Reiðubúin að beita vopnum á týndan kafbát

Sænski sjó­her­inn er undir það búinn að beita vopna­valdi finn­ist erlendi kaf­bát­ur­inn sem her­inn leitar nú log­andi ljósi í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm. Frá þessu greina sænskir fjöl­miðlar í dag. Leitin hefur staðið yfir síðan á föstu­dag eftir að upp­lýs­ingar bár­ust um „erlendar aðgerðir neð­an­sjávar“ milli skerj­anna á Eystra­salti.

[quote font="0" align="right"]?„Markmið okkar er að koma þessu upp á yfir­borðið, hvað sem það kann að vera… með vopna­valdi ef þörf krefur.“[/quote]

Orustu­skip, tund­ur­spillar, þyrlur og meira en 200 manna her­lið hafa leitað á nokkuð stóru svæði yst í skerja­garð­inum, ein­hverjum 30 til 60 kíló­metrum frá mið­borg Stokk­hólms. Þrír gáfu sig fram um helg­ina og sögð­ust hafa séð óþekkt sjó­far á þessum slóðum. Dagens Nyheter greinir frá því í dag að meira en 100 til­kynn­ingar hafi borist frá sjón­ar­vottum. Upp­lýs­ingar sjó­hers­ins benda til þess að um erlent mann­gert sjó­far er að ræða.

„Lyk­il­at­riði í þess­ari aðgerð - þá skiptir engu hvort við finnum eitt­hvað - er að sýna að Svíþjóð og her lands­ins er í við­bragðs­stöðu virði ein­hvert ríki landa­mæri okkar að vettugi,“ sagði Sverker Göranson her­for­ingi. „Markmið okkar er að koma þessu upp á yfir­borðið, hvað sem það kann að vera... með vopna­valdi ef þörf krefur.“

[caption id="attachment_10146" align="alignnone" width="1024"] Sænski her­inn leitar á orustu­skipum, tund­ur­spillum og þyrlum auk þess sem meira en 200 manns leita.[/caption]

Göranson benti jafn­framt á gríð­ar­lega erfitt getur verið að fylgj­ast með og finna kaf­báta. Svíþjóð eða nokkru öðru landi hafi aldrei tek­ist það áður, sagði hann. Leit sænska hers­ins hefur nú staðið í fimm daga án þess að nokkuð hafi fund­ist. Einhver her­skip hafa verið send út fyrir skerja­garð­inn til leitar í Eystra­salti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár