New York Times líkir hinni íslensku Vök við The XX

Banda­ríska stór­blaðið The New York Times fjall­aði um nýja stutt­skífu íslensku hljóm­sveit­ar­innar Vök, sem ber heitir „Tension“, á vef sínum um helg­ina. Í umfjöllun blaðs­ins segir að sann­ar­lega sé hægt að sjá lík­indi með Vök og bresku hljomsveit­inni The XX, sem fékk meðal ann­ars hin eft­ir­sóttu Mercury tón­list­ar­verð­laun fyrir frumraun sína sem kom út árið 2009. Plata The XX var auk þess í efsta sæti hjá The Guardian það árið yfir plötur árs­ins og í öðru sæti hjá NME.

Vök, sem sigr­aði Músiktil­raunir árið 2012, gaf út fimm laga stutt­skífu í Banda­ríkj­unum hjá MuseBox útgáf­unni í síð­asta mán­uði. Tvö lag­anna eru á ensku en þrjú á Íslensku. Í umfjöllun The New York Times segir að Vök deili hægu tempói, hvís­landi kenn­kyns söng­konu, bassa­línum og daupr­legum spurn­ingum í textum sínum með The XX. Vök skeri sig hins vegar frá með stærri hljóð­heim þar sem sax­ó­fónn, hljóð­gervlar, bak­radd­ar­söngur og ýmis­legu öðru er laumað inn.

Margrét Rán Magn­ús­dóttir, söng­kona og helsti laga­höf­und­ur­inn í Vök, var í ítar­legu við­tali við Kjarnann í febr­úar síð­ast­liðnum.

Vök: Tension:


https://www.youtube.com/watch?v=218sAgRn5Kc

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár