Snapchat komið með viðskiptamódel - byrja að birta auglýsingar

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Snapchat, sem býður upp á sjálfseyð­andi örmynd­skila­boð, hefur til­kynnt not­endum sínum í Banda­ríkj­unum, að þeir megi eiga von á því að fara að sjá fleiri aug­lýs­ingar í "recent updates" hluta for­rits­ins á næst­unni. Snapchat birti einmitt fyrstu aug­lýs­ing­una í for­rit­inu um helg­ina. "Þetta verður skrítin til­finn­ing til að byrja með, en við höfum ákveðið að stíga þetta skref" segir Snapchat í blogg­færslu, þar sem fyr­ir­tækið útskýrir af hverju það hefur látið undan mark­aðs­öfl­unum. Vef­mið­ill­inn Quartz segir frá mál­inu.

Í áður­nefndri blogg­færslu Snapchat segir: "Bestu aug­lýs­ing­arnar segja þér eitt­hvað meira um hluti sem þú hefur áhuga á. Sum fyr­ir­tæki eyða miklum tíma í að safna upp­lýs­ingum um not­endur sína, til að kom­ast að áhuga­málum þeirra. Þessi vara sem við erum að láta frá okkur er mikið ein­fald­ari. Aug­lýs­ing mun af og til birt­ast í "Recent Updates" hlut­anum þínum, og þú ræður hvort þú horfir á hana eða ekki. Ekkert stór­mál, hún fer þegar þú ert búinn að horfa á hana, eða eftir 24 klukku­stundir, eins í My Story."


Snapchat ætlar ekki að birta aug­lýs­ingar í per­sónu­lega sam­skipta­hlut­anum, þar sem fólk skipt­ist á "snöppum," eða spjallar. "Það væri bara dóna­legt," eins og fyr­ir­tækið orðar það í blogg­færsl­unni fyrr­greindu.


Loks segir í færsl­unni: "Skilj­an­lega, vill fólk vita af hverju við erum að kynna aug­lýs­ingar til leiks í þjón­ustu okkar. Svarið kemur vafa­laust fáum á óvart: við þurfum að græða pen­ing." Í blogg­færsl­unni lofar sam­fé­lags­mið­ill­inn að nota pen­ing­anna sem það þénar til að kynna nýjar vörur fyrir not­endum sínum.


Um hund­rað millj­ónir ein­stak­linga hafa nið­ur­halað Snapchat - smá­forrit­inu á heims­vísu frá því að því var hleypt af stokk­unum fyrir tveimur árum, en um 70 pró­sent þeirra eru konur. Not­end­urnir senda um 400 milljón "snaptjött" á milli sín dag­lega, en um 71 pró­sent not­enda Snapchat eru undir 25 ára.

Eigendur Snapchat höfn­uðu kauptil­boði Facebook í snjall­for­ritið í lok síð­asta árs, sem hljóð­aði upp á þrjá millj­arða Banda­ríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár