Gildi, Stapi og Festa keyptu hlut Klakka í VÍS

Lif­eyr­is­sjóð­irnir Gildi, Stapi og Festa keyptu átta pró­sent hlut í Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands (VÍS) af Klakka, áður Exista, síð­ast­lið­inn mánu­dag. Kjarninn hefur undir höndum nýjan hlut­haf­alista í félag­inu þar sem þetta kemur fram. Ómögu­legt hefur verið hingað til að fá stað­fest­ingu á því hver kaup­andi bréf­anna var. Sjóð­irnir þrír keyptu alls um 205 milljón hluti í VÍS í við­skipt­unum. Miðað við gengi bréf­anna í dag er virði þess hlutar um 1,7 millj­arður króna. Hvorki Gildi né Festa áttu hluti í VÍS áður en við­skiptin fóru fram. Gildi er eftir þau fimmti stærsti eig­andi VÍS.

Klakki ætlar að selja meira


Salan átti sér stað í byrjun viku og sam­kvæmt Klakka áttu við­skiptin „sér stuttan aðdrag­anda og voru fram­kvæmd í kjöl­far til­boðs sem Klakka barst frá hópi fag­fjár­festa“. Klakki, sem er að mestu í eigu Arion banka, þrota­bús Kaup­þings og vog­un­ar­sjóð­inn Burlington Loan Mana­gement, stærsti erlendi kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs, er áfram stærsti ein­staki eig­andi VÍS með 15,18 pró­sent eign­ar­hlut.

Klakki skil­greinir sig ekki sem lang­tíma­fjár­festi í VÍS. Á heima­síðu félags­ins kemur fram að það muni horfa til „þess að selja eft­ir­stand­andi eign­ar­hlut sinn, mögu­lega í áföngum, á kom­andi mán­uðum".

Á lista yfir 20 stærstu hlut­hafa VÍS kemur fram að tíu líf­eyr­is­sjóðir eigi sam­tals 33,6 pró­sent beina eign í félag­inu. Auk þess eiga fag­fjár­festa­sjóðir á vegum sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja 12,2 pró­sent í VÍS. Líf­eyr­is­sjóðir eru á meðal fjár­festa í að minnsta kosti hluta þeirra sjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár