Meðallestur Morgunblaðsins minnkað um helming frá 2006

Þrjú mest lesnu dag­blöð lands­ins, Frétta­blaðið, Frétta­tím­inn og Morg­un­blaðið, hafa öll tapað tölu­verðum lestri und­an­farin miss­eri. Með­al­lestur á Morg­un­blað­inu er til að mynda tæp­lega helm­ingi minni en hann var árið 2006 og Frétta­blaðið hefur misst fimmt­ung les­enda sinna á átta árum. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Capacent, sem mælir lestur íslenskra prent­miðla mán­að­ar­lega.

Risinn í hnignun


Frétta­blaðið, sem dreift er frítt á heim­ili lands­ins í um 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unnar, hefur lengi borið höfuð og herðar yfir aðra miðla þegar kemur að lestri. Forskot frí­blaðs­ins er enn mikið en lest­ur­inn hefur hins vegar dalað mjög und­an­farin ár.

Í sept­em­ber 2006 var með­al­lestur á hvert tölu­blað Frétta­blaðs­ins 68,8 pró­sent. Þá var upp­lag blaðs­ins 103 þús­und ein­tök og mæl­ingar Capacent náðu yfir ald­urs­hóp­inn 12-80 ára. Í dag mælir Capacent lestur Íslend­inga á aldr­inum 18-80 ára. Lestur Frétta­blaðs­ins var minnstur í yngsta ald­urs­hópnum þannig að ef hann yrði dregin frá hefði með­al­lestur verið enn hærri.

[quote font="0" align="right"]Samkvæmt nýj­ustu könnun Capacent var með­al­lestur á hvert blað hins vegar komin niður í 54,5 pró­sent í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Hlutfall þeirra sem lesa Frétta­blaðið að jafn­aði er því um 21 pró­sent lægra en það var fyrir átta árum.[/quote]

Lest­ur­inn hélst nokkuð stöð­ugur næstu árin þótt örlítið hafi fjarað undan þeirri gríð­ar­sterku stöðu sem dag­blaðið hafði. Í apríl 2010 var hann til dæmis enn um 64 pró­sent. Samkvæmt nýj­ustu könnun Capacent var með­al­lestur á hvert blað hins vegar komin niður í 54,5 pró­sent í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Hlutfall þeirra sem lesa Frétta­blaðið að jafn­aði er því um 21 pró­sent lægra en það var fyrir átta árum.

Vert er að taka fram að upp­lag Frétta­blaðs­ins hefur minnkað á þessu tíma­bili. Það er nú um 90 þús­und ein­tök.

Fréttatíminn á niðurleið í lestri


Hitt frí­blaðið, Frétta­tím­inn, kemur út einu sinni í viku, á föstu­dögum. Blaðið kom fyrst út í októ­ber 2014 og er dreift frítt í 83 þús­und ein­tökum á heimii fólks. Þegar Frétta­tím­inn kom fyrst inn í mæl­ingar Capacent í mars 2011 mæld­ist með­al­lestur blaðs­ins 41,75 pró­sent.

Þorra þess tíma sem liðið hefur frá fyrstu mæl­ing­unni hefur blaðið mælst með yfir 40 pró­sent lestur. Í mars í ár varð breyt­ing þar á þegar lest­ur­inn fór niður í 39,78 pró­sent. Síðan þá hefur hann fallið skarpt og í sept­em­ber var hann 36,95 pró­sent. Lest­ur­inn hefur því dreg­ist saman um rúm ell­efu pró­sent frá fyrstu mæl­ingu vorið 2011.

Helmingi færri lesa Moggann


Morg­un­blaðið er elsta starf­andi dag­blað lands­ins. Það kom fyrst út í nóv­em­ber 1913 og hefur verið risi á íslenskum dag­blaði nán­ast alla tíð síðan. Þ.e. fyrir utan allra síð­ustu ár þegar fjarað hefur hratt undan sterkri stöðu blaðs­ins.

Í maí 2006 var með­al­lestur á Morg­un­blaðið 54,3 pró­sent, sam­kvæmt mæl­ingum Capacent sem þá mældu lestur Íslend­ingar á aldr­inum 12-80 ára. Í dag mælir Capacent lestur Íslend­inga á aldr­inum 18-80 ára. Lestur Morg­un­blaðs­ins var minnstur í yngsta ald­urs­hópnum þannig að ef hann yrði dregin frá hefði með­al­lestur verið enn hærri.

Í jan­úar 2009, tæpum þremur árum síðar, var lest­ur­inn kom­inn niður í 42,72 pró­sent og í sept­em­ber síð­ast­liðnum 28,9 pró­sent. Lesendur Morg­un­blaðs­ins voru því tæp­lega helm­ingi fleiri fyrir átta árum síðan en þeir eru í dag.

[quote font="0" align="right"]Í jan­úar 2009, tæpum þremur árum síðar, var lest­ur­inn kom­inn niður í 42,72 pró­sent og í sept­em­ber síð­ast­liðnum 28,9 pró­sent. Lesendur Morg­un­blaðs­ins voru því tæp­lega helm­ingi fleiri fyrir átta árum síðan en þeir eru í dag.[/quote]

Þegar lest­ur­inn er skoð­aður í yngri les­enda­hópnum sem mældur er í dag, 18-49 ára, er staðan enn verri. Í jan­úar 2009 lásu 32,84 pró­sent í þeim hópi Morg­un­blaðið. Í sept­em­ber var sú tala komin niður í 20,66 pró­sent. Ef fram fer sem horfið mun því undir fimmt­ungur yngri hluta Íslend­inga lesa Morg­un­blaðið innan skamms. Vert er þó að taka fram að Morg­un­blaðið er áskrift­ar­blað og slík hafa átt mjög undir högg að sækja með til­komu net­miðla og ann­arra starænna breyt­inga á miðlun efnis.

DV (tveir viku­legir útgáfu­dagar) og Við­skipta­blaðið (einn viku­legur útgáfu­dagur), sem eru bæði áskrift­ar­blöð, mæl­ast bæði með mun minni lestur en stóru blöðin. DV er með um ell­efu pró­sent með­al­lestur og Við­skipta­blaðið rétt rúm­lega níu pró­sent.

Samhliða þess­ari hröðu hnignun hefur staða prent­miðla á aug­lýs­inga­mark­aði veikst hratt. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þá þróun í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár