir hælisleitendur


Útlend­inga­stofnun hefur oft verið harð­lega gagn­rýnd í opin­berri umræðu vegna með­ferðar á umsóknum ýmissa hæl­is­leit­enda. Í ávarp­inu segir Kristín að það vilji oft gleym­ast að hjá „stofn­un­inni starfar fólk sem fer eftir þeim lögum og reglum sem Alþingi og ráðu­neyti hefur sett mála­flokknum og að mark­mið starfs­manna er að gera eins vel við við­skipta­vini og unnt er innan þess ramma“.

Kristín segir í ávarp­inu að mjög áhuga­verðar breyt­ingar hafi jafn­framt átt sér stað nýverið hjá stofn­un­inni og megi þar „nefna laga­breyt­ingar er snúa að kæru­nefnd útlend­inga­mála, heim­ild til flýti­með­ferðar í til­teknum málum og auknum heim­ildum til veit­ingar dval­ar­leyfa til hæl­is­leit­enda sem ekki telj­ast flótt­menn en hafa þurft að bíða lengi eftir nið­ur­stöðu í sínu máli. Þess er að vænta að fleiri breyt­ingar eigi sér stað á árinu 2014, bæði er snúa að verk­ferlum og máls­með­ferð stofn­un­ar­innar, auk þess sem vonir standa til að ráðu­neytið setji á fót mót­töku­mið­stöð fyrir hæl­is­leit­endur sem hingað koma. Því eru spenn­andi og áhuga­verði tímar framundan“.

Einungis 16 prósent fékk hæli


Í frétt Kjarnans sem birt­ist fyrr í dag kom fram að ein­ungis 16 pró­sent þeirra 172 sem sóttu um hæli á Íslandi í fyrra hefðu fengið slíkt. Í ávarpi Krist­ínar segir að starfs­árið 2013 hefði verið óvenju­legt vegna þess að „í fyrsta skipti kom til lands­ins skyndi­leg og óút­skýrð bylgja af hæl­is­leit­endum frá til­teknum löndum. Fljót­lega eftir ára­mót fór að bera á komum fjöl­skyldna frá Króatíu en flestir komu á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Á tíma­bil­inu mars til sept­em­ber kom síðan fjöldi ein­stak­linga frá Albaníu. Þessir tveir hópar sam­an­stóðu af 89 ein­stak­lingum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár