Eins og uppskrift að góðri Bond-mynd

Sænski her­inn hefur síðan á föstu­dag leitað í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm að því sem þeir kalla „erlendum aðgerðum neð­an­sjávar“. Leitað er úr her­skipum og flug­vélum en her­inn hefur varist fregna af mál­inu og ekki viljað stað­festa eða hrekja sögu­sagnir um að rúss­neskur kaf­bátur valdi þessum usla.

„Við erum að reyna að sann­reyna upp­lýs­ingar sem okkur bár­ust á föstu­dag, sem að okkar mati koma úr traustum heim­ildum, og sjá hvort ein­hver fótur sé fyrir þessum upp­lýs­ingum,“ sagði Jesper Tengroth, upp­lýs­inga­full­trúi sænska hers­ins við sænska fjöl­miðla á laug­ar­dag. Spurður hvort eitt­hvað sér­stakt ríki liggi frekar undir grun en annað sagð­ist hann ekki getað svarað. Á vef hers­ins er haft eftir Jonas Wikström, stjórn­anda aðgerð­anna, að ástæðan fyrir því að svæðið úti fyrir skerja­garð­inum sé nú kort­lagt af svo miklum móð sé að þarna sé mikil umferð sjó­fara.

[google_map width="100%" height="200 px" src="https://www.google.com/maps/embed?pb=!1m14!1m8!1m3!1d260256.57361456432!2d18.69487412109374!3d59.36209160880053!3m2!1i1024!2i768!4f13.1!3m3!1m2!1s0x46f5708488b7ab0d%3A0xb71e517625b40c61!2sKanholmsfjarden%2C+Sweden!5e0!3m2!1sis!2sse!4v1413802832702"]

Þó leitin hafi enn ekki borið árangur hefur ekk­ert verið dregið úr krafti leit­ar­innar. Dag Enander, tals­maður hers­ins, sagði í morgun að her­inn hefði „gott úthald“ og mundi ekki gef­ast upp á næstu dögum jafn­vel þó ekk­ert fynd­ist.

Herinn birti myndir í gær af furðu­legu sjó­fari í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm. Ljós­mynd­ar­inn seg­ist hafa séð eitt­hvað á yfir­borði vatns­ins og smellt af en eftir að hann tók mynd­ina hvarf það ofan í hafið á ný. Í sam­tali við Svensk Dag­bla­det í dag seg­ist hann sann­færður um að þetta hafi verið rúss­neskur kaf­bátur. Myndina má sjá hér að neðan.

Þrjár vís­bend­ingar frá sjón­var­vottum hafa borist um stað­setn­ingu kaf­báts­ins, allar í fjörð­unum yst í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm. Vís­bend­ing­arnar eiga jafn­framt að hafa borist á föstu­dag og sunnu­dag svo ein­hver­staðar er kaf­bát­ur­inn þarna enn, ef um kaf­bát er að ræða.

[caption id="attachment_10019" align="alignnone" width="1000"] Á mynd­inni sést hvar eitt­hvað skýtur upp koll­inum í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm. Herinn hefur ekki stað­fest hvaðan þetta sjó­far er eða hverrar gerðar það er. Getgátur eru um að þarna sé rúss­neskur kaf­bátur á ferð.[/caption]

Öll spjót beinast að Rússum


Svenska dag­bla­det greindi frá því í gær að kaf­bát­ur­inn væri rúss­neskur og að öllum lík­indum bil­aður eða lask­aður en sænski her­inn hefur hvorki stað­fest né hrakið þær fréttir. Útskýr­ing dag­blaðs­ins á því hvers vegna kaf­bát­ur­inn hafi skotið sér upp á yfir­borðið er að sé kaf­bátur bil­aður eða lask­aður getur verið erfitt að halda stjórn á honum.

Kafbátur í slíku ásig­komu­lagi þarf aðstoð frá öðru og stærra skipi og benti blaðið á furðu­legt hátta­lag NS Concord, stórs olí­skips í eigu rússa, á miðju Eystra­salti. Skipið virð­ist hafa lagt af stað frá Sankti Pét­urs­borg, silgt út Finn­land­flóa og svo hring­sólað á Eystra­salti norðan Gotlands. Skipið var opin­ber­lega á leið til Dan­merkur.

Í dag barst svo yfir­lýs­ing frá for­stjóra skipa­fé­lags­ins sem gerir út NS Concord þar sem hann seg­ist vera „upp með sér“ vegna auk­ins áhuga á sigl­ingum skips­ins en að enga teng­ingu megi finna við kaf­báta­leit­ina í Svíþjóð. Skipið sé aðeins að bíða fyr­ir­mæla um hvar það skuli ferma lestir sínar.

[caption id="attachment_10024" align="alignnone" width="1023"] Sigl­inga­leið NS Concord frá Sankti Pét­urs­borg og hringeggjan á Eystra­salti um helg­ina.[/caption]

Anders Grenstad, aðmíráll í sænska hernum, sat fyrir svörum á blaða­manna­fundi í Stokk­hólmi í gær en vildi ekki segja hvort um kaf­bát eða kaf­báta væri að ræða. „Upp­lýs­ing­arnar sem her­inn hefur undir höndum gefa ekki vís­bend­ingu um að hér sé á ferð­inni lask­aður rúss­neskur kaf­bátur,“ sagði hann. Þegar eftir því var leitað vildi Grenstad ekki segja hvort her­inn telji Rússa vera lík­leg­ustu söku­dólgana.

Á sunnu­dag kom einnig fram að rúss­neskt rann­sókn­ar­skip sem búið er bún­aði til leitar neð­an­sjávar stefni í átt til Stokk­hólms. Á MarineTracker.com má sjá að skipið var statt fyrir minni Finn­lands­flóa um miðjan dag í gær. Stefna skips­ins er sögð vera á Las Palmas á Kanarí­eyjum.

Christian Allerman, sænskur diplómati sem sinnt hefur verk­efnum fyrir sendi­nefnd Sví­þjóðar í Moskvu, sagði í við­tali við TT-frétta­veit­una sænsku að Rússar væru lík­leg­astir enda væri þar á ferð ríki sem ekki vildi að Svíar rækt­uðu tengsl sín frekar við NATO. „Ef þarna er um mann­gert far­ar­tæki að ræða þá er lík­leg­asta að erlent her­ríki standi hér að baki,“ sagði Allerman.

Hann sagði að lík­leg­ast væri her­inn að leita að kaf­bátum eða köf­urum. „Þetta eru smáir kaf­bátar, eða jafn­vel hefð­bundnir kaf­bátar sem ná 60 eða 70 metra lengd. Það seinna er þó ólík­legra.“

Rússar seg­ast ekk­ert kann­ast við kaf­bát­inn og hafna því alfarið að þeir standi fyrir „aðgerðum neð­ar­sjávar“. Ónefndur emb­ætt­is­maður í Moskvu segir kaf­bát­inn hol­lenskan. Hann hafi verið í Tallin á föstu­dag en sendur þaðan til Sví­þjóðar. „Til að eyða spenn­unni í Eysta­salti og til að spara sænskt skattfé ætti flota­stjórnin að snúa sér til Hollands til að fá skýr­ingar,“ sagði ónefndi emb­ættimað­ur­inn.

Hollensk yfir­völd hafna því alfarið að kaf­bát­ur­inn þeirra sé inn á milli skerj­anna í Svíþjóð. „Við tókum þátt í her­æf­ingu með Svíum í síð­ustu viku. Henni lauk á fimmtu­dag. Bruinvis-bát­ur­inn hélt til Eist­lands þar sem hann hefur legið við bryggju yfir helg­ina. Báturinn er nú á leið til Hollands,“ sagði Marnoes Visser, tals­maður hol­lenska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins við AFP-frétta­veit­una.

[caption id="attachment_10030" align="alignnone" width="1024"] Bruinvis-kaf­bát­ur­inn hol­lenski sem Rússar segja að hafi siglt inn í skerja­garð­inn í Svíþjóð.[/caption]

Erlend öfl 50 km frá Stokkhólmi


Hern­að­ar­sér­fræð­ingur við Varn­ar­mála­há­skóla Sví­þjóðar segir vax­andi spennu á Eystra­salti ein­fald­lega kalla á svona mikil við­brögð við ein­hverju sem kann að reyn­ast ómerki­legt.

„Það er til að sýna að við séum með allt á hreinu,“ segir sér­fræð­ing­ur­inn Stefan Ring. Hann vildi þó fara stíga var­lega til jarðar og benti á að rann­saka þyfti atburð­inn vel áður en hægt væri að benda á söku­dólga.

Und­an­farna mán­uði hafa Rússar fært sig upp á skaftið í Eystra­salti. Svíar hafa til dæmis opin­ber­lega kvartað undan hern­að­ar­að­gerðum Rússa þar. Tilefni kvörn­un­ar­innar var þegar SU24-orustuflug­vél flaug inn i loft­rými Svía og flaug gríð­ar­lega nálægt sænskum far­þega­þotum. Carl Bildt, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, sagði þetta vera mestu „loft­inn­rás“ Rússa í nærri en ára­tug.

En hvaða ástæður gætu legið að baki þegar erlend her­skip eru komin í 50 kíló­metra rad­íus við höf­uð­borg Sví­þjóðar? Johan Wiktorin, með­limur í hern­að­ar­fræða­setri Kon­ung­legu aka­dem­í­unar, telur þrjár lík­legar ástæður í sam­tali við sænska vef­mið­il­inn The Local.

„Þeir gætu verið að kort­leggja haf­svæðið til að geta auð­veldar silgt þarna ef til ófriðar kemur. Þeir gætu verið að koma fyrir ein­hverjum bún­aði, skynj­urum jafn­vel, sem gætu fylgst með her­deildum okkar á þessu svæði. Eða, þeir gætu verið að hlera varn­ar­kerfi okkar, ef við höfum eitt­hvað á þessu svæði,“ sagði Wiktorin.

Á blaða­manna­fund­inum í gær kom fram að sænski her­inn hafi fylgst sér­stak­lega með þessu svæði í nokkur ár. Wiktorin seg­ist hafa verið hissa að heyra það því það bendi enn frekar til þess að eitt­hvað bjáti á. Hann telur sænska her­inn þó vel geta sinnt verk­efnum á borð við þetta þrátt fyrir nið­ur­skurð til varn­ar­mála und­an­farin miss­eri.

Rússar hafa áður lent í vandræðum við Svíþjóð


Í októ­ber 1981 sil­gdi rúss­neskur kaf­bátur í strand tvo kíló­metra sunnan við aðal­flota­stöð sænska hers­ins í Karl­skrona. Báturinn sat fastur á skeri í tíu daga áður en hægt var að losa hann en þessi atburður og alþjóða­krísan sem fylgdi í kjöl­farið er stundum kall­aður „Whiskey on the Rocks“.

Rúss­neski her­inn var fljótur að senda björg­un­ar­leið­angur á stað­inn sem sam­an­stóð af þung­vopn­uðum tund­ur­spillum og tog­bátum, en á sama tíma og kaf­bát­ur­inn strand­aði stóð yfir her­æf­ing á sama svæði. Svíar stóðu fast á sínu og mein­uðu sov­éska flot­anum að koma inn í lög­sögu sína með þeim afleið­ingum að það lá við átökum.

The last time a #Russia sub 'got lost' in Swedish waters was 1981. It was dubbed 'Whiskey on the rocks' incident. pic.twitter.com/Io5p4JbiWO

— Not a spy (@finriswolf) October 18, 2014

Svíarnir rann­sök­uðu kaf­bát­inn og sigl­inga­bækur hans til að kom­ast að því hvað Sov­ét­menn vildu í sænska lög­sögu. Skip­stjór­inn var jafn­framt yfir­heyrður í Svíþjóð. Það sem olli kannski mestum áhyggjum var að eftir að sænski flot­inn hafði gert leyni­lega könnun á geislna­virkni í sov­éska bánum kom í ljós að í tur­dur­skeyta­hlaup­inu á bak­borða var mjög lík­lega kjarn­orku­vopn.

Síðar kom í ljós að áhöfn­inni hafði verið skipað að eyða kaf­bátnum og kjarna­vopn­unum ef svíar reyndu að kom­ast yfir bát­inn.

Óvopn­aður sænskur flota­for­ingi hafði verið sendur um borð í kaf­bát­inn rúss­neska til að leita svara við því hvers vegna þeir hefðu brotið land­helg­ina. Rúss­neski skip­stjór­inn svar­aði því til að leið­sögu­bún­aður hafi bilað, jafn­vel þó bát­ur­inn hafi þurft að sigla um mjög erfitt sigl­inga­svæði til að kom­ast inn í lög­sögu Svía. Sovéski sjó­her­inn skýrði svo síðar frá því að vegna neyð­ar­at­viks hafi kaf­bát­ur­inn þurft að kom­ast í grynn­ingar, jafn­vel þó neyð­ar­kall hafi aldrei borist.

Lesa má nánar um þessa áhuga­verðu alþjóða­deilu árið 1981 á Wikipedia.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár