Erla Hlynsdóttir sigraði ríkið fyrir mannréttindadómstólnum

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu kvað í morgun upp dóm í máli Erlu Hlyns­dóttur gegn Íslandi og komst að þeirri nið­ur­stöðu að brotið hefði verið gegn 10. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um tján­ing­ar­frelsi og dæmdi íslenska ríkið til að greiða Erlu 1,2 millj­ónir króna vegna máls­ins.

Hæsti­réttur Íslands dæmdi Erlu, sem þá var blaða­maður á DV, fyrir meið­yrði vegna ummæla sem höfð voru eftir við­mæl­anda í frétt um eig­in­konu Guð­mundar Jóns­sonar, kenndum við Byrgið, sem birt var í DV þann 31. ágúst 2007.

Í frétt­inni sem Erla skrif­aði í ágúst 2007 voru ýmis ummæli um Guðmund og eig­in­konu hans höfð eftir tveimur við­mæl­endum. Eig­in­kona Guð­mundar stefndi bæði við­mæl­end­unum og Erlu fyrir meið­yrði og krafð­ist þess að fjórtán ummæli yrðu ómerkt.

Dæmd fyrir ummæli sem höfð voru eftir öðrum


Í febr­úar 2010 dæmdi Hæsti­réttur Erlu til að greiða eig­in­konu Guð­mundar 400 þús­und krónur í bætur vegna ummæla sem höfð voru eftir öðrum við­mæl­and­anum, en hún var ein þeirra stúlkna sem Guð­mundur hafði verið dæmdur fyrir að hafa kyn­ferð­is­mök við. Í raun var um hluta af ummælum að ræða, því í dómi Hæsta­réttar var ummælum sem kraf­ist var ómerk­ingar á skipt upp, og nið­ur­lag ummæl­anna stríði gegn lögum. Ummælin sem um ræðir eru eft­ir­far­andi: „… ekki við hæfi að sú sem veiðir fyrir hann vinni í grunn­skóla.“

[quote font="0" align="right"]Við­mæl­end­urnir höfn­uðu því báðir að rétt hefði verið eftir þeim haft í grein Erlu og þar sem upp­töku af sam­tali hennar við þá hafði verið fargað þótti Hæsta­rétti að ekki hefðu verið leiddar sönnur á því að ummælin hefðu verið höfð eftir við­mæl­end­unum. Þess vegna dæmdi hann að Erla bæri skaða­bóta­á­byrgð.[/quote]

Hæsti­réttur sagði að með þessum orðum hafi verið gefið til kynna að eig­in­kona Guð­mundar hefði gerst sek um refsi­vert athæfi, sem væri ekki sannað. Við­mæl­end­urnir höfn­uðu því báðir að rétt hefði verið eftir þeim haft í grein Erlu og þar sem upp­töku af sam­tali hennar við þá hafði verið fargað þótti Hæsta­rétti að ekki hefðu verið leiddar sönnur á því að ummælin hefðu verið höfð eftir við­mæl­end­unum. Þess vegna dæmdi hann að Erla bæri skaða­bóta­á­byrgð.

Þessari nið­ur­stöðu vildi Erla og lög­maður hennar ekki una og kæru málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, sem í morgun dæmdi henni í vil.

Erla og Björk unnu mál fyrir tveimur árum


Þetta er í annað sinn sem Erla fer með mál fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn. Hún hafði verið dæmd fyrir meið­yrði í des­em­ber 2009 fyrir ummæli um eig­anda nekt­ar­dans­stað­ar­ins Strawberries sem hún hafði eftir við­mæl­anda. Íslenskir dóm­stólar gerðu Erlu per­sónu­lega ábyrga fyrir ummælum við­mæl­anda síns og dæmdu hana bóta­skylda. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu í júlí 2012 að með dómnum hefði verið brotið gegn 10. grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu og dæmdi íslenska ríkið til að greiða Erlu skaða­bætur.

Sama dag komst Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn að sömu nið­ur­stöðu í máli ann­arrar blaða­konu, Bjarkar Eiðs­dóttur, sem dæmd hafði verið meið­yrði vegna ummæla sem höfð voru eftir við­mæl­anda. Nið­ur­staðan var sú sama utan þess að Björk fékk hærri bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár