Facebook gengur frá WhatsApp samningnum

Facebook hefur end­an­lega gengið frá kaupum á sam­skipta­for­rits­fyr­ir­tæk­inu WhatsApp fyrir um 19 mill­lj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 2.200 millj­örðum króna. Tilkynnt var um kaupin fyrir um hálfu ári, í febr­úar á þessu ári. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar en stofn­endur WhatsApp, Brian Acton og Jan Koum, fengu greitt fyrir í reiðufé og hluta­bréfum í Facebook. Úkra­ínu­mað­ur­inn Koum græddi um 6,8 millj­arða Banda­ríkja­dala á samn­ingnum og verk­fræð­ing­ur­inn Acton um 3,5 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Í umfjöllun Forbes um samn­ing­inn er sér­stak­lega tekið fram að Facebook hafi borgað meira en sem nemur árlegri „lands­fram­leiðslu Íslands“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár