Skoskur fiskur fann upp kynlífið fyrir 385 milljón árum

Vís­inda­menn sem rann­sakað hafa stein­gverv­inga hafa kom­ist að því að kyn­líf, sem mann­kynið hefur notað til að ylja, gleðja og auð­vitað fjölga sér, hafi verið „fundin upp“ af fornri fiski­teg­und sem var uppi fyrir um 385 milljón árum við Skotland. The Guardian greinir frá þessu.

Upp­götv­unin þykir mik­il­vægt skref við að kort­legja þróun fjölg­unar líf­vera með kyn­líf tveggja aðila. Samkvæmt henni þró­að­ist á karl­kyns­fiski teg­und­ar­innar Microbrachius dicki, sem var uppi við Skotlandi fyrir 385 millj­ónum ára, L-laga kyn­færi sem hann not­aði til að koma sæði til kven­kyns-fiska af sömu teg­und. Kvenkyns-fisk­arnir þró­uðu sam­hliða með sér lítil bein sem þær not­uðu til að skorða L-laga kyn­færi karl­kyns-fisks­ins þegar mökun átti sér stað.

Fisk­arnir sem um ræðir voru sno­nefndir bryn­háfar (e. placoderm) sem höfðu bein­plötur á haus og brjósti sér til varnar en aft­ur­hlut­inn var óbrynj­aður. Lengi vel var talið að bryn­háfarnir hefðu dáið út og ættu sér ekki afkom­endur í nútím­anum. Þeir voru hins vegar hrygg­dýr og erunú taldir af mörgum vera elstu for­feður manns­ins. Bryn­háfarnir voru nefni­lega með kjálka, tennur og paraða útlimi, alveg eins og mað­ur­inn. Og nú telja vís­inda­menn að þeir hafi líka fært okkur kyn­lífið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár