Fjöldi hælisumsókna hefur fimmfaldast frá árinu 2009

Hæl­is­um­sóknum á Íslandi hefur fjölgað mikið á und­an­förnum árum. Í fyrra bár­ust 172 umsóknir en árið 2009 voru þær 35 alls. Þær hafa því fimm­fald­ast á fjórum árum. Þetta kemur fram í árs­skýrslum Útlend­inga­stofn­unar fyrir árin 2011 til 2013.

Stofn­unin hefur ekki birt slíkar skýrslur um nokk­urra ára skeið en birtir nú þrjár í einu. Í til­kynn­ingu frá Útlend­inga­stofnun kemur fram að skýrslu­gerðin hafi setið á hak­anum und­an­farin ár vegna álags hjá stofn­un­inni. Hægt er að lesa þær hér. 

Einungis 16 prósent fengu hæli í fyrra


Í skýrsl­unum má sjá að hæl­is­um­sóknum hefur fjölgað um 50 pró­sent frá ári til árs frá árinu 2009. Þar kemur einnig fram að saxað hafi verið á hinn svo­kall­aða mála­hala, sam­an­safni ólok­inna mála hjá stofn­un­inni. Í lok árs 2012 hafi um 80 málum verið ólokið hjá Útlend­inga­stofnun en þau hafi verið 56 í lok árs 2013.

Tíðni veit­inga hælis er mjög mishá eftir árum. 2011 fengu 67 pró­sent þeirra sem ósk­uðu eftir hæli hér­lendis slíkt og ári síðar 41 pró­sent. Í fyrra fengu ein­ungis 16 pró­sent þeirra sem sóttu um hæli á Íslandi slíka veit­ingu. Samkvæmt til­kynn­ingu Útlend­inga­stofn­unar skýrist þetta „að miklu leyti af stórum hópum hæl­is­leit­enda frá öruggum Evr­ópu­ríkjum, einkum Albaníu og Króatíu“. Það sem af er árinu 2014 hefur veit­ing­ar­hlut­fallið verið um eða yfir 50 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár