Dæmdur fyrir meiðyrði í bloggfærslu á síðu DV

Árni Stefán Árnason, lög­fræð­ingur með dýra­rétt sem sér­svið, var í morgun dæmdur í hér­aðs­dómi Reykja­ness til að greiða Ástu Sig­urð­ar­dóttur 200 þús­und krónur auk vaxta í miska­bætur vegna ummæla sem hann lét falla um hana og rekstur hennar í blogg­færslu á vef­svæði DV í októ­ber 2013.

Ásta rekur fyr­ir­tækið Hunda­rækt­ina ehf., sem elur hunda að Dals­mynni á Kjal­ar­nesi og selur til almenn­ings. Hún er einnig eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Þann 8. októ­ber 2013 var sýndur þáttur í frétta­skýr­ing­ar­röð­inni „Málið“ sem sýnd er á sjón­varps­stöð­inni Skjá­Einum. Þar var fjallað um starf­semi Ástu að Dals­mynni og meinta illa með­ferð dýra sem átti að hafa átt sér stað þar. Árni Stefán var einn við­mæl­enda sem rætt var við í þætt­inum.

Bloggfærsla birtist daginn eftir


DV fjall­aði um þátt­inn í frétt sama dag og vitn­aði til ummæla Árna Stefáns um málið. Daginn eftir, þann 9. októ­ber 2013, birti hann síðan blogg­færslu á vefnum DV.is undir fyr­ir­sögn­inni „Dýraníð að Dals­mynni“.

Ásta taldi ýmis ummæli Árna Stefáns vera æru­meið­andi og var afar ósátt við þau. Í dómnum kemur fram að „með bréfi 18. Nóvember 2013 buðu stefn­endur honum [Árna Stefáni ]... að ná sátt í mál­inu með afsök­un­ar­beiðni og greiðslu hóf­legra miska­bóta að upp­hæð 1.000.000.kr.“ Boðinu var ekki svarað og því var meið­yrða­mál höfðað í jan­úar 2014. Stefnt var fyrir fjöl­mörg ummæli og krafð­ist Ásta tveggja millj­óna kr´noa í miska­bætur auk greiðslu máls­kostn­aðar.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að þrenn ummæli skyldu vera dauð og ómerk. Þau eru: „Dýraníð að Dals­mynni“, „ „Rekstr­ar­að­il­inn Ásta Sig­urð­ar­dóttir hefur aug­ljós­lega einnig gerst brot­leg við dýra­vernd­ar­lög með ýmsum hætti. Við brotum Ástu eins og þau blasa við mér getur refs­ing varðað allt að tveggja ára fang­elsi,“ og „Það á ekki við um Ástu sem hefur eitt­hvað að fela.“

Árni Stefán þarf að greiða Ástu 200 þús­und krónur í miska­bætur og henni og fyr­ir­tæki hennar sam­tals 400 þús­und krónur í máls­kostnað. Auk þess var Árna Stefáni gert að birta dóm­inn, for­sendur hans og dóms­orð, á blogg­síðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár