Auðsöfnun einstaklinga vex hraðar en nokkru sinni fyrr

Auð­söfnun ein­stak­linga í heim­inum eykst hraðar um þessar mundir en nokkru sinni fyrr, segir í árlegri skýrslu sviss­neska bank­ans Credit Suisse um auð­söfnun í heim­inum. Stór hluti þess­arar miklu aukn­ingar dreif­ist hins vegar lítið og fer til til­tölu­lega fárra ein­stak­linga.

Banda­ríkin eru sér á báti hvað þetta varðar, að því er fram kemur í skýrslu Credit Suisse. Auður ein­stak­linga hefur auk­ist mest þar og millj­óna­mær­ingum, mælt í millj­ónum Banda­ríkja­dala(Dalurinn á 112 íslenskar krónur), hefur fjölgað mest þar frá því um mitt ár 2013. Samtals hafa 1,6 millj­ónir ein­stak­linga í Banda­ríkj­unum bæst í hóp þeirra sem eiga yfir eina milljón Banda­ríkja­dala. Næst þar á eftir kemur Bretland en þar hafa 478 þús­und millj­óna­mær­ingar bæst í hóp þeirra sem fyrir voru frá því um mitt ár í fyrra.

Helstu ástæð­urnar fyrir þess­ari fjölgun eru fyrst og síð­ast skörp hækkun hluta­bréfa frá því í fyrra og á fyrri hluta þessa árs.

Í nokkrum löndum fækkað ein­stak­lingum sem telj­ast til millj­óna­mær­inga, þar á meðal í Rúss­landi. Þar fækk­aði millj­óna­mær­ingum um 12 þús­und, og í Indónesíu fækk­aði þeim um fimmtán þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár