Ríkisskattstjóri vill 245 milljónir króna frá 365 miðlum

Skatta­yf­ir­völd hafa krafið 365 miðla um 245 millj­ónir króna auk vaxta vegna end­ur­á­lagn­ingar opin­berra gjalda fyrir árið 2009 til 2012. Þetta stað­festir Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri 365 miðla, í sam­tali við Kjarnann. Boðuð end­ur­á­kvörðun snýst um nið­ur­fell­ingu vaxta á lánum sem eru til­komin vegna öfugs sam­runa Rauð­sólar ehf. og 365 miðla þann 1. jan­úar 2009. 365 miðlar ætla að taka til varna í mál­inu. Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins, sem var nýverið skilað inn til fyr­ir­tækja­skráar, segir að tap­ist málið „getur það haft veru­leg áhrif á eig­in­fjár- og lang­tíma­stöðu félags­ins“.

Rauðsól, sem þá var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, keypti 365 miðla af 365 ehf. í nóv­em­ber 2008 á 1,5 millj­arð króna og með yfir­töku á hluta af skuldum félags­ins. Gamla 365 ehf., sem var end­ur­nefnt Íslensk afþrey­ing ehf., fór í þrot og kröfu­hafar þess töp­uðu 3,7 millj­örðum króna.

Í dag er Ingi­björg Pálma­dóttir, eig­in­kona Jóns Ásgeirs, aðal­eig­andi 365 miðla. Auk hennar munu fyrrum hlut­hafar fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Tals verða í hlut­hafa­hópnum ef sam­runi Tals og 365 miðla verður sam­þykktur af sam­keppn­is­yf­ir­völdum. Á meðal óbeinna eig­enda tals eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Öfugur samruni


Þann 3. apríl síð­ast­lið­inn sendi rík­is­skatt­stjóri boð­un­ar­bréf til 365 miðla þar sem fram kom að fyr­ir­tæk­inu hefði ekki verið heim­ilt að nýta sér skatta­legt tap sem mynd­að­ist hjá félag­inu Rauðsól ehf. áður en það sam­ein­að­ist 365 miðlum, frá skatt­greiðslum. Í árs­reikn­ingi 365 miðla segir að „vaxta­gjöld lána, sem tekin voru til að kaupa eign­ar­hlut í dótt­ur­fé­lag­inu 365 miðlum ehf., af Rauðsól og nýtt hafa verið til frá­dráttar sköttum hjá sam­ein­uðu félagi og hafa myndað yfir­fær­an­legt tap, nema 1.908 millj. kr.“ Sú upp­hæð er stofnin sem ætluð skuld 365 miðla reikn­ast af. Tapi 365 miðlar mál­inu mun fyr­ir­tækið þurfa að greiða 245 millj­ónir króna í van­goldna skatta auk vaxta.

[caption id="attachment_1003" align="aligncenter" width="730"] Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í Toyota-mál­inu að vaxta­gjöld félaga sem hafi gengið í gegnum öfugan sam­runa séu ekki frá­drátt­ar­bær frá skatti.[/caption]

End­ur­á­lagn­ingin byggir á túlkun skatta­yf­ir­valda á því hvað megi gera þegar svo­kall­aðir öfugir sam­runar eiga sér stað. Þá kaupir félag, í þessu til­felli Rauðsól ehf., rekstr­ar­fé­lag með skuld­setri yfir­töku, sam­einar síðan félögin tvö. Rek­star­fé­lagið er þá farið að greiða skuld­irnar sem stofnað var til þegar það var keypt. Þetta kall­ast öfugur sam­runi.

Mörg fyr­ir­tæki á Íslandi hafa litið svo á að við slíka sam­ein­ingu séu vaxta­gjöld af lán­unum sem tekin voru vegna svona sam­runa séu frá­drátt­ar­bær frá skatti. Skatta­yf­ir­völd hafa verið þessu ósam­mála og Hæsti­réttur hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í Toyota-mál­inu svo­kall­aða að skiln­ingur þeirra sé réttur. Í því máli reyndi Toyota á Íslandi að fá end­ur­á­lagn­ingu skatta­yf­ir­valda hnekkt fyrir dómi, en Hæsti­réttur sýkn­aði íslenska ríkið. Skúli Eggert Þórðason, rík­is­skatt­stjóri, hefur sagt í fjöl­miðlum að hann líti á dóm­inn sem for­dæm­is­gef­andi og að hann gæti haft áhrif á mörg íslensk fyr­ir­tæki sem hefðu farið í gegnum öfugan sam­runa. Húsa­smiðjan hefur til að mynda þegar greitt um 700 millj­ónir króna vegna þessam búið er að end­ur­á­leggja 1,3 millj­arða króna á Icelandair Group, einn millj­arð króna á Ölgerð­ina og um 2,5 millj­arða króna á Skipti/Símann.

Veruleg áhrif á langtímastöðu tapist málið


Eitt slíkt fyr­ir­tæki til við­bótar er 365 miðlar. Það hefur nýtt sér skatta­legt tap sem mynd­að­ist hjá Rauðsól ehf. og dregið vaxta­gjöld af lánum sem notuð voru til að kaupa fjöl­miðla 365 í nóv­em­ber 2008 frá skatt­greiðslum. Rík­is­skatt­stjóri telur fyr­ir­tækið skulda 245 milljonir króna í skatta vegna þessa.

Í árs­reikn­ingi 365 segir að „félagið hefur ekk­ert gjald­fært í rekstr­ar­reikn­ingi vegna þessa og hefur haldið uppi vörnum í mál­inu, enda telja stjórn­endur þess að atvik séu með öllu ósam­bæri­leg og í fyrr­nefndu dóms­máli [Toyota-mál­inu]. Rök­semdir stjórn­enda byggja á áliti ytri sér­fræð­inga. Óvissa er því hvort félag­inu hafi verið heim­ilt að draga vaxta­gjöldin frá skatt­skyldum tekjum sínum.Tapist málið getur það haft veru­leg áhrif á eig­in­fjár- og lang­tíma­stöðu félags­ins“.

Góður rekstur undanfarin ár en miklar skuldir


Rekstur 365 miðla hefur gengið vel á und­an­förnum árum. Velta félags­ins í fyrra var um 10,4 millj­arðar króna og hafn­aður 746 millj­ónir króna. Árið áður var hagn­að­ur­inn 305 millj­ónir króna og árin tvö á undan því skil­uðu um 600 millj­ónum krónum sam­tals í hagnað.

Þrátt fyrir gott gengi er 365 miðlar en mjög skuld­sett félag. Skuldir þess hækk­uðu umtals­vert á milli áranna 2012 og 2013 og voru 7,9 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Eignir félags­ins eru hins vegar metnar á 11,2 millj­arða króna. Þar munar lang­mest um óefn­is­legar eignir upp á 6,2 millj­arða króna. Samkvæmt árs­reikn­ingi var eigið fé félags­ins 3,3 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár