Amazon býður upp á heimsendingu samdægurs á ferskmeti í NY

Íbúar Park Slope í Brooklyn-hverf­inu í New York borg geta nú pantað sér fersk­meti hjá Amazon, og fengið mat­vör­urnar sendar heim að dyrum sam­dæg­urs. Smá­söluris­inn hleypti af stokk­unum þjón­ust­unni Amazon Fresh í hverf­inu á föstu­dag. Í hverf­inu búa vel stæðar fjöl­skyldur, en innan skamms mun Amazon færa út kví­arnar og bjóða þjón­ustu sína fram á fleiri svæðum í Brooklyn. Vef­mið­ill­inn The Verge segir frá mál­inu.

Amazon hefur ekki enn gefið út hvort íbúum Man­hattan muni bjóð­ast þjón­ustan, en heim­send­ingar sam­dæg­urs á mat­vöru er sylla sem mörg net­fyr­ir­tæki hafa reyna að hasla sér völl á. Gangi til­raun fyr­ir­tæk­is­ins vel í Brooklyn, er ljóst að Amazon mun sækja í sig veðrið.

Smá­söluris­inn hefur starf­rækt Amazon Fresh þjón­ust­una í Seattle, Los Angeles og San Francisco. Þjón­ustan býður við­skipta­vinum upp á að kaupa vörur á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins og fá þær sendar heim að dyrum sam­dæg­urs, eða snemma morg­un­inn eftir. Þó þjón­ustan eigi fyrst og síð­ast að snú­ast um fersk­meti, það er mat­vöru, er einnig hægt að versla sér raf­tæki og aðrar vörur og fá heim að dyrum sam­dæg­urs. Íbúar Park Slope munu getað nýtt sér þjón­ust­una sér að kostn­að­ar­lausu til að byrja með, en þurfa á end­anum að greiða 299 dali árlega fyrir þjón­ust­una.

Heim­send­ing á ferskri mat­vöru hefur reynst erf­iður bransi í gegnum tíð­ina, og mörg fyr­ir­tæki sem hafa boðið upp á þjón­ust­una hafa hrein­lega farið á haus­inn. Þetta virð­ist vera að breyt­ast því risar á borð við Amazon og jafn­vel Google eru byrj­aðir að þreifa fyrir sér á syll­unni. Í New York mun Amazon etja kappi við FreshDirect, sem býður upp á heim­send­ingu á mat­vöru dag­inn eftir að pöntun berst, en fyr­ir­tækið hefur haslað sér völl í borg­inni. Þá hefur Google boðið upp á heim­send­ingu sam­dæg­urs á mat­vöru á Man­hattan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár