Seðlabankinn lánaði gjaldeyrisforðann án lánaskjala og veða

„Frá­gangur láns­ins til Kaup­þings var einnig óvenju­legur þar sem Seðla­banki Íslands milli­færði ein­fald­lega 500 millj­ónir evra til Kaup­þings mánu­dag­inn 6. októ­ber eftir sam­tal um lán­veit­ing­una milli mín og Davíðs Odds­sonar, for­manns banka­stjórnar Seðla­bank­ans. Engin lána­skjöl voru und­ir­rituð og Seðla­bank­inn gekk ekki frá veð­setn­ingu FIH bank­ans til sín.“ Þetta segir Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í morgun.

Kjarninn greindi frá því nýverið að tæpur helm­ingur umrædds láns, um 35 millj­arðar króna, sé tap­aður. Árni Mathiesen, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, lýsti lán­veit­ing­unni þannig í bók sinni um banka­hrunið og afleið­ingar þess að Seðla­bank­inn hafi „látið Kaupþing hafa allan gjald­eyr­is­forð­ann sem þeir voru með hér heima þannig að það voru engir pen­ingar eftir í Seðla­bank­anum“.

Seðla­bank­inn lán­aði því „allan gjald­eyr­is­vara­forð­ann sem þeir voru með hér heima“ án þess að gera lána­samn­inga né taka veð. Kaupþing hefði því ekki þurft að láta FIH bank­ann af hendi sem veð fyrir lán­inu, frekar en bank­inn vildi.

Seðla­bank­inn fór hins vegar fram á það við Kaupþing nokkrum dögum síðar að gengið yrði frá lána­skjöl­unum og veð­setn­ingu FIH bank­ans. Hreiðar Már segir að stjórn­endur Kaup­þings hafi orðið við því, en þá „var búið að milli­færa láns­fjár­hæð­ina í heild sinni“.

Hafnar óeðlilegri ráðstöfun lánsins


Embætti sér­staks sak­sókn­ara og yfi­völd í Lúx­em­borg hafa verið með Hreiðar Má, og fleiri stjórn­endur Kaup­þings, til rann­sóknar vegna þess hvernig þau telja þá hafa ráð­stafað hluta af neyð­ar­lán­inu frá Seðla­bank­anum. Um er að ræða hið svo­kall­aða Lindor-mál. þar sem grunur er um að féð frá Seðla­bank­anum hafi verið notað til að kaupa skulda­bréf af starfs­mönnum Kaup­þings í Lúx­em­borg, bank­anum sjálfum og vild­ar­við­skipta­vinum.

Hreiðar Már neitar því stað­fast­lega í grein­inni að lán­inu hafi verið ráð­stafað með þessum hætti. „Ekkert af fjár­magn­inu sem Kaupþing fékk frá Seðla­banka Íslands var notað til kaupa á eigin skulda­bréfum Kaup­þings eins og haldið hefur verið fram. Allt fjár­magnið var nýtt til að tryggja aðgang við­skipta­vina bank­ans í fjöl­mörgum löndum Evrópu að banka­inni­stæðum sínum, tryggja aðgang dótt­ur­banka Kaup­þings í Evrópu að lausafé og mæta veð­köllum bank­ans vegna fjár­mögn­unar hans og við­skipta­vina hans á verð­bréfum hjá alþjóð­legum bönkum í Evrópu. Með öðrum orðum þá var allt féð notað til að tryggja sem frekast var kostur rekstur og hag Kaup­þings og við­skipta­vina bank­ans.“

Neyðarlögin kynnt í ríkisstjórn fyrir lánveitingu


Í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kemur fram að lánið ákvörðun um lán­veit­ing­una hafi verið tekin á hádegi þann 6. októ­ber.

Síðar saman dag, eftir lokun mark­aða, flutti Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sjón­varps­ávarp þar sem hann til­kynnti um setn­ingu neyð­ar­laga. Inntak þeirra var meðal ann­ars það að inn­stæður nutu for­gangs í kröfu­hafaröð.

Hreiðar Már segir í grein sinni að stjórn­endur Kaup­þings hefðu talið að 500 milljón evra lánið frá Seðla­bank­anum hefði verið nægi­lega stór fyr­ir­greiðsla til að gera Kaup­þnigi kleift að standa að sér ástandið sem geis­aði á fjár­mála­mark­aði á þessum tíma. Í grein hans stendur: „Það sem við vissum ekki þá var að rík­is­stjórn Íslands myndi síðar þann dag beita sér fyrir sam­þykkt neyð­ar­laga á Alþingi Íslend­inga. Neyð­ar­lögin, sem settu inni­stæðu­eig­endur fram fyrir aðra kröfu­hafa, kipptu fót­unum end­an­lega undan rekstri alþjóð­legra banka á Íslandi og eftir að þau voru sam­þykkt seint um kvöldið er óum­deilt að mínu viti að ekki var lengur raun­hæft að reka alþjóð­legan banka, sem sótti fjár­mögnun sína til alþjóð­legra mark­aða, frá Íslandi. Ég held að við öll getum verið sam­mála um að slíkur banki á ekki raun­hæfa mögu­leika.“

Í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kemur skýrt fram að vinna við neyð­ar­lögin var hafin þegar lánið til Kaup­þings var veitt og frum­varp þess efnis var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi að morgni 6. októ­ber. Sá fundur hófst 8:30, mörgum klukku­tímum áður en lánið til Kaup­þings var veitt, upp­haf­lega án veða og lána­samn­inga. Því voru lögin, sem fyrrum for­stjóri Kaup­þings telur hafa gert það óraun­hæft með öllu að reka alþjóð­legan banka á Íslandi, ákveðin og setn­ing þeirra í und­ir­bún­ingi þegar Seðla­bank­inn ákvað að lána alþjóð­lega bank­anum Kaup­þingi allan inn­lendan gjald­eyr­is­forða sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár